Blik - 01.05.1965, Page 215
B L I K
213
staklega vel í vonbrigðum og raun-
um hennar, já, eins og skilningsrík
og ástúðleg móðir.
Vorið 1896 afréð Magnúsína að
leita sér atvinnu á Austfjörðum
þrátt fyrir það, að hún fór ekki ein
saman. Þar dvaldist hún síðan fram-
eftir sumri en fór suður aftur síðari
hluta ágústmánaðar og ól barn sitt
fyrri hluta septembermánaðar, eins
og á er drepið. Húsmóðir hennar
beitti nú myndugleik sínum og
áhrifaaðstöðu og útvegaði barni því,
er Magnúsína ól, varanlegt fóstur
með samþykki móðurinnar, sem
engar hafði aðstæður til að hafa
barnið hjá sér eða ala það upp.
Barninu var komið fyrir hjá hinum
kunnu gæðahjónum í Gerði, Jóni
Jónssyni og Guðbjörgu Björnsdótt-
ur. Þangað var Magnús Tómasson
fluttur þriggja vikna gamall og þar
ólst hann upp.
Sumarið eftir (1897) hittum við
Magnúsínu aftur í kaupavinnu á
Austfjörðum, og nú á Seyðisfirði.
Eftir þessa dvöl hennar hjá fjöl-
skyldunni í Frydendal, hélzt um
tugi ára góðvildarsamband milli
sumra barna frú Sigríðar og Magnús-
ínu. Þau töldu sig eiga henni gott
upp að inna, síðan hún vann hjá
móður þeirra og gætti barna hennar
eða annaðist þau. Þannig komst ég
eitt sinn að því af tilviljun, að Gísli
J. Johnsen sendi Magnúsínu dálitla
peningaupphæð árlega, eftir að
skyggja tók í álinn fyrir henni á
Austfjörðum og ástvinamissir og fá-
tækt steðjuðu að henni. Eg vona,
Oktovía Björnsdóttir á bernskuskeiði.
að G. J. J. afsaki það, þó að ég geti
þessarar staðreyndar hér án leyfis.
Fyrir aldamótin giftist Magnúsína
Jóni Jónssyni úr Mjóafirði. Þau
hjón eignuðust þrjú börn. Eitt þeirra
misstu þau þegar eftir fæðingu, tví-
bura, stúlkubarn.
Eftir fá hjónabandsár missti
Magnúsína Jón mann sinn. Hann
drukknaði af árabáti með Jóni Kon-
ráðssyni kaupm. Hjálmarssonar.
I fátækt sinni og umkomuleysi
hafði ekkjan tveim sonum þeirra
fyrir að sjá, Hermanni Viktor og
Jóhanni. Meðan þeir voru ungir og
að vaxa úr grasi sótti Magnúsína
stundum atvinnu á vertíðum hing-
að til Vestmannaeyja og naut þá oft