Blik - 01.05.1965, Page 218
Sparisjóður
Vestmannaeyja
ilfffl
mm
Við seljum ekki frumburðarrétt Eyjabúa
fyrir nokkra baunadiska
Hér birtum við nokkrar tölur úr reikningum Sparisjóðs Vestmannaeyja:
Skuldir
Sparifé og Aðrar
Aðrar eign. ávísanafé skuldir
4.772.948,75 20.066.371,06 1.181.090,68
9.213.408,12 27.963.172,32 3.871.388,42
Eignir
31. des. Bundiðféí
ár Víxlaeign Seðlabanka
1963 13.266.629,99 3.207.883,00
1964 17.871.604,62 4.749.548,00
Ef rétt er ályktað af skýrslum,
sem fjalla um bankamál og önnur
fjármál hér á landi þessi árin, hef-
ur engin fjármálastofnun í landinu
tekið öðrum eins vexti og Sparisjóð-
ur Vestmannaeyja s.I. þrjú ár. Ymis-
legt hefur skotið stoðum undir þá
öru þróun og þann mikla vöxt. Það
var sem við manninn mælt, er
Sparisjóðurinn flutti í eigið hús í
júlí 1962. Sparifé tók að streyma
inn í stofnunina, og þjónusta henn-
ar við Eyjabúa óx að sama skapi.
Það var sem bæjarbúar í heild hefðu
snögglega uppgötvað þá staðreynd,
sem þó hafði blasað við þeim í hart-
nær 20 ár, að þessa stofnun áttu
þeir og gátu vissulega notið tilveru
hennar nákvæmlega í sama mæli og
þeir ræktu hana, sýndu henni traust
með því að geyma í henni sparifé
sitt, og hlynntu að henni á ýmsan
annan hátt. Þetta hafa nú Eyjabúar
gert eins og tölur reikninganna bera
órækt vitni um. Þeir höfðu aðeins
beðið þess, að Sparisjóðurinn eign-
aðist eigið hús, sem samrýmdist
starfseminni.
Sparisjóður Vestmannaeyja er
vissulega fjárhagslegt sjálfstæðismál
allra Vestmannaeyinga. Það verður
hann svo lengi sem Vestmannaeying-
ar sjálfir ráða honum. Geri ábyrgð-
armenn hans hins vegar nokkurn
tíma það regin-axarskaft að afhenda
hann til yfirráða einhverju aðskota-