Blik - 01.04.1960, Page 168
166
B L I K
þeirrar vinnukonu, sem vann
Sigurði Sveinssyni og Nýborg-
arheimilinu 33 ár. Hún hét
Herdís Magnúsdóttir. Hún réð-
ist fyrst vinnukona að Nýborg
árið 1879. Þá var hún þar í
tvö ár. Næstu tvö árin var hún
vinnuhjú á Oddsstöðum hjá
Árna bónda Þórarinssyni og k.
h. Steinunni Oddsdóttur. Þá
ræðst hún aftur að Nýborg og
er þar vinnuhjú samfleytt til
dauðadags, 1914. Kunn að
dugnaði og dyggri þjónustu við
Nýborgarheimilið.
Sigurður Sveinsson rak nú
útgerð, hafði mikla garðrækt,
átti margt fjár í Yztakletti,
leigði Eyjabúum þar slægjur og
beit fyrir drjúgan pening, lét
vinnumenn sína stunda þar
eggjatekju og fuglaveiðar að
sumrinu, róa til fiskjar á vet-
urna og vorin og þess á milli
hirða um fénað heima við.
Sjálfur stundaði húsbóndinn
húsasmíðar öllum stundum, því
að engan veiðiskap stundaði
hann sjálfur.
Sigurður Sveinsson gréri að
álnum ár frá ári og varð nú
brátt einn af ríkustu mönnum
í Vestmannaeyjum.
Þegar hér er komið sögu,
hefur Anna Benediktsdóttir,
prests Magnússonar að Mosfelli
verið Ijósmóðir í Vestmanna-
eyjum yfir 20 ár. Hún var nú
á sextugsaldri (f. 1831) og
fremur heilsutæp. Þessi mæta
Ólafur Magnússon, vinnumaður i Nýborg,
formaður á opna skipinu Bliðu um
margra ára skeið, kunnur hagyrðingur og
mikil aflakló. F. 1845. D. 4. okt. 1927.
kona vakti máls á því við Þor-
stein Jónsson héraðslækni árið
1884, að ekki væri hyggilegt að
draga það lengur að hugsa fyr-
ir annarri ljósmóður í Eyjum,
með því að hún treysti sér
naumast til að þjóna þar leng-
ur ein, eins og heilsu hennar
var þá varið. Það ár var þó
ekkert gert til þess að tryggja
sveitarfélaginu ljósmóður við
hlið Önnu Benediktsdóttur.
Árið eftir, 1885, ámálgaði
Anna ljósmóðir á ný beiðni
sína í þessum efnum. Skrifaði
þá héraðslæknir um sumarið
bréf til sýslunefndar og hvatti
hana til að gera ráðstafanir og