Blik - 01.05.1965, Síða 185
B L I K
183
eða haustið 1925. Þar fékk Björn H.
Jónsson kennarastöðu við barna-
skólann. Jafnframt var hann skóla-
stjóri iðnskólans.
Isfirzkir forustumenn í fræðslu-
og félagsmálum lærðu brátt að
meta hæfileika Björns, starfshæfni
hans og drengskap, dugnað hans og
gáfur.
Arið 1930 varð Björn skólastjóri
barnaskóla Isafjarðar. Þeirri stöðu
gegndi hann við góðan orðstír í
27 ár.
Mörg trúnaðarstörf hlóðust á
Björn skólastjóra þau ár, er hann
dvaldist á Isafirði. Hann var þar um
árabil yfirskattanefndarmaður, var
í sáttanefnd, vann mikið í félags-
lífi í kaupstaðnum, var sáttasemjari
í vinnudeilum og í barnaverndar-
nefnd um aldarfjórðungsskeið.
Um árabil var Björn skólastjóri for-
ustumaður í félagssamtökum vest-
firzkra kennara.
Frú Jónína G. Þórhallsdóttir,
kona Björns skólastjóra gerðist
kennari við barnaskóla Isafjarðar
1925 og var það í mörg ár.
Ég hygg, að allt of fáir geri sér
fulla grein fyrir því, hve ríkan þátt
mikilhæg og góð eiginkona getur
átt og á iðulega í mikilvægu og
vandasömu starfi eiginmanns síns.
Þannig var þessu varið með frú Jón-
ínu konu Björns skólastjóra. Vissu-
lega var hún ávallt hægri hönd
manns síns í vissum skilningi. Ná-
kunnugur segir mér: „Hún var
verndarandi heimilisins, sem helzt
engin orð fá skilgreint, — ævinlega
reiðubúin til að fórna sér fyrir börn-
in sín og heimilið, — þrekmikil,
fastlynd og réttsýn, — mikilhæf
kona og heilsteypt, hagsýn og mynd-
arleg."
Heimili þessara skólastjórahjóna
á Isafirði var bæði kærleiksríkt og
áhrifaríkt menningarheimili, þar
sem ríkti friður og göfgi og haft var
yndi af söng og Ijóðum og öðrum
þjóðlegum andans auði. Allt heim-
ilið bar vott um ríkt fegurðarskyn
hjónanna, smekkvísi og háttprýði.
Árið 1957 sagði Björn skóla-
stjóri lausri stöðu sinni á Isafirði.
Þá var líkamsheilsu hans og starfs-
orku tekið að hraka.
Skólastjórafjölskyldan fluttist þá
til Reykjavíkur. Þar dreifði Björn
skólastjóri tímanum við ýmislegt
þjóðlegt grúsk, og þá helzt ættfræði.
Hann hélt hins vegar andlegri heilsu
og þrótti til hinztu stundar.
Björn H. Jónsson, skólastjóri,
lézt í Reykjavík 4. júní 1962, 74
ára. Frú Jónína G. Þorsteinsdóttir
lifir mann sinn og á heimili sitt í
Silfurtúni í Garðahreppi.
Börn skólastjórahjónanna: Olafur
læknir á Hellu, f. 14/11 1915;
Svava, f. 2/12 1921; Jón rafvirki,
f. 3/8 1924, — látinn; Haraldur, f.
4/8 1926, verkam. á Keflavíkur-
flugvelli.
(Heimildir: Fundargerðir skóla-
nefndar Vestmannaeyja; ýmsir Eyja-
búar, fyrrv. nemendur skólastjóra-
hjónanna, — ísfirzkir vinir þeirra
og velunnarar; Isl. kennaratal; ná-
komnir ættingjar). Þ. Þ. V.