Strandapósturinn - 01.06.2009, Page 70
68
uðu landið og fóru suður fyrir Kjalarnes allt að Krossanesi, þar
sem Þorvaldur féll og var grafinn að kristnum sið. Mjög líklegt
verður að telja að þessir staðir hafi verið á norðan- og aust-
anverðri Bretoneyju þar sem staðháttum svipar mjög til lýsinga
Grænlendingasögu (P.B.). Sagan getur þess jafnframt að áður
en leiðangur Þorvaldar hélt til baka heim á leið öfluðu þeir sér
vínberja, væntanlega á Vínlandi Leifs.
Ferðum Þorfinns karlsefnis og félaga þeirra hjóna er allvel lýst
í Eiríkssögu rauða og í reynd lítil ástæða til að draga meginefni
þeirrar frásagnar í efa, þó hvergi hafi verið sannað að hann hafi
komist alla leið til Straumfjarðar og dvalið þar allt að þremur
árum og farið nokkurra mánaða ferð að sumri til alla leið vest-
ur til Hóps. Margt bendir til þess að þetta hafi verið mögulegt
tímans vegna og að nauðsynleg siglingatæknileg þekking hafi
verið þeim félögum tiltæk og sjálfsagt verið þeim í blóð borin.
Telja verður því að allar nauðsynlegar forsendur fyrir þessari
löngu ferð Karlsefnis hafi verið til staðar og af þeirri ástæðu ekki
ástæða til að hafna því að ferð hans hafi verið farin og verið í
megindráttum með þeim hætti er Eiríkssaga greinir frá.
Páll Bergþórsson veðurfræðingur hefur lagt fram tilgátur um
hvar dvalarstaðir Leifs, Þorvaldar og Karlsefnis hafi verið, þar
með talin Kjalarnes og Krossanes þar sem Þorvaldur var grafinn.
Ætti því væntanlega með tiltölulega litlum rannsóknum, t.d. með
jarðsjá, að vera hægt að ganga úr skugga um hvort ástæða gæti
verið til að fara í nákvæmar rannsóknir á einum eða fleiri þessara
staða. Ef þeir finnast einn eða fleiri, sem eðli málsins samkvæmt
verður þó að teljast nokkuð óvíst, en engan veginn útilokað, væri
kominn enn frekari sönnun fyrir því að Vínlandsferðirnar hafi
verið farnar og með þeim hætti er Vínlandssögurnar tilgreina.
En hvernig svo sem þessu var varið verður að teljast furðulegt
að Grænlendingasaga segi ekki frá óblíðri veðráttu og vænt-
anlega hörðum og snjóþungum vetri á Nýfundnalandi, eftir
góðviðri sumarsins og haustsins á Vínlandi. Kuldi og snjór hlýtur
að hafa valdið Leifi og félögum talsverðum erfiðleikum og von-
brigðum, þó þeir væru að vísu ýmsu vanir frá Grænlandi. Harður
vetur var auðvitað ekki það sem Vínlandsfararnir leituðu að, eða
bjuggust við eftir góðviðri síðsumarsins og haustsins á Vínlandi.
Þvert á móti ætluðu þeir að leita góðra landkosta, landsvæða