Strandapósturinn - 01.06.2009, Side 79

Strandapósturinn - 01.06.2009, Side 79
77 var að fyrnast yfir málið, að gera þyrfti því betri, varanlegri og samfelldari skil fyrir framtíðina. Ég mun hafa tekið þurrlega undir þessa hugmynd Björns. Ég þurfti ekki langan umhugs- unartíma. Ég hafði engar heimildir og mundi eiginlega ekkert, nema að í lok Akranes-sýningarinnar fórum við bræður með alla vasa fulla af 5 og 10-köllum heim til mín með Einari Hansen í kaffi. Síðan drógum við upp seðlana og vorum lengi að telja. Mig minnir að upphæðin sem við afhentum Einari væri alveg um 5.000 krónur, og ber mér um það saman við blaðafregnir. Annað atriði rifjaðist upp löngu seinna: Nokkur uggur var í okk- ur bræðrum um að leigan fyrir heilt frystihús, undir sýninguna, kynni að höggva djúpt skarð í aðgangseyrinn, hugsanlega gleypa hann allan. Við kunnum ekki við að spyrja um leigufjárhæðina fyrir fram. Svona nokkuð varð bara að koma í ljós síðar, eins og sagt er. Forstjórinn sjálfur, Sturlaugur H. Böðvarsson, létti af okkur öllu stressi og strikaði yfir þetta vafamál með því að borga tífalt inngöngugjald kr. 100 fyrir sjálfan sig. Sýningarkostnaður var því enginn. Það var fyrir áratug eða svo, skömmu fyrir aldamótin, að kunn- ingi Einars Hansen sem heimsótti hann á spítala komst ekki und- an því að taka við möppu nokkurri með blaðaúrklippum. Einar sagðist ekki vita hvað hann ætti við hana að gera. Kunningjanum var vel við Einar og tók því við möppunni en vissi heldur ekki hvað hann átti við hana að gera og tróð henni upp á næsta mann við fyrsta tækifæri. Sá maður var ég. Þarna voru þá komnar allar skjaldbökugreinarnar sem nefndar eru hér að framan bæði og aftan. Þetta eru ljósrit, aðallega úr dagblöðunum. Textinn er víð- ast greinilegur, en myndirnar flestar afleitar og varla nothæfar til birtingar. Ljósritunartækni var enn á lágu stigi á þessum tíma. Ekki hafði ég hugmynd um, frekar en hinir, hvað ég ætti að gera við þessar blaðagreinar, nema að ég sendi Birni bróður ljósrit af pappírunum. Við bræður sáum ekki tilgang í að hnoða saman neinu hugverki úr því hráefni. Hvar ætti það t.d. að birtast? Mappan hefur legið hjá mér síðasta áratuginn. Ég hef oft litið í greinarnar mér til ánægju. Nú bíð ég þess að Héraðsskjalasafn Strandabyggðar líti dagsins ljós, sem kvað ekki vera langt undan? Það yrði væntanlega mitt fyrsta verk að leggja Einars-möppuna þar inn til varðveislu, verði ég þá enn á róli.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.