Blik - 01.04.1960, Page 136
134
B L I K
_
V/s Skaftfellitigur úti fyrir Vik i Mýrdal. Fjallið Hatta til hcegri, Reynisfjall til vinstri.
ingagerð, en þáttur hans frá
upphafi var veigamikill í þessu
merka framtaki.
Þegar hlutafjárloforð voru
orðin all rífleg og smiði báts-
ins hafin, voru fundir haldnir
í sveitunum og fulltrúar kosn-
ir til að mæta á sameiginlegum
fundi til þess að ganga frá
stofnun hlutafélagsins.
. Sýslumaður boðaði fundinn,
en í forföllum hans sat Bjami
Kjartansson, kaupfélagsstjóri,
hann. Fundargjörðin hefst á
þessa leið:
„Ár 1917, 7. febr., mættu þar
til kjörnir fulltrúar að Flögu í
Skaptártungu til þess m. a. að
ræða og samþykkja fmmvarp
til laga fyrir hlutafélagið
,,Skaftfelling“. Mættir vom:
Láms Helgason, Kirkjubæjar-
klaustri, Jóhann Sigurðsson,
Breiðabólsstað, Bjarni Bjarna-
son, Hörgsdal, Þorsteinn Guð-
mundsson ,Skaftafelli, Páll Sig-
urðsson, Þykkvabæ, Einar Sig-
urfinnsson, Kotey, Bjami Páls-
son, Söndum, Jón Brynjólfsson,
Þykkvabæjarklaustri, séra Sig-
urður Sigurðsson, Hlíð, Vigfús
Gunnarsson, Flögu, Bjarni
Kjartansson, Vík, Páll Ólafs-
son, Heiði og Eyjólfur Guð-
mundsson, Hvoli.“
Fundarstjóri var kosinn Lár-
is Helgason og ritari séra Sig-
urður Sigurðsson. Þá var lagt
fram lagafrumvarpið, það rætt,
breytingar gerðar og það síðan
samþykkt. Því næst var stjóm
félagsins kosin: Lárus Helga-