Blik - 01.05.1965, Page 3
BLIK
ÁRSRIT VESTMANN AEY J A
VESTMANNAEYJUJVl
MAÍ 1965
JÓHANN S. HlÍÐAR
(Hér birtir Blik efnislega þær hugleiðingar, sem voru uppistaðan í ræðu séra
Jóhanns Hlíðars til gagnfræðinga skólans veturinn 1963, er þeim var haldið kveðju-
hóf í skólanum).
Kæru ungu vinir! ' i
Fagnaðardagur er runninn upp í
lífi ykkar, dagur mikils feginleika,
vegna þess að þið hafið náð stórum
áfanga og merkum, eruð orðin gagn-
fræðingar. Á slíkri stund fer ekki
hjá því, að gleðinni yfir því að vera
laus við skólagönguna blandist
nokkur tregi við að yfirgefa þá
menntastofnun, sem ykkur hefur al-
ið undanfarin fjögur skólaár. Og
það megið þið vita, að það er engan
veginn sársaukalaust fyrir skólastjóra
og okkur kennara ykkar að kveðja
ykkur, því að hið innra og í leynd-
um hafa lífsþræðir ykkar og okkar
samtvinna2t á liðnum árum þannig,
LAHD5QÖ
?að við erum orðin sem ein heild,
sem ein fjölskylda, og engum fjöl-
skyldumeðlimi getur verið alveg
sama um hag og gengi hins. En það
er oft hulið sjónum unglinga, hvort
heldur er innan veggja heimilis eða
skóla, að í allri fræðslu, ögun og
umvöndun, felst sú væntumþykja
og ábyrgðartilfinning, sem ber fram-
tíðarheill og hag óharðnaðs unglings
fyrir brjósti í stóru og smáu.
Allt, sem þú tileinkar þér á ung-
lingsárum þínum, mótar skaphöfn
þína. Um það má segja hið forn-
kveðna: „Hver er sinnar gæfu smið-
ur". En vert er að gefa því gaum, að
á sama tíma, sem verið er að byggja
’h'.SAFN