Strandapósturinn - 01.06.2009, Page 129
127
Lux, hress karl og frekar myndarlegur, minnir mig. Gantast
var með, að hann syngi sænskuna, en ég kynntist honum ekk-
ert. Wallenius var landflótta Finni eftir borgarastríðið 1918 og
hafði verið kennari Íslendinganna, sem voru á Vesturskólanum
(KUNMZ) um og upp úr 1930. Seinna varð hann bókavörður við
Lenínskólann.[12]
Benjamín kom sumarið 1935. Hann komst á Vesturskólann um
haustið, en aldrei vissi ég, hvar sá skóli var, hvað þá Lenínskólinn.
Gilbert Furubotn vann hjá Komintern eins og faðir hans, og ég
umgekkst Gilbert mikið fyrst. Við vorum saman í herbergi á Lux,
fórum í ferðir út fyrir borgina. En það var sama, ég vissi aldrei,
hvar höfuðstöðvar Kominterns voru. Þeir máttu ekki segja okkur
það. Þeir feðgar, Peder og Gilbert, sluppu við hreinsanirnar, en
Arne Munch-Petersen og Allan Wallenius ekki.
Fljótlega eftir að ég kom, fylgdi Eggert mér í prenttækniskól-
ann, Moskovski Poligrafitscheski Institut (MPI) við ulitsa Kirova
nr. 21 (heitir núna ulitsa Myasnitskaya; Miasnickaja, gata kjöt-
kaupmannanna). Aðeins um korters gangur var þangað frá Lux.
Skólinn var á þriðju eða efstu hæð í byggingu í klassískum stíl
Skógarferð vistmanna á heilsuhælinu. EM er fjórði frá vinstri í annarri
röð í ljósum frakka með derhúfu (sixpensara, ekki kaskeiti).