Blik - 01.04.1960, Page 203
B L I K
201
Laugardaginn 12. des. 1959 lagðist „Vestmannaeyjaskipið“
Herjólfur að bryggju hér í Eyjum fyrsta sinni. Skipið kom frá
Holíandi, þar sem það var byggt, með viðkomu í Leith. HeimaJ
höfn þess er Vestmannaeyjar. í tilefni þessa merkisatburðar í
samgöngumálum kaupstaðarins, hafði Sigurgeir Kristj ánsson, lög-
regluþjónn, ort eftirfarandi kvæði, sem var flutt á Básaskers-
bryggjunni, er skipið lagðist þar að
Við bjóðum big velkominn, Herjólfur, heim
til hafnar við 'norðlcegar slóðir.
Við biðum bín lengi, og bökk veri beim,
sem þér voru hollir og góðir.
Þú komst, þó að nótt vreri niðdimm og löng,
og nú skal þér fagnað með rceðum og söng.
Þeir vissu það áður, sem jttu úr vör
við útsker hjá rjúkandi hrönnum,
ef syrti 'í álinn, þá seinkaði för
hjá sjóhröktum erfiðismönnum.
það var eins og brimhljóðið boðaði grand,
er hoðarnir féllu við Eyjar og sand.
Loks mótaði þekkingin tcekninnar tök
á tímum, sem við stöndum ncerri.
Þá rcettust þeir draumar, sem vörðust í vök,
og víst eru sigrarnir stcerri!
I dag birtist Herjólfur, skínandi skeið,
vort skip, er gegn ólgunni klýfur sér leið.
Fylgi þér, Herjólfur, hamingjudís
um hafið á framtíðarleiðum.
Þín sigling sé örugg og vegleg og vís,
þó vindarnir blási í reiðum.
Svo eflir þú tengslin við Eyjar og land,
þótt oft falli boði við Landeyjasand
Sigurgeir Kristjánsson.
k_______________________________________________________________________/