Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Blaðsíða 91
89
Pingeyrar. Á sjúkrahúsinu hafa verið gerðar allmiklar umbætur á
þessu ári. Heíir i'arið fram gagngerð viðgerð á öllum sjúkrastofum og'
skurðstofu. Má húsið teljast í góðu ásigkomulagi. Af lausamunum var
keypt nýtt skurðborð og ýms rannsóknartæki, sem nútíminn heimtar.
Ljóslækningar eru meira og' meira notaðar með liverju ári.
Flateyrar. Sólskýlið i Súgandafirði starfaði eins og að undanförnu.
Þátttakendur (>f>, þar al' 17 fullorðnir. Bókfærð voru (>2ö sólböð. Það
mun töluvert liafa dregið úr þátttöku í sólböðunum, að sundlaug
með sólskýli var fullgerð í júlímánuði, og varð þegar mikil aðsókn
að henni, einkum af unglingum kauptúnsins. Börn liinna áhugasömu
fjölskyldna stunduðu sólböð betur nú en nokkru sinni áður. Flest
börnin fengu um 20 sólböð.
Hóls. Sjúkraskýlissjóðurinn .er nú orðinn ca. 2(5 þús. kr.
Ógur. Læknisbústaður var iiyggður á árinu að Ögri; er það vandað
hús úr steinsteypu, raflýst og með miðstöðvarhitun; 2 herbergi eru
ætluð handa sjúklingum.
Regkjarfj. Tvær stofur í læknisbústaðnum, sem ætlaðar eru fyrir
sjúklinga, voru ekki notaðar. Eg hafði sólríka og góða stoí’u í minni
íbúð, notaði hana ekkert til heimilisþarfa og lét sjúklinga þar, vegna
þess að þeir æsldu þess heldur. Á árinu dvöldu 7 sjúklingar lijá mér;
voru þeir frá viku og' upp í (5 vikur. Sjúkraskýlið eða læknisbú-
staðurinn er mjög óheppilega innréttað; sjúkrastofurnar tyær á
neðstu liæð taka báðar ca. 8 sjúklinga; skýlið raunverulega allt of
stórt. Læknir sefur á efstu hæð - húsið er 3 liæðir — og sjúklingar
vilja ógjarna dvelja á neðstu hæð, þar eð hjúkrunarkona er engin.
Mér virðist staður læknisbústaðar í alla staði mjög óheppilega valinn,
bæði vegná héraðsbúa og læknis. Læknir í raun og veru mjög ein-
angraður þarna frá skipapraxis á sumrum; út yfir tekur þó, hve allir
aðflutningar þungavöru - kola, olíu o. s. frv. -- eru dýrir og óþægi-
legir. Ennfremur virðist það einkennileg ráðstöfun, rökleysa og vifla
lijá viðkomandi stjórnarvöldum að reisa bústað héraðslæknis í þeirri
trú og með þeim forsendum, að læknir muni setja saman bú, en liafa
jafnframt láðst að byggja nokkurt skýli yfir gripi, t. d. kýr eða hesla.
Hefði gjarna mátt sníða nokkuð af sjúkraskýlinu í þágu nauðsynleg-
ustu þarfa læknisins.
Hólmavikur. í sambandi við sjúkrahúsið voru sólhöð notuð til lækn-
inga, enda er óvenju sólríkt hér á Hólmavík á sumrin, þó að kvartað
sé um sólarleysi annarsstaðar.
Miðfj. Aðsókn að sjúkrahúsinu heldur minni þetta ár en árið áður.
Hjúkrunarkona Mérgrél Halldórsdóttir gal' kr. (5000,00 til sjóðstofn-
unar til styrktar fátækum sjúklingum á sjúkrahúsinu á Hvammstanga.
Tekur sjóðurinn til starfa snemma á árinu 1934. 18 sjúklingar nutu
ljóslækninga á árinu, 8 af þeim voru á sjúkrahúsinu en 10 utan þess.
Blönduós. Sjúkrahúsið hér hefir orðið héraðinu dýrt og er þó að
ýmsu levli mjög ófullkomið. Bezt er skurðarstofan, sem er vel sæmi-
leg og heíir skurðarborð ágætt, enda kostaði það um eða yíir 1000
krónur.
Sauðárkróks. A sjúkralnisinu var gerð sú breyting, að byggt var
sérstakt líkhús við það, en áður hafði kjallari verið notaður lil þess.
12