Blik - 01.04.1960, Page 135
B L I K
133
Vélskipið Skaftfellingur var
alltaf mannað úrvals skips-
höfn. Hann varð líftaug og
lyftistöng margskonar fram-
kvæmda Vesturskaftfellinga og
Öræfinga að mjög verulegu
leyti um árabil. En Vestmanna-
eyjar komu þar einnig mjög
við sögu. Þótt Reykjavík væri
heimahöfn bátsins og útgerð-
arstjórinn þar búsettur, var
Vestmannaeyjahöfn löngum
dvalarstaður skipsins. Þar lá
Skaftfellingur oft dögum sam-
an og beið byrjar, beið þess, að
sjó lægði og út- eða uppskipun
væri kleif austur við Víkurfjör-
ur eða annars staðar með sönd-
unum. Án Vestmannaeyjahafn-
ar og sambandsins milli Eyja
og Víkur og síðar Kirkjubæjar-
klausturs hefði þessi ómetan-
lega samgöngubót hafnlausu
héraðanna ekki getað átt sér
stað.
Þegar svo loks vegir og brýr
gerðu landleiðina örugga aust-
ur í Skaftafelissýslu, komu vél-
knúnir vagnar til sögunnar og
tóku að sér hlutverk vélskips-
ins.
Skaftfellingur er enn til og á
nú heima í Vestmannaeyjum.
Hann hefur alla tíð verið
happafleyta, traust og gott
skip, sem margt hefur reynt og
í ratað. Það væri bæði gagn og
gaman að því, að saga hans
væri skráð af þar til hæfum
Ilianni Einar Sigurfinnsson.
Ur sögu vélskips-
ins Skaftfellings
Helzti og líklega fyrsti hvata-
maður að kaupunum á v/s
Skaftfellingi var Lárus bóndi
Helgason að Kirkjubæjar-
klaustri. Það var hann, sem
bar fram og reifaði það mál á
sýslufundi 1916. Þáverandi
sýslumaður Vestur-Skaftfell-
inga, Sigurjón Markússon, var
málinu fylgjandi. Það var þá
afgreitt á þann veg, að stofna
skyldi hlutafélag, sem léti
smíða bát til flutninga, er
gengi frá Reykjavík til Vest-
mannaeyja og austur með
Söndum alla leið til Öræfa. Gefa
skyldi út hlutabréf að nafn-
verði 25, 50 og 100 kr. Menn
voru sendir um sveitimar til að
safna loforðum um framlög.
Málinu var yfirleitt vel tekið
og framlögum heitið eftir getu
hvers og eins. Langflestir urðu
25 króna hlutirnir. Jafnvel börn
voru skráð hluthafar. Lang-
hæsti hluthafinn var Sláturfé-
lag Suðurlands með 5000 krón-
ur. En hæsta framlag einstak-
lings var frá Lárusi Helgasyni
á Klaustri, kr. 700,00. Nokkrir
keyptu hluti fyrir 200—500 kr.
Þá var samið um smíði á vél-
skipinu. Mun Sigurjón sýslu-
maður hafa annazt þá samn-