Blik - 01.04.1960, Síða 210
208
B L I K
Nemendur og kennari á matreiðslunámskeiði, sem Kvenfélagið Likn hélt haustið 1939,
i sjóbúð Tangaverzlunarinnar (Gunnar Ólafsson og Co.). — Frá vinstri: 1. Sigrun
Ólafsdóttir, Brimbergi, 2. Þórdis Jóelsdóttir, Sælundi, 3. Berta Gisladóttir, Dalbce, 4.
Anna Þorsteinsdóttir, Laufási, 5. Ágústa Árnadóttir, Bræðraborg, 6. Sigrún Helgadóttir,
Steinum, 7. Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Hjálmholti, 8. Sitjandi: Ingibjörg Jónsdóttir,
húsmceðrakennari frá ísafirði.
1938 beitti Kvenfél. sér fyrir sýni-
námskeiði, sem sáttu 48 konur. Bún-
aðarfélag íslands styrkti námskeið
þetta með kr. 175,00 og konur
greiddu hver um sig kr. 8,00 í
kennslugjald. Kvenfél. Líkn þurfti
ekki að greiða neinn halla af því
námskeiði, enda stóð það aðeins
nokkra daga.
Haustið 1939 efndi Kvenfél. Líkn
til matreiðslunámskeiðs. Það var
starfrækt í sjóbúð Tangans og mun
hafa verið rekið í félagi við annað
félag sem nefndist Eygló. Ekki veit
ég með vissu deili á því félagi. Mynd
af þátttakendum þessa námskeiðs
og kennara er birt hér í ritinu. Það
stóð nokkrar vikur.
Síðasta matreiðslunámskeið Kven-
fél. Líknar var haldið í sept. 1958.
Það var kallað „grænmetis-nám
skeiðið," þar sem húsmæðrum var
sýnd matreiðsla á ýmiskonar græn-
meti. Um 60 konur nutu þarna til-
sagnar, og stóð námskeiðið 4 daga.
Það var starfrækt í húsi Vinnslu-
stöðvar Vestmannaeyja við Strand-
veg. Kennari var Guðrún Hrönn
Hilmarsdóttir úr Reykjavík.
Á áratugnum 1930—1940 beitti
Gagnfræðaskólinn sér fyrir tveim
matreiðslunámskeiðum handa pilt-
um, sem gerast vildu matsveinar á
bátum. Að námskeiðum þessum
stóð með skólanum Utvegsbænda-
félag Vestmannaeyja. Fyrra nám-
skeiðið var haldið í Geirseyri en hið
síðara að Breiðabliki, sem varr
leiguhúsnæði skólans þá. Við birt-
um hér í ritinu mynd af nemendum
og kennara námskeiðsins 1938 í til-
efni þess, að vonir standa nú til, að
Gagnfræðaskólinn geti aftur hafið
„framleiðslu" á matsveinum handa
Eyjaflotanum í hinu nýja og glæsi-
lega eldhúsi skólans.