Blik - 01.04.1960, Síða 157
aðbúð vermanna
Dæmi um
Svo sem fram er tekið í skýr-
ingum við mynd af húsinu
Nöjsomhed hér í ritinu, er
myndin af vesturstafni og sið-
urhlið. Annar inngangur var
inn í húsið að austan. Þar var
þröngur gangur inn af útidyr-
um og úr honum brattur stigi
upp á loftið. Um fjölda ára
höfðu aðkomuskipshafnir hafzt
við á loftinu á vetrarvertíðum.
Vetrarvertíðina 1892 var til
húsa á loftinu í Nöjsomhed
skipshöfnin á Landeyjaskipinu
Isaki, Formaðurinn var Oddur
bóndi á Krossi í Landeyjum,
faðir Sigurðar heitins í Skuld
hér. Var skipshöfnin 15 manns.
Sunnudag nokkurn um vetur-
inn komst Isleifur sál. Jónsson,
bróðir Þorsteins í Laufási, i
,,kæfuveizlu“ hjá Árna Isleifs-
syni frá Kanastöðum, sem var
einn af hásetunum á ísaki.
Næsta sunnudag á eftir var svo
Þorsteinn boðinn á loftið í
samskonar veizlu. Hann var þá
á 12. árinu. Drengurinn íhlakk-
aði mikið til að fá að borða
nægju sína af hinni ljúffengu
kæfu Landmannanna.
Þorsteinn fikaði sig upp stig-
ann, freðinn og hálan, því að
snjór var á jörðu og mikið
frost. I ljós kom ,að skipshöfn-
in lá öll í rúmunum fárveik af
innfluensu, sem geisaði þá
skæð í kauptúninu, svo að f jöldi
manna lá veikur. Þorsteinn
fékk pata af, að mennirnir
hefðu mikinn hita og sumir
væru sárþjáðir.
Árni Isleifsson ympraði á því
við Þorstein, að því miður gæti
ekkert orðið úr kæfuátinu að
því sinni. Urðu það drengnum
mikil vonbrigði, en lét þó sem
ekkert væri.
Einn af skipshöfninni var
Guðlaugur bóndi í Búðarhóls-
hjáleigu í Landeyjum. Hafði
hann orð á því, hvort Þorsteinn
gæti gert þeim þann greiða, að
hella fyrir þá úr kirnunni, sem
stóð frammi á loftinu við upp-
ganginn.
Þorsteinn tók kirnuna og
rogaðist með hana niður stig-
ann.
I miðjum stiga skrikaði hon-
um fótur í hálkunni, svo að
hann missti kirnuna. Valt hún
niður stigann með bramli og
braki, skall á útidyrahurðina,
svo að hún hrökk upp, og kirn-
an lá úti á hlaði.
Lesendur telja það auðvitað
víst, að innihald kirnunnar hafi
nú runnið niður stigann og
fram úr dyrum. — Ó-nei, svo