Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 71

Fréttablaðið - 20.01.2022, Side 71
Það er mikilvægt að horfa á loftslagsmálin með kynja- gleraugum. Víðast hvar í heiminum finna konur fyrst fyrir loftslagsbreytingum í sínu nærumhverfi, hvort sem það lýsir sér í erfiðara aðgengi að vatni eða lakara orkuöryggi heimilisins. Loftslagsmál eru orkumál og orkuskipti úr jarðefnaeldsneyti yfir í endurnýjanlega orkugjafa er lykillinn að sjálfbærum heimi og besta vopnið í baráttunni við lofts- lagsvána. Með orkuskiptum getum við gert heiminn grænan saman. Landsvirkjun hefur einmitt haldið því slagorði á lofti: Gerum heiminn grænan saman. Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarfor- stjóri og Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis, heyrðu það slagorð enduróma með ýmsum hætti á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Glasgow, COP26. Þær eru sammála um að ráðstefnan hafi verið mikilvægur vettvangur fyrir þjóðir heims. Það sé mikil- vægt fyrir okkur Íslendinga að fylgjast með straumum og stefnum í loftslagsmálum og þá sérstaklega hvað varðar orkuskipti. „Eitt megin stefið á ráðstefnunni var að allir ætla sér að reyna að skipta sem fyrst yfir í endurnýjan- lega orku,“ segir Kristín Linda. „Þar búum við Íslendingar afskaplega vel, með alla okkar grænu orku. Bæði íslensk stjórnvöld og Lands- virkjun hafa sett sér metnaðarfull markmið um græna framtíð og við getum verið fyrirmynd fyrir aðra.“ Jóna bendir á að Íslendingar hafi þegar gengið í gegnum orkuskipti. „Rafmagnið okkar er unnið úr grænum og endurnýjanlegum auð- lindum og við nýtum jarðvarma til að hita upp húsin okkar. Ef við einbeitum okkur að orkuskiptum í samgöngum getum við orðið fyrst allra þjóða í heiminum til að verða óháð jarðefnaeldsneyti.“ Samvinna, nýsköpun, jöfnuður Þær Kristín Linda og Jóna eru sammála um að meginskilaboð COP26 hafi verið nauðsyn sam- vinnu, nýsköpunar og jöfnuðar. Samvinnan verði að ná um allt samfélag, milli almennings, stjórnvalda, hagsmunasamtaka og atvinnulífs. Með nýsköpun þurfi að bæta nýtingu, minnka sóun og finna nýjar leiðir til vinnslu endurnýjanlegrar orku. Þá sé jafnt aðgengi jarðarbúa að grænni, endurnýjanlegri orku grundvöllur þess að þjóðir nái að bregðast sam- eiginlega við loftslagsmálum. „Það var áberandi í Glasgow að stærstu fyrirtæki heims hafa tekið við sér, sem er auðvitað að kröfu neytenda og almennings,“ segir Kristín Linda. „Þau leitast nú við að vera loftslagsvænni í starfsemi sinni, í stað þess að flytja t.d. aðföng jafnt sem unna vöru um langan veg. Þau gera sér grein fyrir að ef þau ætla að vera enn starfandi eftir 10 ár þurfa þau að umbylta mörgu hjá sér. Það var góð tilfinning að vera á ráðstefnunni sem fulltrúi Landsvirkjunar, fyrirtækis í eigu almennings sem vinnur 100% endurnýjanlega orku.“ Loftslagsmál í allri starfsemi Hjá Landsvirkjun eru loftslags- málin tekin mjög alvarlega og eru í raun samþætt allri starfsemi orku- fyrirtækis þjóðarinnar. „Við þekkj- um til dæmis vel hver okkar losun er og höfum birt upplýsingar um hana um árabil, sem er forsenda þess að geta sett sér markmið og forgangsraðað aðgerðum þannig að sem mestur árangur náist,“ segir Jóna. „Bókhaldið sýnir að við erum á réttri leið en losun á orkueiningu hefur lækkað um 67% frá 2005 og kolefnissporið okkar minnkað um 65%. En þrátt fyrir góðan árangur til þessa og mjög lágt kolefnisspor erum við hvergi nærri hætt. Við stefnum að því að starfsemin verði kolefnishlutlaus árið 2025. Við höfum sett okkur markmið um samdrátt í losun fyrir mismunandi rekstrarþætti og vinnum áfram að uppgræðslu landsins sem felur í sér aukna bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi.“ Jóna segir að forgangsröðun Landsvirkjunar sé skýr og miði að því að draga úr losun áður en gripið sé til mótvægisaðgerða. „Við stefnum að því að hafa minnkað beina losun um 50% árið 2025, miðað við stöðuna 2008. Þar mun vega þyngst 60% samdráttur í losun vegna vinnslu jarðvarma. Þeim samdrætti náum við með því að skila um 90% af koldíoxíði frá Þeistareykjastöð aftur niður í jörðina og draga úr losun koldíox- íðs frá Kröflustöð með stýringu á borholum.“ Burt með olíu og bensín Kristín Linda bætir við að Lands- virkjun hafi einsett sér að hætta að kaupa jarðefnaeldsneyti árið 2030. „Núna notum við olíu og bensín á stærstan hluta fjölbreytts tækja- og bílaflota fyrirtækisins en við fylgj- umst grannt með nýjustu tækni og skiptum búnaði út um leið og færi gefst. Frá og með áramótunum gildir sú regla að við kaupum ein- göngu notaða fólksbíla, ef ekki er hægt að fá hreinorkubíl til verksins sem gengur fyrir rafmagni, metan eða vetni.“ Hægt er að fylgjast með fram- vindu mála á loftslagsmælaborði í rauntíma á vef Landsvirkjunar. Þá gefur Landsvirkjun árlega út lofts- lagsbókhald og var fyrst íslenska fyrirtækja til að fara þá leið. Orku- fyrirtæki þjóðarinnar var líka fyrst íslenskra fyrirtækja til að fá A(-) í einkunn hjá alþjóðlegum sam- tökum sem meta frammistöðu og upplýsingagjöf fyrirtækja í loftslagsmálum. Einkunnin þýðir að Landsvirkjun er leiðandi í loftslagsmálum og temur sér bestu starfsvenjur við upplýsingagjöf. Vilji til að vinna að bættri framtíð Kristín Linda og Jóna eru á einu máli um að það sé bæði fróðlegt og hvetjandi að sækja alþjóðlega ráðstefnu á borð við loftslags- ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Vissulega takist þar á margvíslegir hagsmunir en vilji til að vinna að bættri framtíð sé þó hinn sterki grunnur sem ráðstefnan hvíli á. „Það má ekki heldur gleyma kröft- ugum mótmælunum í Glasgow á meðan á ráðstefnunni stóð, en þau minntu alla fundarmenn á hvað væri í húfi,“ segir Kristín Linda. „Þetta er stórt og flókið verkefni, en við eigum ekki annarra kosta völ en að leysa það farsællega. Þarna voru til dæmis fulltrúar ríkja og þjóða sem þegar verða fyrir miklum áhrifum af lofts- lagsbreytingum og eru að þrýsta á betur stæð iðnríki að gera meira og gera það strax. Þessi barátta við loftslagsbreytingar verður mun áþreifanlegri þegar hlustað er á sögur þessa fólks, sem eru margar átakanlegar.“ Jóna tekur undir að ráðstefna á borð við COP26 gegni veigamiklu hlutverki við að skapa samkennd, sem sé frumforsenda þess að árangur náist. „Við búum öll á sama hnettinum. Við getum ekki lengur stundað það að færa losun frá einu landi til annars, við getum ekki flutt hættulegan úrgang frá vestrænum ríkjum til þróunar- ríkja, sem eiga þess ekki kost að ganga tryggilega frá honum. Við þurfum að draga úr neyslu okkar og beita öllum ráðum til að draga úr losun. Í því liggja líka tækifæri til framtíðar.“ n Þessi barátta við loftslagsbreytingar verður mun áþreifan- legri þegar hlustað er á sögur þessa fólks, sem eru margar átakanlegar. Kristín Linda Árnadóttir Rafmagnið okkar er unnið úr græn- um og endurnýjan- legum auðlindum og við nýtum jarðvarma til að hita upp húsin okkar. Ef við einbeitum okkur að orkuskiptum í samgöngum getum við orðið fyrst allra þjóða í heiminum til að verða óháð jarðefna- eldsneyti. Jóna Bjarnadóttir Samstaða um að gera heiminn grænan Kristín Linda Árnadóttir aðstoðarforstjóri og Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis, eru á einu máli um að það sé bæði fróðlegt og hvetjandi að sækja alþjóðlega ráðstefnu á borð við loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Þær eru sammála um að ráðstefnan hafi verið mikilvægur vettvangur fyrir þjóðir heims. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI kynningarblað 51FIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 FÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.