Blik - 01.04.1960, Síða 171
B L I K
169
sér að giftast henni og stofna
þannig til ævilangrar sambúð-
ar.
I marzmánuði 1886 var haf-
inn undirbúningur að gifting-
unni. Fengu þau þá konunglegt
leyfisbréf til að giftast. Það
var dagsett 22. marz þ. á. En
þá kom babb í bátinn.
Ein af vinnukonum Sigurðar
í Nýborg var um þessar mund-
ir Sigríður Sighvatsdóttir
bónda Sigurðssonar á Vilborg-
arstöðum. 1 marzmánuði þetta
ár var vinnukona þessi tekin að
þykkna undir belti. Einhvern
veginn lá það nú í loftinu, að
Sigurður húsbóndi hennar væri
faðir að baminu. Hann mun
hafa játað það fyrir Þórönnu
heitmey sinni.
Ég læt lesendur mína um það
að gera sér grein fyrir and-
rúmsloftinu í Nýborg um þess-
ar mundir. En aldrei reyndi
meira á Þórönnu Ingimundar-
dóttur en nú. Giftingunni var
skotið á frest að minnsta kosti.
En Þóranna sannaði mannkosti
sína, þroska og skynsemi á
þessum mótgangstímum. Hún
var sjálf * ljósmóðir að þessu
barni unnusta síns. Þetta var
stúlkubam og skírt þrem nöfn-
um að þess tíðar sið, Júlíana
Sigríður Ingveldur. Hún er enn
á lífi, þegar þetta er skrifað,
ekkja Péturs bónda Lámssonar
hreppstjóra Jónssonar á Búa-
stöðum, myndarfólk og mann-
kosta.
Næstu tvö árin eftir að Sig-
ríður ól barnið, hafði svo Þór-
anna Ingimundardóttir þessa
bamsmóður Sigurðar unnusta
síns í Nýborg hjá sér með
barnið, eða til ársins 1888.
•
Árin liðu í Nýborg sem utan
veggja hennar með miklum at-
höfnum, umstangi og gróða. —
Tíminn græðir flest sárin, og
mannkostakonan mikla, Þór-
anna Ingimundardóttir fyrirgaf
unnusta sínum veiklyndið í
kvennamálunum og sættist við
hann, því að andanum unni
hún, hvað sem holdinu leið.
Þóranna ól honum annað
stúlkubam 15. nóv. 1890. Það
var skírt Jónína Steinunn og er
hin góðkunna kona og móðir
Jónína á Háeyri hér í Eyjum.
— Ári síðar eða 1891 giftust
þau Sigurður og Þóranna og
áttu þá eftir að lifa saman í
hjónabandi í hart nær 40 ár.
Svaramenn vom þeir Þorsteinn
læknir Jónsson og H. Bryde
kaupmaður, tveir af mestu
höfðingjum Eyjanna þá á ver-
aldlega vísu. Þá var heimilis-
fólkið í Nýborg 17 manns, þar
af 6 vinnumenn og 4 vinnukon-
ur, svo að mikið var vinnuaflið,
enda mikið starfað. Stóð þá á
mörgum fótum fjárafli Sigurð-
ar Sveinssonar, svo sem sagt