Blik - 01.05.1965, Blaðsíða 169
B L I K
167
irbrigði, að börn þekktu ekki staf-
ina, er þau komu í skólana og því
síður kunnu þau að draga til stafs
eða fara með tölur. Heimilin, eða
foreldrarnir og aðrir aðstandendur
barnanna, voru þá í ríkum mæli tek-
in að velta áhyggjum sínum og
skyldum af þessum þætti uppeldis-
starfsins á skólakennarana.
Síðla árs 1917 sendi fræðslumála-
stjóri umburðarbréf um landið varð-
andi þessa vanrækslu heimilanna.
Bréfið var sent prestum, skólanefnd-
um og kennurum. Efni bréfsins var
á þessa leið:
1. Hve mörg heimili í yðar
fræðsluhéraði, skólahéraði eða
prestakalli teljið þér elcki fær um að
veita börnum þá fræðslu, sem ætlazt
er til af 14 ára börnum til fullnaðar-
prófs, annað hvort sakir vankunn-
áttu, vanefna eða af öðrum ástæð-
um?
2. Hve mörg heimili teljið þér
af sömu ástæðum ekki fær um að
kenna börnum það, sem þeim er
gert að skyldu að kunna með nú-
gildandi fræðslulögum?
3. Viljið þér láta færa skólaskyld-
una frá barnsaldrinum til aldursins
16—20 ára? Og hve margar vikur á
þeim árum teljið þér þá hæfilegt að
skylda hvern nemanda til skóla-
náms.
4. Hverja teljið þér verstu galla
á því fyrirkomulagi, sem nú er á
barnafræðslunni, og á hvern veg
ætlið þér, að bætt verði úr þeim?
Skólanefndarformaður boðaði til
sameiginlegs fundar með kennurum
og skólastjóra barnaskólans, sóknar-
prestinum og nefndarmönnunum.
Kennararnir, skólastjóri og 4
skólanefndarmennirnir samþykktu
einróma þessi svör við spurningun-
um:
„1. Yfirleitt geta heimilin ekki
tekið að sér fræðsluna á þessum
aldri.
2. Sama svar og við 1. spurningu.
3. Nei.
4. Vér teljum sjálfsagt að gera
skarpari greinarmun en nú er á
fræðslufyrirkomulagi í kauptúnum
og sveitum.
I eftirfarandi svörum og tillögum
göngum vér út frá fyrrirkomulagi í
kauptúnum:
Vér teljum rétt að færa skóla-
skylduna niður að 8. ári. Skólinn
standi a. m. k. 7 mánuði. Skólaskyld-
um börnum í hverju kauptúni sé
skipt í 3 flokka, þ. e. 8—10 ára, 11
— 12 ára, 13 —14 ára. Yngsti flokk-
urinn sæki skóla 2 tíma á dag, ann-
ar flokkurinn 3 tíma og þriðji flokk-
urinn 4—5 tíma. I kauptúnunum
skulu unglingar eldri en 14 ára, þ. e.
a. s. á aldrinum 14—18 ára skyldir
til að ganga í framhaldsskóla a. m. k.
3 mánuði á ári í 2 ár á fyrrgreind-
um aldri (14—18 ára). Þó geti
kennarar og prófdómarar í samráði
veitt gáfnasljóvum unglingum und-
anþágu frá því.
Launa- og ráðningakjör kennara
verði bætt svo, að þjóðfélagið geti
tryggt sér menntaða og vel hæfa
kennara, sem haft geti kennarastarf
að aðalstarfi. Núverandi launa- og