Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1933, Page 115
113
hefir öll verið gerilsneydd, sett á ílöskur og lllutt heim til neytend-
anna fyrir 25 aura pr. líter.
Höfðahverfis. Dáh'til mjólkursala liefir verið hér manna á milli,
einkum úr sveitinni til þurrabúðarfólks hér í Grenivík, sem er fátt.
En í fyrsta sinn var héðan seld mjólk frá fi heimilum beint til Akur-
eyrar í Mjólkursamlag Kaupfélags Eyfirðinga, annan Iivern dag. Fólkið
á heimilum þessum er luaust og enginn berklaveikur eða grunaður
um berklaveiki. Fjósin eru víðast dimm og Jn’ggð úr torli og grjóti,
nema á tveimur bæjum, en vænta má þess, að fjósin verði smátt og
smátt reist að nýju, þar sem nautgripum fjölgar ört, einmitt með
mjólkursöluna fyrir augum. Einhver misbrestur var þó á meðferð
mjólkurinnar í J>yrjun hvað meðferð snerti, því að við rannsókn
reyndist hún ekki fyrsta flokks vara. En Samlagið gaf bændum leið-
l)einingar um meðferð mjólkurinnar, og lagfærðist þetta þá. A þessum
mjólkursölustððum er víst ekki sérstakt salerni á einum einasta bæ
og fjósin því notuð sem salerni, og er það auðvitað hin mesta óhæfa.
Þegar innansveitargesti ber að garði og þurfa salernis við, þá er óskað
eftir að fá að fara í fjós, og er það fast orðatiltæki hér í sveil og ef
til vill víðar.
Reykdœla. Nokkur lieimili í Reykjadal selja mjólk í Laugaskóla.
A engum þeirra bæja hefir verið berklaveiki, íié heldur er grunur
um sjúklinga þar nú. Þetta eru allt einstök þrifnaðarheimili, en fjósin
llest upp á »gamla móðinn« og sumsstaðar notuð sem salerni.
Vopnafj. Engin mjólkursala á sér stað frá sveitinni til kauptúnsins.
Kauptúnið hefir nægilega mjólk. I kauptúninu er lieldur ekki um
neina verulega mjólkursölu að ræða. Örfá heimili í kauptúninu fá
að vísu eitthvað af mjólk hjá nágrönnum sínum, en um eiginlega
mjólkurverzlun er hér ekki að ræða.
Hróarstungu. Mjólkursala engin. Salerni sjást varla hér á Héraði.
Eru fjósin almennt notuð.
Seijðisfj. Uni 120 kýr eru í kaupstaðnum og mjólk því nægileg
allan tíma ársins. Þessar 120 kýr eru dreifðar á nær því jafnmörg
heimili; frá þeim flestum er látin hurtu mjólk, seld eða gefin.
Frá heimilum utan kaupstaðarins er engin mjólk seld í bæinn s\o að
teljandi sé. Auðvitað er ekki bægt að lj'sa heilbrigðisástandi á öllum
þessum heimilum, en yíirleitt álít ég þrifnað góðan á þessum heim-
ilum, að einstaka undanteknum, og meðferð mjólkurinnar mun víð-
ast hvar góð. Aðeins á einu heimili, sem hefir kú, mun vera brjóst-
veikur maður, og veit ég ekki til að mjólk sé látin út frá því.
Fjósin eru víða léleg og sum kofar einir. Mikill óþrifnaður stafar
af þessu dreifða kúahaldi um allan bæinn, því að forirnar eru víða
enn ófullkomnar, og á sumrin auka lcýrnar ekki á hreinlætið á
götunum. Alltaf fjölgar þeim liúsum í kaupstaðnum, sem hafa
vatnssalerni, en við hin mun víðast eða allsstaðar vera útikamrar
og' eins á öllmn heimilum utan kaupstaðarins, og þó að þeir séu
ellaust víða óaðgengilegir, býst ég samt við, að þeir séu skárri
en flórinn, þó að mig hins vegar vanti kunnugleika lil að geta
sagt um, hvort hann kunni ekki að vera notaður á stöku stað
sem salerni.
15