Blik - 01.05.1965, Page 76
74
B L I K
ÆVINTÝRIÐ í RÓSINBORGARGARÐI 1928—1929-
Leikendur i Ævintýrinu í Rúsinborgargartíi, leikið 1928—1929. — Frá vinstri:
Margrét ]. Johnsen, Suðurgarði; Tómas ]óhannsson frá Reykjavik; Bergþóra Arna-
dóttir frá Grund; Hjálmar Eiríksson frá Végamótum; Arni Arnason frá Grund;
Ragnheiður Jónsdóttir frá Brautarholti; Stefán Arnason, lögregluþjónn; Agústa
Eymundsdóttir, Hóli. — Börn, talin frá vinstri: Asa Þórhallsdóttir; Berta Gísladóttir
og Elísabet Linnet. — Leikstjóri var 'lngibjörg Olafsdóttir, símstöðinni.
leiksýningar fara úr hendi. Fyrsr og
fremst eru leikritin valin með tilliti
til húsrýmisins og helzt tekin til
meðferðar leikrit, sem hafa óbrot-
inn og fyrirferðalítinn leiksviðsút-
búnað. I öðru lagi njóta leikendur
sín ekki á jafn litlu og óhentugu
leiksviði, sem er hér. Ævintýrið í
Rosenborgargarði er nokkuð erfitt
með köflum fyrir leikendurna. Sam-
tal þeirra Humlegaard, (Hj. Eir.) og
Fellmark, (T. Jóhannss:), í byrjun
leiksins er hálf leiðinlegt frá höf-
undarins hendi. Séu setningarnar illa
sagðar eða leikendur kunna miður
vel, eins og kom hér fyrir, þá er sá
kafli leikritsins drepleiðinlegur.
Sönglögin í leik þessum eru ekki öll
sem bezt, sum þunglamaleg og illa
sönghæf. Yfirleitt var meðferð hlut-
verkanna mjög sæmileg. En bezt
mun fólki hafa þótt takast hjá þeim
Winter, (St. Arnasyni), frú Sommer,
(Agústu Eymundsdóttur), Stínu
(Ragnheiði Jónsdóttur, Brautarholti)
✓ /
og Pétri, (Arna Arnasyni), enda eru
hlutverk þeirra skemmtilegust. Þær
glompur, sem á urðu í leiknum, má