Strandapósturinn - 01.06.2009, Page 42

Strandapósturinn - 01.06.2009, Page 42
40 en þar er farið yfir á vesturbakkann. Þar aðeins neðar sést heim að Fornahvammi. Nú stendur aðeins ein bygging þar uppi sem þjónar því hlutverki að vera gangnamannahús fyrir Stafholts- tungnamenn. Upphaflega var húsið byggt sem svínahús. Forni- hvammur á sína sögu eins og aðrir slíkir staðir. Hún verður ekki rakin hér, aðeins stiklað á nokkrum atriðum. Í Jarðabók Árna og Páls segir m.a. um Fornahvamm: „Forne Hvammur, forn eyðijörð. Liggur undir beneficium Hvamm í Norðurárdal. Hefur í auðn verið næstliðin 22 ár. Átján árum þar fyrir (eður um það skeið) var hjer á fornu eyðibóli lítilfjörlig bygð uppreist, en hvað mörg hundruð ár áður hafði það í auðn verið, veit enginn að segja. Þá stund, sem bygðin átti að heita viðhjeldist, lá kotið öðruhvörju í auðn, tvö ár í bili eður lengur.“ Síðar segir svo: „Þessar sakir telja menn til eyðileggíngarinnar: Átroðníng af verfólki mest. Ágángur af fjallpeníngi. Oflángur kirkjuvegur og vetrarríki. Byggja má hjer aftur, ef nokkur þá tvo síðari ókostu þolir, en getur hinum af hrundið.“ Þá er í Jarðabókinni getið um Hlíð og segir svo í Jarðabókinni. „Hlijdarkot, öðru nafni Hvassárhlijd, þriðja nafni Hlijdarende. Nýtt hjáleigutetur. Bygt fyrst í Sveinatúngu landi 1677 þar sem aldei hafði fyrri bygð verið; varaði bygðin í ár alleina, þó ekki fult.“ Þessi bær stóð handan Hvassár. Þar mun hafa verið búið af og til. Í Hlíð ólst upp fræðimaðurinn Sighvatur Grímsson Borg- firðingur en hann ól aldur sinn lengst á Höfða í Dýrafirði. Árið 1831 lét Fjallvegafélagið reisa sæluhús í Fornahvammi. Býli var reist og búseta var tekin upp 1845 en ekki mun það hafa varað samfellt. Talið er að búseta hafi verið samfelld frá 1853 til 1977. Gistiþjónusta er talin byrja þar 1883 og stóð til 1976. Ríkis- sjóður keypti jörðina árið 1926. Þá var reist gistihús í Fornahvammi til öryggis fyrir ferðafólk og það rekið með ríkisstyrk. Jóhann Jónsson frá Galtarholti var þá kominn í Fornahvamm og mun hafa verið þar til 1946. Það ár var svo byggt við húsið, veitingasal- urinn stækkaður og herbergjum komið fyrir á efri hæðinni þar yfir. Þá tekur Páll Sigurðsson við Fornahvammi. Hann varð mjög þekktur bæði sem áætlunarbílstjóri, hótelhaldari og hestamaður. Hann fór frá Fornahvammi 1957 og þá í Varmahlíð í Skagafirði. Þá komu hjónin Gunnar Guðmundsson og Lilja Pálsdóttir að Fornahvammi og voru þau í Fornahvammi til 1970. Auk þess að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.