Blik - 01.05.1965, Síða 58
56
13 L I K
Reykjavík og var þá í ýmsum snún-
ingum fyrir leikfélagið þar. Hann
lagði eindregið til, að L. V. tæki leik-
rit þetta til sýningar. Það var svo
gert og hlaut ágæta aðsókn og hylli
almennings. Þá léku m. a. Guðbjörg
Gísladóttir, Agústa Eymundsdóttir,
Steinunn Sveinbjarnardóttir, verzl-
unarstúlka, Kristján Gíslason, Guð-
jón Jósefsson, Steingrímur Magnús-
son, Olafur Ottesen o. fl. Sigríður
Ottesen lék undir við sönginn að
venju.
A þessu leikári var einnig tekinn
til sýningar enn einu sinni „Apakött-
urinn". Þá var nokkuð breytt um
hlutverk samkv. sögn Steingríms
Magnússonar. Hlutverkaskipanin
var þá þannig:
Iversen: Guðjón Guðjónsson, Sjó-
lyst
Frú Sörensen: Agústa Eymunds-
dóttir
Oli gamli: Guðjón Jósefsson
Hr. Lindal: Steingrímur Magnús-
son.
Þessi leikrit munu einnig hafa
verið leikin veturinn 1915: „Ærsla-
drósin", „Ungu hjónin", „Her-
mannaglettur" og „Bezt sem vitlaus-
ast". Talið er víst, að veturinn 1916
hafi L. V. leikið „Imyndunarveik-
ina" eftir Molier. Var því leikriti
mjög vel tekið, enda voru hlutverk-
in sögð vel af hendi leyst. Leikendur
voru að nokkru leyti hinir þekktu og
venjulegu, en þó var nú þarna með
Jóhann Þ. Jósefsson, sem lék Kam-
ferius lækni. Ólafur Ottesen lék Ar-
gan. Að sögn Guðbjargar Gísladótt-
ur sjálfrar lék hún þar síðasta hlut-
verkið sitt á leiksviði. Hún lék
Angeliku.
Naumast var sýningum á „Imynd-
unarveikinni" lokið, er L. V. tók til
að sýna nokkra einþáttunga, svo sem
„Trina í stofufangelsi", „Hjónaleys-
in" eftir Heiberg, „Knox og Box",
þýtt úr frönsku, o. fl. í Knox og Box
léku Bjarni Björnsson, Ólafur Otte-
sen og Agústa Eymundsdóttir. Þetta
þótti sérlega skemmtilegur einþátt-
ungur og hlutu leikendurnir mikið
lof fyrir góðan leik.
Seint um haustið 1915 lék svo L.
V. leikritin „Annarhvor verður að
giftast", sem er þýzkur gamanleikur,
og „Varaskeifuna" eftir E. Bögh.
Sama árið (1916) sýndi L. V.
leikritið „Handabandið". Höfundur
þess er ókunnur, og engin vitneskja
hefur um það fengizt, hverjir léku
þá eða hvenær ársins það var sýnt. A
sama ári var og sýndur „Leiksoppur-
inn" og stjórnaði Bjarni Björnsson
þeim leik. Leiksoppurinn var sýnd-
ur á vertíð 1916. Nokkru síðar fór
Bjarni Björnsson alfarinn frá Eyjum
til Reykjavíkur og svo vestur um
haf, svo sem getið er í sérstökum
þætti um hann hér í ritinu.
Á vertíð 1918 segir blaðið Skeggi
frá því, að Kvenfélagið Líkn hafi
sýnt leikritið „Syndir annarra" eftir
Einar H. Kvaran. Leikritið fékk yfir-
leitt góða dóma almennings en þótti
þó nokkuð þungt og langdregið.
Léku þar m. a. Guðrún Þorgríms-