Blik - 01.04.1960, Síða 132
Einar Sigur-
finnsson
Hann heitir fullu nafni Magnús
Kristinn Einar. Hann fæddist að
Háu-Kotey í Meðallandi 14. sept.
1884 og varð því 75 ára á s.l.
hausti. Foreldrar hans voru Sigur-
finnur Sigurðsson, bústjóri, og
Kristín Guðmundsdóttir bónda
Einarssonar í Háu-Kotey.
Einar Sigurfinnsson ólst upp í
Háu-Kotey fram yfir fermingu hjá
móður sinni og manni hennar, Sig-
urði Sigurðssyni. Síðan fluttist Ein-
ar að Lágu-Kotey og dvaidist þar
til 26 ára aldurs. Það var 1910. Þá
giftist hann og hóf búskap á Syðri-
Steinsmýri í Meðallandi. Kona
hans var Gíslína Sigurbergsdóttir
bónda í Fjósakoti Einarssonar þar
í sveit. Á Syðri-Stejnsmýri bjuggu
þau hjón í eitt ár. Árið 1911 fluttu
þau að Efri-Steinsmýri. Þar missti
Einar konu sína af slysförum. Hún
dó 1. janúar 1913. Þá áttu þau tvö
börn, Sigurbjörn, núverandi biskup
yfir íslandi, þá 18 mánaða, og Sig-
urfinn, sem býr í Fagradal Við
Bárugötu hér í bæ, þá mánaðar
gamlan.
Tengdaforeldrar Einars Sigur-
finnssonar bjuggu í Háu-Kotey.
Þau tóku Sigurbjörn litla dóttur-
son til fósturs. Þar var hann íil 8
ára aldurs. Einar fluttist að Lágu-
Kotey til móður sinnar með yngri
drenginn.
Árið 1926 fluttist Einar Sigur-
finnsson til Reykjavíkur m. a.
til þess að geta séð um og styrkt
son sinn Sigurbjörn, sem þá hóf
nám í Menntaskólanum það haust.
Einar Sigurfinnsson.
Eftir fermingu hafði Sigurbjörn
Einarsson stundað nám hjá Helga
Lárussyni á Kirkjubæjarklaustri
og síðan hjá séra Birni O. Björns-
syni, sem þá var prestur í Þykkva-
bæjarklausturs-prestakalli. Lét
prestur sér mjög annt um ungling-
inn Sigurbjörn, sem var sérstak-
lega bókhneigður og námfús. Yngri
sonur Einars, Sigurfinnur, var
meira hneigður að verklegum störf-
um.
í Reykjavík dvaldist Einar Sig-
urfinnsson í þrjú ár. Stundaði þar
ýmsa vinnu, er til féll, og var í
kaupavinnu á sumrum. Þá kynntist
hann seinni konu sinni, Ragnhildi
Guðmundsdóttur frá Syðra-Lang-
holti. Þau giftust vorið 1928.
Árið eftir reistu þau bú að Iðu
í Biskupstungum. Þar bjuggu þau
í 26 ár eða til ársins 1955, er
þau brugðu búi og fluttu hingað
til Vestmannaeyja. Þau eiga einn
son, Guðmund að nafni. Hann býr
hér í bæ.
Einar Sigurfinnsson gerðist