Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 66
Frá upp-
hafi með
það að
markmiði
að opna
heim
borðspila
fyrir fólki.
Svanhildur Eva
Stefánsdóttir
Þær Linda Rós Ragnars-
dóttir og Svanhildur Eva
Stefánsdóttir stofnuðu
verslunina Spilavini fyrir
15 árum. Þær eru sam-
stilltar í rekstrinum og hafa
markað sér skýra stefnu frá
upphafi sem hefur skilað
sér í auknum spilaáhuga
hjá landanum og sívaxandi
hópi viðskiptavina.
Vinkonurnar Linda og Svanhildur
hafa lengi haft mikla ástríðu fyrir
spilum og sú ástríða ýtti þeim
út í að opna saman spilaverslun.
Verslunin þeirra Spilavinir hefur
vaxið jafnt og þétt undanfarin
fimmtán ár og viðskiptavinum
fjölgað. Svanhildur segir að miðað
við rannsókn sem þær gerðu áður
en þær fóru út í reksturinn hafi
markaðurinn fyrir spilabúð á
Íslandi ekki verið stór, en þær vin-
konur létu það ekki stoppa sig og
einsettu sér að búa til markaðinn.
„Verslunin var stofnuð á Lang-
holtsveginum svo það lá fyrir að
við værum ekki í alfaraleið. Við
vissum að við þyrftum að sækja
viðskiptavinina og höfum unnið
markvisst að því frá upphafi
með mikilli kynningarvinnu og
kennslu,“ segir hún.
„Við fórum af stað með skýra
hugmynd um að hverju ætti að
stefna og við byggjum enn á
sömu hugmynd. Strax árið 2007
opnuðum við vefsíðu til að auka
aðgengi að versluninni og gefa
viðskiptavinum færi á að kynna
sér spilin og kaupa að heiman. Svo
hafa borðspilakvöld og kennslu-
kvöld verið haldin reglulega frá
upphafi með það að markmiði að
opna heim borðspila fyrir fólki.“
Gjörbreyttur markaður
Svanhildur segir að á þessum
fimmtán árum hafi markaðurinn
fyrir spil gjörbreyst og að fólk
kaupi nú spil allt árið.
„Áður keypti fólk spil bara
vikurnar fyrir jólin. Það var ekki
heldur mikið verið að gefa spil í
afmælisgjafir. Það segir sig sjálft
að það er mjög erfitt að vera í
rekstri ef fólk kaupir bara spil einu
sinni á ári,“ segir hún.
„En þessi mikla áhersla á að
kynna spil fyrir fólki og að kynna
þessa upplifun sem það er að spila
saman, hefur skilað sér í því að
fólk er að leita til okkar á öllum
árstíðum. Fólk kemur oft til að
finna spil fyrir sumarbústaða-
ferðir svo það er líka mikið að
gera á sumrin hjá okkur. Eins
hafa fyrirtæki byrjað að gefa spil í
gjafir til starfsmanna svo starfs-
fólk geti átt góðar samverustundir
með fjölskyldu og vinum,“ heldur
hún áfram.
Spil í meginstraumi afþreyingar
„Í dag eru borðspil í meginstraumi
afþreyingar enda ýta þau undir
samveru fólks á öllum aldri. Spil
hafa líka mikið breyst frá því sem
áður var, þau hafa þróast eins og
allt annað, og úrvalið er mjög fjöl-
breytt. Þú getur fengið spil fyrir
einn leikmann og annað þar sem
hentar allt að 10, spil sem tekur
klukkutíma og annað sem klárast
á kortéri. Svo eru samvinnu-
spil sem eru ný fyrir mörgum en
þar vinna leikmenn saman að
ákveðnu markmiði og eru ekki að
keppa hver á móti öðrum. Það eru
til ótal spil í dag þar sem börn og
fullorðnir spila saman og allir hafa
gaman af,“ segir Svanhildur.
Spil þjálfa mikilvæga hæfileika
Svanhildur segir að um leið og spil
séu skemmtileg afþreying þá er
margt sem lærist af þeim.
„Spil þjálfa félagsfærni, rök-
hugsun, einbeitingu, samvinnu
og margt fleira. Við bendum
viðskiptavinum, oft kennurum,
á ýmis spil sem hægt er að læra
af þó spilin séu ekki hugsuð sem
kennsluefni.“
„Einu sinni vorum við Linda
með spilakennslu í kennslustund,
og var mikið fjör og gaman. Eftir
tímann heyrði ég á tal tveggja
stráka þar sem annar sagði: „Vá,
hvað var gaman! Við lærðum ekki
neitt!“, en samt voru þeir búnir
að vera að vinna með stærðfræði,
samvinnu og heilmargt fleira í
meira en klukkutíma.“
Traust viðskiptavina dýrmætt
Vegna áherslunnar sem Svan-
hildur og Linda hafa lagt á að
finna spil sem hentar hverjum
viðskiptavini er fólk farið að
treysta Spilavinum og kemur
þangað til að fá ráðleggingar
þegar kaupa á nýtt spil, hvort sem
það er í eigið safn eða sem gjöf.
„Það er okkur mjög dýrmætt
að fólk treysti okkur fyrir sinni
samverustund með fjölskyldu
og vinum. Við trúum því að allir
geti fundið spil við sitt hæfi. Ef
spurningar vakna þá er gripið í
opið eintak af spilinu og rennt yfir
hvernig það virkar. Þetta höfum
við alltaf gert,“ segir Svanhildur.
„Áður vorum við alltaf á
ferðinni að kenna spil og með
reglulega viðburði tengda spilum
og spilamenningu, en höfum ekki
gert það síðasta eina og hálfa árið
út af faraldrinum. En við erum
að prófa okkur áfram með því
að búa til myndbönd þar sem
við kennum á spil og höfum þá
verið að nýta vefsíðuna okkar og
bloggið. Eins leggjum við áherslu
á að finna myndbönd sem útskýra
spilin, svo auðveldara sé að finna
spil sem hentar. Þetta er allt að
finna á vefnum okkar.“
Fyrsta spilakaffihús landsins
Í fyrrasumar opnuðu þær fyrsta
borðspilakaffihús Íslands, inni
í verslun Spilavina. Það kann að
hljóma undarlega að opna kaffi-
hús í miðjum Covid-faraldri, en
langur aðdragandi var að verkefn-
inu, hugmyndin hafði verið lengi
í undirbúningi og vinnan komin
langt á veg þegar samkomutak-
markanir fóru í gang.
„En svo hafa komið tækifæri inn
á milli til að opna, og hefur það
gengið vel. Á kaffihúsinu getur
fólk fengið sér kaffibolla og sest
niður og spilað.“ Hægt er að velja
úr miklum fjölda opinna spila í
kaffihúsinu en Svanhildur segir
eitt stærsta spilasafn landsins vera
í versluninni hjá þeim.
„Við höfum frá upphafi verið
með skýra langtímahugmynd um
fyrirtækið okkar, og byrjuðum
strax að safna spilum í spilasafnið
fyrir 15 árum síðan. Þetta er því
dágott safn af alls kyns spilum og
alltaf að bætast ný spil við safnið,“
segir Svanhildur.
Spilavinafjölskylda
Svanhildur leggur áherslu á að
Spilavinir eru fjölskyldufyrir-
tæki. Fjölskyldumeðlimir þeirra
Svanhildar og Lindu hafa verið
viðloðandi fyrirtækið frá upphafi
í ýmsum störfum, og starfsfólk
sem hefur unnið hjá fyrirtækinu
verður hluti af Spilavinafjöl-
skyldunni.
Svanhildur segir samvinnu
þeirra vinkvenna hafi gengið vel
undanfarin fimmtán ár og að þær
bæti hvora aðra upp.
„Ástríða okkar er sú sama og
okkur finnst gott að vinna saman.
Við vitum hvers við ætlumst til af
hvor annarri og höfum skipt hlut-
verkunum á milli okkar. Það ríkir
mikill skilningur og umhyggja
okkar á milli. Við erum ólíkar en
við lítum á það sem styrkleika og
pirrum okkur ekki á því. Fyrir-
tækið hefur vaxið með okkur og
við með því. Við erum sterkari
saman.“ n
Við erum sterkari saman
Svanhildur Eva
Stefánsdóttir
og Linda Rós
Ragnarsdóttir
spila á kaffi-
húsinu sem var
nýlega opnað
í versluninni.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Í kjallara Spilavina er góð aðstaða fyrir börn og fullorðna að eiga notalega samverustund.
MYND/AÐSENDÞær Svanhildur og Linda hafa komið upp einu stærsta spilasafni landsin í verslun sinni.
46 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU