Blik - 01.04.1960, Page 201
B L I K
199
r----------------------------------------------------------
Við gullbrúðkaup hjónanna
á Gjábakka
Kvæði þetta orti Gísli Engilbertsson, verzlunarstjóri Júlíus-
haabverzlunar á Tanganum í tilefni gullbrúðkaups hjónanna á
Gjábakka, Ingimundar Jónssonar, hreppstjóra, og Margrétar Jóns-
dóttur, foreldra Þórönnu ljósmóður. Kvæðið var flutt í veizlu, er
Eyjamenn héldu hjónum þessum á gullbrúðkaupsdegi þeirra 1908.
Hvað er svo traust og tryggt sem vinaböndin,
er tengir saman drottins kœrleiksmund?
I verki með ef herrans er ei höndin,
kann hjónagleðin vara skamma stund.
En ei tvímælis orkað það hér getur
um lngimund og tryggðakonu hans,
því fimmtíu árum fyrir þennan vetur
úr frjálsum ástum bundLu tryggðakrans.
Með ást og virðing öldruð hjón nú lítum
í anda glöð með silfurlitað hár,
sem aldrei hafa haldið uppi á spýtum,
úr hugardjúpi vörm þótt rynnu tár .
Þau dætur, syni og aðra vini eiga,
sem ellimóðum rétta kærleikshönd,
svo glaðir heiðursgestir þessir mega
æ guði þakka ást og tryggðabönd
Við þessum hjónum þökkum ævistörfin,
sem þrautgóð unnu sjáv&r til og lands.
Þau báru skyldur, bráðlát oft var þörfin,
en bjart hið efra, von í sigurkrans.
Vér óskum fagurt ævikvöld þau hljóti,
og ást með rósemd gylli silfrað hár,
og ávaxtanna í öðru Ufi njóti,
er oft til sáðu gegnum bros og tár.
G. Engilbertsson.
__________________________________________________________________y