Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 49

Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 49
Fanney Ösp Finnsdóttir Eyrún Sif Eggertsdóttir The Retreat, annað af tveimur hótelum Bláa Lónsins, hefur vakið verðskuldaða athygli á heimsvísu. Bláa Lónið er eitt af 25 undrum veraldar. Einstakur mannauður Það hefur sömuleiðis mætt mikið á Eyrúnu Sif Eggertsdóttur, forstöðumanni baðstaða og verslana Bláa Lónsins, og hennar fólki síðustu misseri. Hver er mesti lærdómurinn eftir þessi tvö Covid ár? „Mig langar fyrst að nefna þrautseigju og þolinmæði en fyrir utan það stendur upp úr hvað við eigum ótrúlega flottan mannauð sem hefur staðið þétt við fyrirtækið í gegnum þennan öldugang – allir sem einn tilbúnir að leggja sitt af mörkum með það að markmiði að hámarka upplifun og ánægju gestanna okkar með gleðina að vopni,“ segir Eyrún. Löng reynsla Eyrúnar í smásölu hefur reynst henni vel hvort sem er við rekstur á verslunum Bláa Lónsins eða á baðstöðunum. „Þetta snýst jú allt um að koma til móts við mismunandi þarfir, lesa í óskir hvers og eins, standast væntingar og tryggja að gesturinn eða viðskiptavinurinn fari ánægður frá okkur og komi sem oftast aftur,“ bendir hún á. Hverjar eru ástæður þess að Bláa Lónið hefur skilað jafn góðum árangri í þjónustu og raun ber vitni? „Fyrsta sem kemur upp í hugann eru þau sterku gildi sem fyrirtækið byggir á,“ segir Eyrún. „Allir starfsmenn þekkja gildin, sem í grunninn snúast öll um að skapa einstakar minningar og ganga alltaf skrefinu lengra þegar kemur að þjónustu við gesti og viðskiptavini okkar. Hjarta Bláa Lónsins er sterkt eins og sést bara af ein- stakri samheldni starfsfólksins og því trausti og þeirri virðingu sem það ber hvert fyrir öðru, við- skiptavinum okkar, umhverfinu og fyrirtækinu.“ Markaðssókn aldrei mikilvægari Arndís Huld Hákonardóttir er forstöðumaður markaðsmála hjá Bláa Lóninu. Hún hefur leitt markaðsmál fyrirtækisins í gegnum bæði breyttan veruleika og ferðahegðun ferðamanna um allan heim síðustu misseri. „Síðustu misseri höfum við þurft að vera stöðugt vakandi fyrir breytingum á erlendum mörkuðum og ferðamynstri,“ segir Arndís. „Í minni deild starfar öflugt teymi sem hefur sýnt af sér mikinn þrótt og þrautseigju í gegnum krefjandi tíma. Við höfum þurft að breyta hratt og örugglega þeim skilaboðum sem við viljum koma á framfæri til gesta og viðskiptavina og laga þau að þróun á markaði. Á óvissutímum er mikilvægt að vita hvaða birtingarform eru mikilvægust, miða á rétta hópa, með réttum skilaboðunum og á réttum tímum. Á óvissutímum eins og þeim sem við höfum verið að upplifa hefur aldrei verið jafn mikilvægt að gefa í hvað varðar markaðs- mál, enda mikilvægt að halda athygli til að tryggja viðspyrnuna þegar að henni kemur, þrátt fyrir tímabundnar lokanir og mikla óvissu.“ Arndís bendir á að á sama tíma hafi Bláa Lónið lagt sitt af mörkum til að ná betur til innlenda markaðarins, styrkja samband sitt við heima- menn og efla enn frekar og styðja við nærsam- félagið. „Innlendi markaðurinn er okkur einnig gríðarlega mikilvægur og okkur þykir vænt um að finna fyrir aukinni aðsókn Íslendinga og auknum áhuga þeirra á húðvörum Bláa Lónsins. Ljósmyndir og myndbönd á samfélagsmiðlum frá gestum hafa veitt okkur mikla gleði og verið eins og vítamínsprauta fyrir okkur starfsfólkið. Í ár horfum við svo fram á mjög spennandi tíma, bæði hér heima og erlendis og hlökkum til að hrinda öllum þeim spennandi verkefnum sem við erum með á teikniborðinu í framkvæmd á næstu mánuðum,“ segir hún og brosir. Breytt ferðahegðun eftir faraldurinn Fanney Ösp Finnsdóttir tók nýlega við sem hótelstjóri á Silica hóteli Bláa Lónsins eftir að hafa starfað í móttöku, sem móttökustjóri og sér- fræðingur á viðskipta- og rekstrarsviði. Fanney þekkir fyrirtækið því vel. „Með því að fá að þróast og þroskast í starfi innan Bláa Lónsins hef ég öðlast mikla þekkingu á mörgum og mismunandi sviðum fyrirtækisins,“ segir hún. „Það hefur hjálpað mér mikið eftir að ég tók við starfi hótelstjóra í vetur.“ En skyldi hótelstjórinn greina mikinn mun á ferðamynstri gesta eftir að heims- faraldurinn skall á? „Já, það er að breytast. Maður finnur fyrir því að gestir koma spenntari til okk- ar núna. Þeir hafa haft meiri tíma til að undirbúa dvölina. Ég vil meina að gestir komi afslappaðri, dvelji jafnvel lengur og geri betur við sig nú en áður,“ svarar Fanney og heldur áfram: „Til að geta aðlagað þjónustuna breyttum þörfum hefur reynt á sveigjanleika, þrautseigju og samstarfsvilja starfsfólks, bæði innan og milli deilda. Ég hef verið svo lánsöm að í mínu teymi eru gríðarlega öflugir einstaklingar, víðs vegar að úr heiminum, sem allir eru af vilja gerðir til að sinna starfi sínu af fagmennsku og gestrisni, þrátt fyrir óvenjulega tíma frá því að Covid hófst. Þá skemmir auðvitað ekki fyrir að vera umkringd stórkostlegri náttúru sem veitir okkur svo sannarlega innblástur í daglegu amstri.“ Töfrandi samspil hönn- unar, náttúru og vísinda Bryndís Björnsdóttir þekkir sölu- og markaðsmál félagsins vel en hún starfaði í markaðsdeild Bláa Lónsins áður en hún tók við sem forstöðu- maður sölu- og vöruþróunar. Fyrri reynsla Bryndísar og menntun hafa nýst vel við þróun vöruframboðs og sölu á óvissutímum síðustu mán- aða. „Eitt er reynsla en annað er öflugt teymi. Með mér í liði eru einstakir fagmenn og reynsluboltar. Saman höfum við stigið ölduna þar sem ytri aðstæður hafa breytt öllu; meðal annars kaup- og neysluhegðun viðskiptavina okkar. Sú reynsla að geta til- tölulega auðveldlega sett sig í spor mismunandi markhópa og mótað vöruframboðið í takt við nýjar þarfir viðskipta- vina með skömmum fyrirfara hefur reynst okkur dýrmæt. Þá er virkt samtal og samstarf við þá sem starfa í fram- línunni afar mikilvægt. Í því samhengi má ekki gleyma að við rekum meðal annars tvö hótel, Silica og Retreat, og tvo baðstaði, Retreat spa og Bláa Lónið sjálft, sem höfða til mismunandi markhópa. Þessi vegferð síðustu mánaða hefur verið krefjandi en líka skemmtileg og lærdómsrík fyrir okkur öll.“ Aðspurð hvað hafi komið Bryndísi skemmtilega á óvart varðandi Bláa Lónið sem vinnustað nefnir hún hversu mikil áhersla lögð er á hönnun og arkitektúr innan fyrirtækisins. „Það er mjög eftirtektarvert að sjá hversu mikið vægi hönnun, arkitektúr og ekki síst upp- lifunarhönnun fær í tengslum við allar ákvarðanir sem eru teknar innan fyrirtækisins,“ nefnir Bryndís og segir að þessar áherslur skili sér vel til gestanna. „Upplifunin sem við erum að bjóða upp á er heillandi og það er gefandi að sjá viðskiptavini eignast ógleymanlegar minningar.“ Umhverfisfyrirtæki ársins Hulda Saga Sigurðardóttir er forstöðumaður reiknings- halds hjá Bláa Lóninu. Hulda Saga hefur yfir tuttugu og fimm ára reynslu í uppgjörsvinnu og reikningshaldi og vann í fjármálageiranum áður en hún kom til starfa í Bláa Lóninu. „Ég held að þessi reynsla frá bankaárunum hafi kennt manni ýmislegt, að vinna undir álagi og tímapressu og þurfa að takast á við alls konar áskoranir með jafnaðar- geði. Hún kemur sér vel núna,“ svarar Hulda Saga, þegar hún er spurð út í þær áskoranir sem fyrirtæki í ferða- þjónustu standa nú frammi fyrir á Covid-tímum. Þess má geta að fyrir utan lónið sjálft rekur Bláa Lónið tvö glæsileg hótel, heilsulind og nokkra veitinga- staði. Rannsóknar- og þróunarstarf fer einnig fram í Bláa Lóninu þar sem hinn einstaki jarðsjór er notaður sem lykilhráefni í húðvörur Bláa Lónsins, en að auki rekur Bláa Lónið fjórar verslanir og heldur úti vefverslun. Þá eru innan Bláa Lóns-samstæðunnar fjölmörg dóttur- félög. „Það sem kom mér fyrst í opna skjöldu er hvernig allur rekstur Bláa Lónsins er samofinn hugmyndafræði um sjálfbærni, sem kemur fram í framleiðslu á húðvörunum, hönnun á byggingum og nýtingunni á jarðsjónum. Með hliðsjón af því kom hins vegar ekki óvart að Bláa Lónið skyldi vera valið Umhverfisfyrirtæki atvinnulífsins 2021. Ég held að þessi nálgun fyrirtækisins og virðing fyrir umhverfinu setji einfaldlega sérstakan tón inn í vinnustaðamenninguna. Það greinir Bláa Lónið frá öðrum vinnustöðum. Allir gera sér grein fyrir hversu einstaka upplifun, þjónustu og vörur Bláa Lónið hefur fram að færa.“ Arndís Huld Hákonar- dóttir Hulda Saga Sigurðar- dóttir Bryndís Björnsdóttir kynningarblað 29FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.