Fréttablaðið - 20.01.2022, Blaðsíða 47
Rakel Björg Guðmundsdótt-
ir, markaðsstjóri Atlantsolíu,
er stúdent frá Kvennaskól-
anum, fór í stjórnmálafræði í
HÍ og Kennaraháskólann en
fann sig ekki á þeim slóðum
og fór á vinnumarkaðinn í
kjölfarið.
„Ég tók við starfi þjónustustjóra hjá
Atlantsolíu árið 2008 og var það
þá ný staða innan fyrirtækisins.
Fyrsta stöð félagsins var opnuð við
Kópavogsbraut í ársbyrjun 2004
og hafði tilkoma Atlantsolíu á
olíumarkaðinn hleypt miklu lífi í
samkeppnina enda kynnti félagið
til sögunnar ýmsar nýjungar neyt-
endum til hagsbóta og þæginda,
til dæmis dælulykilinn auk þess
að bjóða lægra verð en áður hafði
sést og viðtökurnar eftir því, mjög
góðar. Bensínstöðvunum fjölgaði á
stuttum tíma og því voru verk-
efnin mörg og af ýmsum toga enda
áskorun að vera nýtt merki á afar
hörðum og lifandi markaði,“ segir
Rakel.
Aðeins tíu starfsmenn og þar af
meirihlutinn konur
Rakel þótti mjög spennandi á
sínum tíma að hefja störf hjá fyrir-
tæki sem státaði af ungri konu í
brúnni en þá hafði Guðrún Ragna
gegnt stöðu framkvæmdastjóra
í tæp tvö ár og þá aðeins 32 ára
gömul.
„Í Guðrúnu Rögnu hef ég fundið
mikla fyrirmynd. Hún hefur stutt
mjög vel við bakið á mér á mínum
ferli innan fyrirtækisins og veitt
mér ótal tækifæri og hvatningu
til að vaxa í starfi. Hjá Atlantsolíu
starfa í dag aðeins tíu manns og
kemur fólki það alltaf jafn mikið á
óvart. Meirihluti þessa tíu manna
hóps er einmitt kvenkyns en hér
starfa sex konur og fjórir karlar. Það
er óvenjulegt í þeim geira sem við
störfum í, en eldsneytisbransinn
hefur í gegnum tíðina þótt mjög
karlægur. Það má þó alveg halda því
til haga að karlmennirnir í fyrir-
tækinu eru til fyrirmyndar og frá-
bærir samstarfsmenn,“ segir Rakel.
Fékk tækifæri til vinna við það
sem henni fannst áhugavert
Sem þjónustustjóri fékk Rakel
Fær hvatningu til að vaxa í starfi
Rakel Björg Guð-
mundsdóttir
er markaðsstjóri
hjá Atlantsolíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANT-
ON BRINK
Guðrún Ragna Garðarsdóttir
var aðeins 31 árs þegar hún
tók við starfi framkvæmda-
stjóra Atlantsolíu og hefur
blómstrað í starfi. Guðrún
ætlaði sér ekkert endilega að
ílengjast í olíubransanum en
hlutirnir æxluðust þannig
og hún sér ekki eftir því að
hafa haldið áfram.
Guðrún er stúdent frá MR, fór í
viðskiptafræði í HÍ og lauk þar
Cand.oecon-gráðu af endurskoð-
unarsviði. Árið 2005 flutti hún
til Barcelona og fór í nám í EADA
þaðan sem hún lauk master í fjár-
málum. Hún kláraði svo MBA við
HÍ 2016. Þegar Guðrún koma heim
frá Barcelona hóf hún störf hjá
Atlantsolíu.
„Starfið er mjög fjölbreytt og
ávallt nýjar áskoranir á borðinu.
Það hefur mikið breyst frá því að
ég tók við sem framkvæmdastjóri
fyrir þrettán árum síðan. Fyrstu
árin í mínu starfi var ákveðinn
uppbyggingarfasi í gangi, þar
sem aðaláherslan lá í að bæta við
stöðvum og stækka dreifinetið
okkar. Svo tók við fasi þar sem við
fórum í að bæta ferla og ná fram
hagræðingu, sem er svo „ongoing“
verkefni í gegnum allt sem við
gerum. Umhverfismálin og auknar
kröfur um blöndun lífeldsneytis
er annað stórt verkefni sem fylgt
hafa miklar áskoranir og munu
gera áfram. Miklar sviptingar á
markaðnum síðustu ár, með inn-
komu nýrra aðila og stórra sam-
runa stærstu aðila á markaði, hafa
líka fært með sér áskoranir. Þannig
að það er alltaf nóg af áskorunum
og á meðan það er, er starfið
skemmtilegt og maður er sífellt að
bæta við sig þekkingu og reynslu,“
segir Guðrún.
Harður en lifandi bransi
Guðrún er spurð hvort olíugeirinn
hafi alltaf heillað hana.
„Olíugeirinn heillaði ekkert
sérstaklega, þannig séð. Ég var
ráðin til Atlantsolíu sem ég þekkti
lítið sem ekkert þegar ég kom úr
námi frá Barcelona árið 2006. Þá
byrjaði ég sem aðstoðarfjármála-
stjóri en var boðið að taka við
sem framkvæmdastjóri tæpum
tveimur árum seinna. Ég var þá 31
árs gömul og hafði ekkert endilega
hugsað mér að ílengjast í olíu-
bransanum, eða yfirleitt að ég væri
eitthvað sérstaklega að stefna að
því að verða framkvæmdastjóri
þar né annars staðar. En ég ákvað
að stökkva á tækifærið og sé ekki
eftir því. Starfsumhverfið hjá
Atlantsolíu er mjög gott og ávallt
nóg af áskorunum, sem er lík-
lega ástæða þess að ég hef ílengst
hér. Þetta er mjög lifandi bransi
og mjög harður líka. Ég hef verið
heppin að vinna með frábæru fólki
í gegnum tíðina og okkur hefur
tekist saman að gera Atlantsolíu að
góðum vinnustað.“
Guðrún segist ekki alltaf hafa
haft brennandi áhuga á því að vera
í stjórnunnarstöðu.
„Ég get ekki sagt að það hafi
endilega verið það sem ég stefndi
að, eða að áhugasvið mitt hafi legið
sérstaklega þar. Ég stefndi alltaf að
því að vinna meira tengt endur-
skoðun og fjármálum, kannski
meira sem sérfræðingur en stjórn-
andi. En svo fer lífið ekkert endi-
lega með mann þangað sem maður
stefndi, önnur tækifæri koma upp
og maður bara tekur slaginn.“
Hvetur fólk til að stefna hærra
Atlantsolía er lítið félag með
einungis tíu starfsmenn.
„Mest höfum við verið 24 talsins.
Við höfum ekki sérstaklega horft
til kyns fólks þegar við ráðum inn
nýtt starfsfólk; fremur hvernig per-
sónan passar inn í okkar kúltúr.
Við höfum þó reynt að hafa ákveð-
ið jafnvægi í kynjahlutföllum sem
ég tel nauðsynlegt innan allra
fyrirtækja. Ég hef ætíð hvatt mitt
starfsfólk, sama hvort um er að
ræða konur eða karla, til að bæta
við sig þekkingu og ábyrgð eins og
hægt er í þeim störfum sem þau
eru í hjá okkur. Tækifæri til fram-
þróunar í starfi innan félagsins eru
eðli málsins takmörkuð, þar sem
um fá stöðugildi er að ræða, en
þó alltaf einhver. Ég hef því alltaf
hvatt mitt fólk til að halda áfram
og stefna hærra hjá okkur sem
annars staðar,“ segir Guðrún.
Mikil gerjun í bransanum
Guðrún hlakkar til næstu áskor-
ana og horfir björtum augum til
framtíðar.
„Við teljum framtíðina bara
nokkuð bjarta. Við erum auðvitað
í geira þar sem er mikil gerjun
og breytingar fyrirsjáanlegar á
næstu árum og áratugum. Fyrir-
tækið mun þróast í samræmi við
áskoranirnar sem fram undan
eru. Við erum spennt fyrir þeim
áskorunum enda fylgja þeim alltaf
tækifæri.“ n
Framkvæmdastjóri í olíugeiranum aðeins 31 árs
Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu, segir olíugeir-
ann vera lifandi bransa en líka mjög harðan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Það er alltaf nóg af
áskorunum og á
meðan það er, er starfið
skemmtilegt og maður
er sífellt að bæta við sig
þekkingu og reynslu.
Oft er einmitt bara
best að henda sér
út í djúpu laugina.
tækifæri til að vinna við það sem
henni hafði alltaf fundist áhuga-
vert að pæla í og skoða, en það er
einmitt þjónusta.
„Mér hefur stundum fundist
við hér á Íslandi stutt á veg komin
í að veita úrvalsþjónustu í öllum
geirum. Allt er nefnilega þjónusta
í ákveðnum skilningi, ekki bara
á sjálfsafgreiðslustöð Atlantsolíu
eða í verslun í Kringlunni,“ segir
hún.
Rakel fékk svo aukinn áhuga
á markaðsmálum innan fyrir-
tækisins.
„Mikilvægast er að keðjan á milli
sölu, þjónustu og markaðsmála sé
sterk. Ég fékk brautargengi innan
fyrirtækisins til að vaxa enn frekar
í starfi; ég fann að ég hafði rödd og
það gaf mér aukið sjálfstraust.“
Best að henda sér í djúpu laugina
Það var svo árið 2017 sem Rakel
bauðst að taka við markaðsstjóri
félagsins.
„Það var stórt stökk fyrir mig en
oft er einmitt bara best að henda
sér út í djúpu laugina. Ég hef lært
mest á því að henda mér í verk-
efnin og vil helst hafa marga bolta
á lofti í einu. Ég er óhrædd við að
afla mér upplýsinga og spyrja um
það sem ég veit ekki og fá lánaða
dómgreind samstarfsfólks, enda
getur kona bara ekki vitað allt. Ég
hef líka átt í afar góðu og skapandi
samstarfi við auglýsingastofuna
okkar, HN markaðssamskipti, sem
segja má að sé minn nánasti sam-
starfsaðili enda er markaðsdeild
AO bara ein kona,“ segir Rakel og
brosir.
„Tíminn hefur þotið áfram
enda mjög margar krefjandi
áskoranir orðið á vegi félagsins á
tímanum frá því ég hóf störf hér.
Eldsneytisbransinn hefur breyst
hratt síðustu ár og fyrirséð að sala
jarðefnaeldsneytis er á undan-
haldi. Það gerist samt ekki á einni
nóttu og því er mikilvægt að vera
á tánum og vakandi yfir sam-
keppni, spila stundum djarft og
gera skemmtilega hluti sem vekja
eftirtekt. Það hefur verið ótrúlega
skemmtilegt og mjög þroskandi
að taka þátt í þeirri vegferð sem
Atlantsolía hefur verið á síðast-
liðin ár.“ n
kynningarblað 27FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU