Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 11
Það er
óhætt að
mæla með
göngu á
Hólshyrnu
sem jafn-
framt er
frábært
fjallaskíða-
fjall.
FÓKUS Á HJARTA LANDSINS FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022
Ólafur Már
Björnsson
augnlæknir og
ljósmyndari
Tómas
Guðbjartsson
hjartaskurð
læknir og náttúru
unnandi
Það eru ekki margir bæir á Íslandi sem geta státað af
jafn kynngimögnuðum fjallahring og Siglufjörður, enda
fjörðurinn hluti af Tröllaskaga. Út um eldhúsgluggann
blasa við gómsætir konfektmolar sem flestir eru kennd-
ir við hnjúk, líkt og Hestskarðshnjúkur, Pallahnjúkur
og Móskógahnjúkur. Þetta á þó ekki við um Hóls-
hyrnu, tígulegan 687 metra háan tind inn af miðjum
firðinum, milli Hólsdals og Skútudals, og skammt frá
opi jarðganganna yfir í Héðinsfjörð. Fjallið skipar sér-
stakan sess í hjörtum allra Siglfirðinga og sést oft sem
mótíf á málverkum og ljósmyndum, en einnig í nöfnum
fyrirtækja og félagasamtaka. Hylli Hólshyrnu kemur
ekki á óvart, því séð frá bænum líkist það píramídalaga
samhverfum þrístrendingi. Orðið hyrna er skylt orð-
inu horn og hefur verið notað í margs konar merkingu,
meðal annars um hvassa fjallstinda. Þeir sem komnir
eru yfir miðjan aldur muna mjólkurhyrnur með fjórum
hornum og þríhyrndar hliðar. Þær skutu upp kollinum
um miðja síðustu öld þegar farið var að selja mjólk í
pappaumbúðum og fljótlega festist nýyrðið mjólkur-
hyrna við þær. Síðar áttu kassalaga og ferhyrndar
umbúðir eftir að leysa hyrnurnar af og annað nýyrði,
mjólkurferna, kom fram á sjónarsviðið. Sumt eldra fólk
kallar þó mjólkurfernur enn hyrnur, en varla á Siglufirði
því þar tíðkuðust mjólkurhyrnur ekki, frekar en annars
staðar á Norðurlandi.
Það er óhætt að mæla með göngu á Hólshyrnu sem
jafnframt er frábært fjallaskíðafjall. Í vesturhlíðum þess
var löngum skíðasvæði Siglufjarðarbæjar og skíðastökk-
pallur, en árið 1989 var skíðasvæðið flutt á enn betri stað,
í Skarðsdal, sem nú telst eitt besta skíðasvæði landsins.
Til eru nokkrar leiðir upp á tindinn og er stysta leiðin
að norðanverðu upp brattan Álfhyrnuröðul. Í fyrstu
er leiðin gróin en síðan taka við leirskriður og kletta-
stallar. Efst býðst einstakt útsýni yfir Siglufjörð og
áðurnefnda hnjúka, en einnig Dísina, brúnaþungan
Blekkil og sunnar Presthnjúk. Hægt er að halda göng-
unni áfram af Hólshyrnu á Presthnjúk og þaðan ofan í
Skútudal eða Hólsdal. Þessar leiðir eru einnig frábærar
fjallaskíðaleiðir og er þá oftast lagt upp frá Skútudal.
Af tindi Hólshyrnu má síðan renna sér aftur niður stór-
brotinn Skútudal eða halda niður brattari vesturhlíðar
Hólshyrnu. n
Mjólkurhyrnan
á Sigló
Hólshyrna blasir við öllum sem heimsækja Siglufjörð og ekki kemur á óvart að þetta glæsilega fjall sé Siglfirðingum svo kært. MYND/ÓMB
Píramídalaga
Hólshyrna
minnir óneitan-
lega á mjólkur-
hyrnur sem
flestir sem
komnir eru yfir
miðjan aldur
muna eftir úr
æsku.
MYND/TG
Af tindi Hóls-
hyrnu er frá-
bært útsýni í
allar áttir. Hér
er horft í áttina
að Dísinni til
vinstri og
Móskógahnjúki
til hægri, en
handan þeirra er
Héðinsfjörður.
MYND/TG