Blik - 01.05.1965, Síða 160
158
B L I K
vél, baðherbergi o. fl. í útbyggingu
til norðurs salerni og gangurinn
milli þeirra og húss þakinn og lok-
aður að vestan.
Uppi í þakinu er hægt að koma
töluverðum herbergjum fyrir til mat-
reiðslukennslu handa stúlkubörnum,
— eru venjulega höfð uppi undir
þaki vegna dauns og gufu. — En
bæði mun nú þykja ef til vill óþarf-
lega mikið ílagt að hugsa fyrir svo
mörgu og miklu og svo sýnist mér
að komast muni mega af með minna.
En eigi skólinn að rúma 200 börn
og vera til frambúðar, þá ætti hann
ekki að vera öllu minni, ef efni
leyfðu.
Stofurnar mega sama sem ekkert
minnka, og stigar, gangur, kennara-
stofa og áhaldaherbergi varla heldur
að neinu ráði...
En eftir því sem ég skildi yður,
er þetta hús of dýrt, og býst ég þá
naumast við, að það verði nokkurn
tíma byggt. Það kostar, að ég hygg,
að öllu fullgert og notkunarfært um
42 þúsund (41—43 þús. eftir því,
hve vandað er), þar í miðstöðvarhit-
un upp á 4—5 þúsundir króna.
Þá sýnist mér ekki hægt að gera
húsið einfaldara eða minna en það
sem sýnt er á hinu blaðinu, en það
hefur aðeins 6 kennslustofur handa
30 börnum hverja eða alls 180
barna rúm. Þó að æskilegt sé eða
kunni að vera að hafa misstórar
stofur, held ég nú fyrir mitt leyti, að
fullt eins hentugt sé að hafa þær
allar jafnar að stærð, og þar sem um
er að gera að rúma sem mest í sem
minnstu húsi, getur það orðið drýgst.
Enda sést varla í stórum skólum
annað en nokkurn veginn jafnstórar
stofur.
Þér sjáið, að stofurnar eru í þessu
húsi mjórri og lengri en í hinu. Þær
eru sem sé miklu betri upp á birtuna
með því móti, að þær rúmi aðeins
tvær raðir tveggja barna borða á
breiddina heldur en þrjár, því að
birtumagnið þverr miklu meir en í
beinu hlutfalli við fjarlægðina frá
Ijósgjafanum eða gluggunum. Einn-
ig betra yfirlit frá kennarasætinu ...
Hús þetta er að utanmáli 37 Va
alin x 1314 al. I kjallara eru handa-
vinnustofa og svo herbergi svipuð
og í hinu. Á hvorri hæð þrjár 30
barna stofur; á þaklofti ekkert. Ég
skil varla, að þetta hús megi ekki
duga. Svo er hér hægt að komast af
með 6 kennara, sem ég hygg að
hljóti að vera fullmikið í ekki stærra
plássi.
Mér telst svo til, að hús þetta
kosti 28—30 þúsundir.
I báðum húsunum hef ég gert ráð
fyrri gólfum öllum ofan kjallara úr
timbri, 1 Vi þumlungs gólfborðum,
neðan á bitum 1 þm. borðum og
reyrvef og kalkhúð, nema í forstof-
unni. í þeim hef ég áætlað alla palla
og stiga úr járnskotinni steinsteypu.
Veggir allir úr steinsteypu, húðaðir
utan með sementi og þéttiefni í,
innan jarðbikaðir og með kalkhúð,
en neðan til á veggjunum sé helzt
brjóstþil til hlífðar, húðinni hættara
við að sprákast af misjöfnum um-
gangi í stigum og göngum. Nær-