Blik - 01.05.1965, Page 80
78
B L I K
Ingvi Þorkelsson
Yngvi Þorkelsson.
Hér birtir Blik mynd af hagleiks- og
leikhússmanninum Yngva Þorkelssyni,
Véstmannaeying, sem getið hefur sér
frœgðarorð í Ameríku fyrir mikið starf
og listrcent í þágu leiklistarinnar. Yngvi
fann sjálfan sig í þeim efnum, ef svo
mcetti segja, á leiksviði L. V ■ í Vest-
mannaeyjum. Yngvi Þorkelsson fceddist
í Reykjavik en ólst upp í Véstmannaeyj-
um, sonur Þorkels Olafssonar og Jó-
hönnu Guðmundsdóttur.
Yngvi fór vestur til Seattle á Kyrra-
hafsströnd vorið 1926, en áður hafði
hann dvalizt nokkra mánuði í Kanada
og m. a. lagt þar stund á enskunám. A
Kyrrahafsströndinni varði hann öllum
tómstundum sínum til náms, en vann
annars öll störf, sem buðust. Honum var
leiklistin ríkust í huga.
Arið 1928 keypti hann sér einka-
kennslu í framsögu og leiklist. Síðan lá
leið hans á amerísk leiksvið. Jafnframt
leikstarfinu í amerískum leikhúsum
starfaði Yngvi mikið í félagslífi landa
sinna þar vestra. I einu Vesturheims-
blaðinu segir um þennan Vestmannaey-
ing: Hann nýtur mikilla vinscelda í stöðu
sinni og starfi. Það stafar ekki aðeins af
hugkvcemni hans og fjölhcefni í öllu,
sem lýtur að leiklist, leiksviðsgerð, leik-
aragervum og margþcettum öðrum und-
irbúningi leiksýninganna, heldur og
ekki sízt persónan sjálf, sérstök prúð-
mennska og jafnvcegi í skapgerð. Sjálfur
er hann góður leikari.
Yngvi stundaði nám í 4 ár við lista-
háskólann The Comich School í Seattle,
sem þá var talinn einna beztur sinnar
tegundar í Ameríku. Þaðan útskrifaðist
hann í júní 1933 með þann vitnisburð,
að hann teldist fjölhcefasti nemandi skól-
ans. Hann hlaut hcestu einkunn í leiklist
1932, og styrki hlaut hann úr tveim sjóð-
ans. Hann hlaut hcestu einkunn í leiklist
Jóhanna, móðir Yngva, var hálfsystir
Friðriks Guðr dssonar, hins góð-
kunna verkamanns hér í Batavíu.
Bliki finnst rétt að geta Yngva Þor-
kellssonar með þessum orðum hins am-
eríska blaðs. Ungur Vestmannaeyingur
fer allslaus út í hinn stóra heim og get-
ur sér þar frcegðar og frama.