Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 76

Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 76
Í skugga heimsfaraldurs hefur þörf fólks til að hitt- ast í raunheimum leitt af sér vitundarvakningu um mikilvægi heilbrigðs vinnu- umhverfis og samkomu- staða. Dagar eru leiðandi fyrirtæki á sviði fasteignaumsjónar og bjóða upp á fjölbreytta þjónustu á því sviði. Hjá Dögum starfa um 750 manns á starfsstöðvum víðs vegar um landið. Sigrún Þormóðsdóttir er sviðsstjóri ræstingasviðs Daga og situr í framkvæmdaráði fyrirtæk- isins. Hún kom nýverið til starfa hjá fyrirtækinu og ber ábyrgð á stærsta tekjusviði fyrirtækisins og segir heimsfaraldurinn hafa opnað á ýmis tækifæri fyrir framsækin fyrirtæki. „Heimsfaraldurinn hefur reynst krefjandi fyrir fyrirtæki í landinu og við höfum orðið vör við að þjónustuframboð okkar hefur fengið byr undir báða vængi á því tímabili. Það hefur orðið ákveðin vitundarvakning um mikilvægi þess að skapa og viðhalda heil- brigðu og aðlaðandi vinnuum- hverfi,“ segir Sigrún. Þarfir fyrirtækja og stofnana hafa tekið miklum breytingum á síðastliðnum árum, meðal annars með aukinni fjarvinnu og net- verslun. Samhliða erum við sem starfsfólk og neytendur líka að meta upp á nýtt mikilvægi þess að eiga öruggan og aðlaðandi vett- vang til að hitta annað fólk, upplifa og eiga í samskiptum augliti til auglitis. Í framtíðinni skiptir æ meira máli að vinnustaðurinn sé aðlaðandi og gefandi og að öryggi starfsmanna og viðskiptavina sé tryggt. Dagar mæta þessari þróun með því að bjóða upp á hentugar lausnir fyrir fyrirtæki sem hækkar þjónustustig þeirra til starfsfólks og viðskiptavina. Rétt samsett teymi og fræðslu- mál lykillinn að árangri Sigríður Héðinsdóttir, starfs- mannastjóri fyrirtækisins, bætir hér við: „Við trúum því að lykillinn að árangri liggi í fjölbreytileika starfsfólks okkar og reynslu í að mæta þörfum viðskiptavina með rétt samsettu teymi. Þar hefur áhersla okkar á fræðslumál spilað stórt hlutverk. Við erum þar að auki meðvituð um mikilvægi þess að ólíkur bakgrunnur, viðhorf og fjölþætt reynsla endurspeglist í stjórnun fyrirtækisins.“ Áherslur Daga síðastliðin ár hafa þróast með breyttu starfsumhverfi og endurspeglast þær í samsetn- ingu starfsmannahópsins. Fyrir- tækið hefur mótað sér skýra stefnu í fræðslumálum og er á spennandi vegferð í stafrænum fræðslumál- um. „Með markvissum skrefum í stafrænum fræðslumálum erum við að byggja ofan á reynslu okkar af staðbundinni þjálfun og sjáum fyrir okkur að gera fræðsluna persónulegri og haga að þörfum starfsmanna í enn frekari mæli,“ segir Sigríður. Afstaða með umhverfinu Agata T. Siek er gæðastjóri Daga og situr í framkvæmdaráði fyrir- tækisins. Hún hefur það hlutverk að tryggja að gæðaferlum fyrirtæk- isins sé fylgt eftir og að starfsmenn fyrirtækisins fái rétta þjálfun frá fyrsta degi. „Við lítum svo á að það sé á ábyrgð fyrirtækja að tryggja viðeigandi fræðslu starfsmanna og þar af leiðandi öryggi þeirra og framþróun. Við trúum því líka að til þess að tryggja árangursríkar aðgerðir þegar kemur að umhverfismálum og samfélagslegri ábyrgð þá sé mikilvægast að vera einlæg og láta verkin tala.“ Dagar hafa síðan 2013 verið með- limir að Festu, miðstöð um sam- félagsábyrgð og sjálfbærni, og hefur ræstingarþjónusta fyrirtækisins verið vottuð með umhverfisvottun Svansins síðan 2009. Síðastliðin ár hefur mikil áhersla verið lögð á umhverfisvæna efnisnotkun og fræðslumál í þessum málaflokki en fyrirtækið hefur sett sér markmið um að ganga enn lengra í umhverf- ismálum. „Kolefnisspor ökutækja er stórt hlutfall af vistspori okkar þar sem að starfsfólk okkar þarf að komast á milli staða um land allt. Við höfum séð að ef ekkert er að gert þá muni kolefnissporið vaxa umtalsvert á næstu árum og teljum við það ekki ásættanlegan valkost. Þess vegna höfum við sett okkur það markmið að héðan í frá munum við einungis fjárfesta í raf- drifnum bílum þegar endurnýja á ökutæki fyrirtækisins.“ n Öflugur mannauður lykillinn að góðri þjónustu Nokkrir af lykilstjórnendum Daga. Frá vinstri eru Sigrún Þormóðsdóttir, sviðsstjóri ræstingasviðs Daga, Sigríður Héðinsdóttir, starfsmannastjóri Daga og Agata T. Siek, gæðastjóri Daga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Hrönn Óskarsdóttir er framkvæmdastjóri og eigandi auglýsingastofunnar VORAR og Dagný Skarp- héðinsdóttir er yfirhönn- uður stofunnar. Sérstaða VORAR er meðal annars sú að helmingur starfsfólksins eru konur og þær tvær eru helstu stjórnendurnir. Þær leggja mikla áherslu á per- sónulega þjónustu. „VORAR er alhliða auglýsingastofa sem býður upp á alla þá þjónustu sem fyrirtæki þurfa til þess að kynna vöruna sína. Við aðstoðum við stefnumótun og þarfagrein- ingu og fylgjum svo vörunni alla leið, allt frá hugmynd að fullunn- inni vöru,“ segir Hrönn. „Í teyminu okkar er að finna auglýsingaljósmyndara með mikla reynslu og við útvegum fyrsta f lokks vörumyndir til notk- unar á heimasíðu og í bæklinga og f leira, ásamt fallega uppsettum myndum af vörum í viðeigandi umhverfi. Við erum með framúr- skarandi hönnuði og teiknara innanborðs með mikla reynslu í umbúðahönnun, en það má segja að hún sé algjört sérsvið okkar,“ segir Hrönn og Dagný skýtur inn: „Allar umbúðir Nóa Síríus síðustu árin hafa til dæmis verið hannaðar hjá VORAR, en það er ekkert lítið verk, því að skemmti- legar nýjungar streyma frá fyrir- tækinu.“ „Við veitum einnig ráðleggingar og höfum umsjón með prenti á umbúðum og bjóðum einnig upp á umsjón með samfélags- miðlum, birtingum á vef, prenti og umhverfismiðlum. Sérstaða VORAR er meðal annars persónu- leg þjónusta og við leggjum mikið upp úr því að kynnast viðskipta- vinum okkar og þeirra vöru- merkjum vel og veita persónulega þjónustu, sérsniðna að hverjum og einum,“ heldur Hrönn áfram og bætir við að það sé ekki mark- mið þeirra að vera stór stofa með Gera hugmynd að veruleika Hrönn Óskarsdóttir og Dagný Skarphéðinsdóttir eru helstu stjórnendur auglýsingastofunnar VORAR sem veitir per- sónulega þjónustu, sérsniðna að viðskiptavinum. MYND/AÐSEND marga viðskiptavini, heldur að vera með færri góða viðskiptavini og veita þeim frábæra þjónustu. Nýtt nafn eftir mikla þróun „Ef við förum aðeins yfir sögu fyrirtækisins þá var VORAR stofnuð árið 2011 undir nafninu Árnasynir. Stofan hefur þróast mikið í gegnum árin og árið 2019 urðu ákveðin vatnaskil þegar ég tók við rekstri fyrirtækisins,“ útskýrir Hrönn. „Dagný er yfir- hönnuður og við tvær erum helstu stjórnendur fyrirtækisins, ásamt því að helmingur starfsfólksins eru konur. Okkur þótti þess vegna viðeigandi að fara í endurmörkun á stofunni á þessum tímapunkti og láta ásýndina út á við ríma við innri þætti stofunnar. Úr varð að stofan fékk nafnið VORAR, sem meðal annars vísar í kraftinn sem fylgir vorinu þegar það er loks farið að birta, gróðurinn byrjar að springa út og ákveðinn kraftur er í loftinu,“ segir Hrönn og Dagný bætir við: „Það er líka önnur skírskotun í nafninu en það getur náttúrulega líka þýtt „okkar“ sem mér finnst svolítið fallegt, við erum að gera þetta saman.“ Fylgja hugmyndum alla leið „Stundum gengur fólk um með hugmynd að vöru í maganum en veit svo ekki hvernig það á að koma henni á markað. Við getum stigið þar inn í og boðið upp á heildrænar lausnir. Við getum gefið ráðleggingar varðandi hvern- ig umbúðir henta vörunni best, hvernig best sé að markaðssetja vöruna og hvar sé best að fram- leiða hana, ásamt því að hanna vörumerki og útlit vörunnar og framleiða markaðsefni,“ segir Dagný. „Við aðstoðum þannig fólk við að breyta hugmynd í veruleika og fylgjum henni eftir alla leið.“ „Allir sem við getum mögulega aðstoðað eru velkomnir til okkar. Stórir sem smáir,“ bætir Hrönn við. „Við erum lausnamiðuð, höfum gaman af alls konar verkefnum og tökum öllum áskorunum fegins hendi.“ FKA veitir styrkjandi bakland Hrönn og Dagný eru sammála um að það sé gríðarlega mikilvægt að til séu samtök eins og FKA, þar sem konur í atvinnurekstri styðja hver aðra og eru alltaf tilbúnar til þess að deila reynslu sinni og veita ráð. „Við finnum mikinn styrk í því að hafa slíkt bakland að leita í, sérstaklega þegar á móti blæs. Það sem einkennir konur innan FKA er að þær vilja lyfta hver annarri upp og versla við hverja aðra og það er dýrmætt,“ segir Hrönn og Dagný tekur undir. n Við aðstoðum við stefnumótun og þarfagreiningu og fylgj- um svo vörunni alla leið, allt frá hugmynd að fullunninni vöru. Hrönn Óskarsdóttir 56 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.