Blik - 01.05.1965, Blaðsíða 70
68
B L I K
ciers, sem mjög var í tízku hér á
þessum árum. Kvöldvökur Kvenfé-
lagsins þóttu ávallt með afbrigðum
góðar og voru jafnan mjög fjölsótt-
Nýja leikfélagiS
Ár 1922/23 var stofnað hér í bæ
nýtt leikfélag er nefndist Nýja leik-
félagið. Meðlimir þess og stofnend-
ur voru:
Kristinn Ástgeirsson, Miðhusum
Valdimar Ástgeirsson, Litlabæ
Filippus Árnason, Ásgarði
Finnur J. Sigmundsson, Uppsölum
Eyþór Þórarinsson, Sólheimum
Yngvi J. Thorkelsson, Eiðum
Karl Gránz, Karlsbergi
Finnbogi Finnsson, Ishúsinu
Nikolína Jónsdóttir, Hásteinsv. 4
Jónína Jónsdóttir, Steinholti
Lilja Jónsdóttir, Mjölni
Björn Sigurðsson, frá Pétursborg.
Fyrsta verkefni þessa félags var
að sýna leikritið „Almannarómur"
eftir St. Sigurðsson, skólastjóra. Per-
sónur og leikendur:
* A afmælishófi Líknar þótti sjálf-
sagt, að hver einasta félagskona mætti
með maka sinn og jafnvel elztu börnin
sín líka. Hóf þessi voru undantekning-
arlaust hangikjötsveizlur, sem félagskon-
ur sáu um að öllu leyti um allan undir-
búning og framreiðslu. Gárungarnir
kölluðu oft þessar hangikjötsveizlur
Kvenfélagsins „kríkaböll" eða „læra-
böll".
Jafet: Friðfinnur Finnsson
Dr. Hansen: Yngvi J. Thorkels-
son
Tómas járnsmiður: Filippus Árna-
son
Gunnar stúdent: Eyþór Þórarins-
son
Þorlákur: Valdimar Ástgeirsson
Þura gamla: Kristinn Ástgeirsson
Halla: Jónína Jónsdóttir
Sigrún: Sigríður Gísladóttir, Eyj-
arhólum.
Leikritið var sýnt í Gúttó og þótti
yfirleitt takast ágætlega. Kristinn
skilaði hlutverki Þuru gömlu með
ágætum. Þá létu þau ekki sinn hlut
eftir liggja í góðum leik, þau Filipp-
us í Tómasi járnsmið, Jónína í
Höllu konu Jafets, Yngvi í doktorn-
um o. fl. I heild hlaut leikritið beztu
dóma almennings og þótti félagið
fara vel af stað. Félagið var mjög
heppið í vali verkefna, þó að ekki
yrðu þau tekin til meðferðar. Mætti
geta leikritanna „Ævintýri í Rosen-
borgargarði", sem Kvenfélagið Líkn
fékk hjá félaginu og sýndi 1929 við
ágæta dóma, og leikritsins „Dreng-
urinn minn" eftir L. Aronge, sem
L. V. fékk en sýndi þó aldrei. Ekki
veit ég ástæðuna fyrir því, að leik-
ritið var ekki og hefur enn ekki ver-
ið sýnt hér. Hefur félögunum senni-
lega vaxið erfiðleikarnir á hlut-
verkaskipaninni í augum.
Annað verkefni Nýja leikfélags-
ins var leikritið „Nei-ið" eftir Hei-
berg eða Hringjarinn frá Grenaa,
eins og það hefur löngum verið