Blik - 01.04.1960, Page 183
Þórunn Jónsdóttir
Ijósmóðir
Eins og á er drepið í grein-
inni Nýborgarheimilið hér í rit-
inu, þá tók Þórunn Jónsdóttir,
Ijósmóðir, við starfi Þórönnu
ljósmóður í Nýborg árið 1924.
Þórunn Jónsdóttir er fædd 8.
júní 1889 að Reynishólum í
Mýrdal. Faðir Þórunnar var
Jón bóndi frá Skammadal Jóns-
son bónda frá Fjósum Þórð-
arsonar. Kona Jóns bónda frá
Skammadal var Sigríður Ein-
arsdóttir, bónda í Engigarði og
víðar, Eánarssonar Þorsteins-
sonar, bróður séra Jóns Stein-
grímssonar eldklerks.
Þegar þeir bræður Þorsteinn
og séra Jón fluttust úr Norð-
urlandi í Mýrdalinn haustið
1755, fengu þeir í rauninni
hvergi húsaskjól, hvergi fannst
rúm handa séra Jóni Stein-
grímssyni í „gestaherberginu".
Þeir bræður urðu því að hýrast
í hellisskúta um veturinn 1755
—1756. Kindur sínar geymdi
prestur í öðrum hellisskúta,
sem enn ber nafnið Pína. (Sam-
anber Skruddu R.Á., 3 b. bls.
164).
Móðir Sigríðar Einarsdóttur,
eða móðuramma Þórunnar ljós-
tnóður, var Ingibjörg Sveins-
dóttir landlæknis Pálssonar.
Þórunn ljósmóðir ólst upp í
foreldrahúsum í Reynishólum
við ýmis sveitastörf. Hún var
lengi heilsutæp á unga aldri og
framtíðin virtist heldur döpur
og engu spá glæsilegu ungu
stúlkunni í Reynishólum. Full-
tíða lærði hún fatasaum í Rvík.
Árið 1918 kom Þórunn fyrst
til Vestmannaeyja.
I Vestmannaeyjum fram-
fleytti Þórunn sér á saumaskap
mörg þau árin, sem heilsuleysið
3varf hvað mest að henni og
hún átti bágast með að vinna.
Hún saumaði mest klæðnað á
karlmenn.
Vorið 1923 kom Þórunn að
rnáli við Halldór héraðslækni
Sunnlaugsson og tjáði honum,
ið hún hefði hug á að ganga í
Ijósmæðraskólann í Reykjavík
og verða síðan ljósmóðir í Vest-
mannaeyjum. Héraðslæknirinn
tók þessari hugmynd vel. Hann
seskti þess, að Þórunn sækti
þegar um ljósmóðurstöðu þá,
er losnaði, þegar Þóranna Ingi-
mundardóttir Ijósmóðir hætti
störfum, en hún var þá 64 ára