Blik - 01.05.1965, Síða 114
Árni Árnason:
UM HUMBALDX
Hann var vestan við sölubúðina í
Garðinum þ. e. Austurbúðina svo-
nefndu. Þar var vörugeymsluhús og
alltaf nefnt Kumbaldi. Var húsið
þar, sem áður stóðu Salthúsið, Kað-
alhúsið og vörugeymsluhús sunnan
við Kaðalhúsið.
(Sjá líkanið af Skanzinum í
Byggðarsaf ninu).
Salthúsið, sem var nyrzt, var
byggt 1835 og var stærð þess 22x
18,5 alin og hæð undir bita 3,5 alin,
það var úr timbri og klætt að innan.
Þar fengu þeir menn sig afgreidda,
er lögðu inn blautfisk í Garðinum.
Kumbaldi var byggður utan um
þetta hús. Kaðalhúsið var byggt úr
timbri 9x6 alin og stóð þétt sunnan
við Salthúsið. I húsinu var timbur-
gólf. Það var notað undir salt og til
verkunar á fiski. Geymsluhúsið var
svo sunnan við Kaðalhúsið og var
úr timbri 13x5,5 alin að stærð, en
314 alin á hæð. Það var byggt 1837.
Það var notað fyrir salt og fisk.
Sölubúðin nýja þ. e. Austurbúðin
var byggð 1880 úr höggnu móbergi
og var annað stærsta hús í Eyjum.
Aðeins Landakirkja var stærri.
Kombaldi hefur að mestu verið
byggður utan um Salthúsið, Kaðal-
húsið og geymsluhúsið. Kumbalda
er lýst 1904 af þeim Gísla Lárussyni
og Sigurði Sigfinnssyni. Þykir hlýða
að taka hér upp brot úr þeirri lýs-
ingu, þar sem Kumbaldi kemur
mjög við sögu skemmtanalífs í Eyj-
um og var um árabil ásamt húsun-
um tveim, sem inni í því voru eftir
sambygginguna, aðalleikhús Eyj-
anna, verzlun og danshús. Lýsing
þessi hljóðar svo: „Húsið var fisk- og
salthús, mjög einkennilegur kumb-
aldi, sem naumast á sinn líka á land-
inu, eða sem hægt sé að lýsa nema í
löngu máli. Það er 29 álnir á breidd,
2814 alin á lengd. Veggjahæð 4—
AVz álnir. Gaflar, þak og suður-
veggur er járnvarið utan. Á vestur-
gafli eru tvennar dyr með hurðum
negldum fyrir og í gluggum með
2—4 rúðum hver af ýmissi stærð.
Á austurgafli eru þrennar dyr með
læstum hurðum og 9 gluggar með
1 til 4 rúðum af ýmissi stærð, sem
líkjast hesthús-, lambhús-, fjós- og
salernisgluggum. Suðurhliðin á þak-
inu er breið og brött, eins og á kon-