Blik - 01.05.1965, Page 198
GIDEON
Hannes lóðs.
(Einn kunnasti formaður hér á
síðari hluta 19. aldar, var Hannes
Jónsson frá Miðhúsum, — um tugi
ára hafnsögumaður hér. Blik hefur
áður minnzt Hannesar en þó ekki
svo sem efni standa tii.
Hannes hóf að stunda sjó á sumr-
um, 11 ára gamall og byrjaði for-
mennsku á áttæringnum Gideon 17
ára. Þeir urðu frægir saman, hvor
af öðrum. Gideon var smíðaður að
Kirkjulandi í Landeyjum. Aðalsmið-
urinn var Hjörleifur Kortsson frá
Miðgrund undir Eyjafjöllum.
Hér birtum við fróðlega grein
eftir Hannes Jónsson um stóru ára-
skipin, vetrarútgerð þeirra, afla-
hluti o. fl.
Mig minnir að ég hafi einhvers
staðar séð þess getið, að Jóhann Þ.
Jósefsson hafi átt upptökin að því,
að Hannes skrifaði þessa grein. Ef
til vill hefur hún birzt áður einhvers
staðar (en er þess verð að geymatt
í Bliki, sem mörg önnur söguleg
heimild).
Hannes Jónsson:
Gideon var talinn með stærstu átt-
æringum um sína daga, hálfrar
þrettándu álnar langur á kjöl, en
hálf sextánda alin milli stafna; sjö
og hálfrar álnar breiður og hálf önn-
ur alin á dýpt undir hástokka; árar
voru langar, fullar níu álnir og
þriggja þumlunga breið blöðin.
Bátur þessi var smíðaður í Land-
eyjum, og þegar hann var tilbúinn,
færðu Landeyingar hann til Eyja.
Gekk þeim vel „út", en miður til
lands aftur, því að gæftir voru svo
stirðar, að þeir urðu að bíða byrjar í
13 vikur. Mundi slíkt þykja ekki lið-
legar samgöngur nú, en við þetta
urðum við að búa, sem nú erum
orðnir gamlir, og munum þó varla
hafa verið miklu óánægðari og van-
þakklátari við Guð og menn, en nú
gerist meðal þeirra, sem yngri eru