Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Blaðsíða 99
97
í sambandi \ið skólaskoðanirnar. Hér skal tilfærður einn atburður,
er fyrir mig i)ar: Dag nokkurn* snemma morguns, kom ég að bæ
einum. Bæjarveggir eru úr torfi og grjóti. Er inn kom, var enginn
kominn á fætur nema húsmóðir og maður liennar, en 5 krakkar, á
aldrinum frá 3- 12 ára, voru ekki klæddir. Baðstofan er 8 X 4 álnir
að stærð, vegghæð ca. 2 álnir og' rishæð ca. llh alin. 2 rúm voru í
baðstofunni, og í þeim lágu 3 krakkar, en á gólíi sváfu 2 krakkar í
llatsæng. Rúmfatnaður þeirra var mjög lélegur. Þau lágu á hálmdýnu-
garmi, og ofan á sér höfðu þau ónýta fataræfla. Rúmin virtust mér
útbúin á svipaðan hátt; ekkert lak sá ég, en í hvoru rúmi var ver-
laus koddi og yfirsæng. I öðrum euda baðstofimnar var eidavél, sem
á var eldaður allur matur. Enginn stóll, lílið borð undir glugga og
smákoffort við annan enda þess. Lítill 6-rúðu gluggi á norðvestur-
stafni, en tvær rúður voru brotnar, og var poka troðið upp í. Hús-
bóndinn er grunsamfegur um berklaveiki í lungum. Konan og börnin
eru ennþá heilbrigð. Þannig feit út á þessum bæ. Við húsakynni, lík
þessu, eiga ótrúlega margir að búa, og það er áreiðanlegt, að svona
mannabústaðir eru miklu fleiri lil en margur liyggur. I Stykkishólmi
eru liúsakynni manna sæmileg. Fólk býr nokkuð rúmt; í mörgum
húsum eru miðstöðvar, og í flestum er rafmagu. Hér er enginn toi'f-
bær og hvergi íbúð I kjallara. Nokkur vandræði eru hér vegna erfið-
leika við að ná I gotl vatn; brunnar eru eingöngu notaðir. Eru sumir
þeirra allgóðir og umgengni um þá góð. Fyrir nokkru beitti ég mér
fvrir því, að hér yrði komið á sorp- og salernahreinsun. Hvað gert
verður er enn óvíst. I engu húsi er hér vatnssalerni; flestir hafa kagga-
salerni.
Olafsvíkur. Fremur lítið hefir verið unnið að húsabyggingum þetta
ár. Nýbyggð lnis eru flest úr steinsteypu og með nýtízku þægindum.
Þrifnaður fer í vöxt með liverju ári. Neyzluvatn er víðast sæmifega
gott, sumstaðar ágætt, en vatnsleiðsla óvíða nema í Olafsvík. Salerni
vanta á mörgum heimilum. Rafmagn er aðeins notað á 2 heimilum,
á öðru til ljósa og hitunar, en á hinu aðeins lil ljósa.
Dala. Lítið um nýbyggingar. Helzt byggt úr timbri og járni. Lítur
út fyrir, að menn séu orðnir hræddir við að byggja úr steinsteypu.
Flest af steinhúsunum, sem hér liafa verið byggð undanfarið, eru að
ýrnsu leyti verri til íbúðar en sæmilegir torfbæir, auðvitað af því, að
þau voru af vanþekkingu og vanefnum gerð. Einhver mesti agnúinn
á þrifnaðarmálum hér í sveitum er salernaleysið. Væri óskandi, að
lög um það efni gengju sem fyrst í gildi, svo að maður gæti þá
gengið í skrokk á hreppsnefndunum og heimtað framkvæmdir í mál-
inu. Hirðingu á kúm og umgengni í fjósum er víða æði ábótavant.
Fjósin venjulega allt of þröng og dimrn, og það sem verst er og
hættulegast er, að þau eru víða notuð lyrir salerni.
Reylchóla. Lítið gert að húsabótum og húsbyggingum á árinu; eru
húsakynni víða slæm. Þrifnaður er aftur á móti víðast í góðu lagi.
Bíldudals. Húsakynni eru sæmileg, bæði i kauptúninu og í sveit-
unum. Tvö steinhús liafa verið Ityggð í Bíldudal. í báðum er mið-
stöðvarhitun, raflýsing og vatnsveita og í öðru bað. Þrifnaður víðast
viðunandi.
13