Fréttablaðið - 20.01.2022, Qupperneq 80
Svandís Hlín Karlsdóttir er
yfir þjónustu við viðskipta-
vini og viðskiptaþróun hjá
Landsneti. Hún hóf störf hjá
Landsneti 2015 þegar hún
flutti heim eftir fimm ára
dvöl í Svíþjóð þar sem hún
tók meistaragráðu í iðnaðar-
verkfræði og náði sér í starfs-
reynslu.
Fyrir Svíþjóðardvölina starfaði
hún hjá Mannvit verkfræðistofu
og kynntist orkugeiranum, sem
heillaði hana. „Á bak við innstung-
una hjá okkur leynist heil veröld,
f lókin og heillandi. Í Svíþjóð tók ég
stjórnun og orkumál í mínu námi.“
Svandís byrjaði í þróun á við-
skiptaskilmálum þegar hún hóf
störf hjá Landsneti en starfið
þróaðist hratt. „Þetta var nýtt og
enginn í rauninni að kenna mér.
Ég þurfti því sjálf að læra þetta og
mótaði eins og ég hafði frelsi til. Ég
fékk fljótt aukin verkefni og meiri
ábyrgð og fór fljótt í samtalið og
samningaviðræður við viðskipta-
vini.“
Svandís segist hafa fundið fyrir
því hve hratt hlutirnir eru að
breytast. „Þegar ég fór að spyrjast
fyrir innan fyrirtækisins um
hvernig þetta hefði verið gert
komst ég að því að samningavið-
ræður við viðskiptavini höfðu
verið mjög fátíðar. Litlar hreyf-
ingar höfðu orðið í viðskiptavina-
hópnum í töluvert langan tíma.“
Samtal við viðskiptavini
„Um 2016 förum við að finna
fyrir miklu meiri hreyfingu og
samningaviðræður voru allt í
einu orðnar tíðar og almennar. Ég
þurfti í raun að leggja til hliðar allt
sem mér hafði verið sagt og stóð
frammi fyrir nýjum veruleika fyrir
fyrirtækið. Á þessum sex árum
sem liðin eru hafa bæst við einn til
tveir nýir viðskiptavinir á hverju
ári, sem er alveg nýtt. Þeim hefur
fjölgað um 45 prósent. Þegar horft
er til þess að við tökum eingöngu
inn mjög stóra viðskiptavini er
þetta mjög mikið,“ segir Svandís.
Viðskiptavinir Landsnets eru
raforkuframleiðendur og þeir sem
hafa leyfi til að selja raforku, stór-
notendur og dreifiveitur. Landsnet
flytur rafmagnið frá raforkufram-
leiðendum til stórnotenda og
dreifiveitna sem dreifa því svo til
almennings og minni notenda.
Gagnaverin byrjuðu að koma
inn 2016 og um svipað leyti raf-
orkusalar, eða raforkumiðlarar,
sem eiga enga orkuframleiðslu
heldur kaupa orku og selja á mark-
aði. Þá breytast þarfir og kröfur og
Landsnet þurfti að laga sig að því.
Drifkraftarnir eru alþjóðleg
áhersla á loftslagsmál og tækni-
bylting. Núna eru vindmyllurnar
að ryðja sér til rúms og vetnisfram-
leiðsla. Matvælaiðnaðurinn er
vaxandi notandi. Fiskeldi og þör-
ungaræktun kallar á orku og sum
fyrirtæki í þessum greinum eru
af þeirri stærð að þau geta tengst
beint við flutningsfyrirtækið án
milliliða.“
Að sögn Svandísar breytist
umhverfið hratt og núna er
áherslan á það sem kalla mætti
einstaklingsmiðaða þjónustu
til viðskiptavina því að þarfir
þeirra eru mjög mismunandi. „Við
leggjum einnig áherslu á upplýs-
ingagjöf og gagnsæi. Miklu máli
skiptir að við öðlumst skilning á
þörfum okkar viðskiptavina og
hagaðila og líka að þeir skilji okkar
umhverfi til að við getum náð
sífellt betri árangri saman.“
Takmörkuð flutningsgeta
„Þrátt fyrir heimsfaraldurinn
sjáum við að mikill áhugi og áform
eru hjá bæði núverandi viðskipta-
vinum um að stækka og vaxa og
líka hafa nýir viðskiptavinir áhuga
á að tengjast okkar kerfi. Þessi
áhugi nýrra aðila kemur bæði frá
framleiðendum og notendum.
Í þessu gróskuástandi sjáum við
líka glötuð tækifæri vegna flutn-
ingstakmarkana. Allt að 25 prósent
fyrirspurna um tengingar notenda
koma frá Reykjanesi og áætlað
er að glötuð tækifæri í atvinnu-
sköpun þar nemi fjórum til sex
milljörðum á ári. Við erum hins
vegar með fullnýtta flutningsgetu
út á Reykjanesið og erfitt hefur
verið að koma Suðurnesjalínu 2 í
framkvæmd. Hún myndi tengja
Hafnarfjörð og Reykjanesið til að
tryggja aukið afhendingaröryggi
og auka getu til að bregðast við
nýjum tækifærum.
„Þar sem Landsnet er eina
flutningsfyrirtækið með sérleyfi til
orkuflutninga á Íslandi er mikil-
vægt fyrir okkur að vera upplýst og
læra og deila með öðrum flutnings-
fyrirtækjum í Evrópu,“ segir Svan-
dís. „Ég sit í markaðsráði samtaka
evrópskra flutningsfyrirtækja,
ENTSOE. Þar fylgist maður með og
lærir og deilir reynslu. Á sumum
sviðum eru önnur lönd komin
lengra en við og þá getum við nýtt
okkur þeirra reynslu. Svo erum við
brautryðjendur á öðrum sviðum og
miðlum þá af okkar reynslu.
Það er gaman að segja frá því
að við erum brautryðjendur í
snjalltengivirkjum, snjallbúnaði.
Hvernig notendur og framleið-
endur geta tekið þátt í því að stýra
flutningskerfinu þegar eitthvað
gerist og hjálpað okkur að tryggja
afhendingaröryggi. Í sumum til-
fellum erum við að þróa þjónustu
með þeim í þróunarverkefnum.“
Jafnrétti er mikilvægt
Svandís var kosin formaður jafn-
réttisnefndar Landsnets þegar hún
var stofnuð haustið 2020. Einnig
situr hún í stjórn félags sem heitir
Konur í orkumálum. Í fyrra kom
út á vegum þess félags skýrsla um
stöðu kvenna í orkugeiranum.
Orkugeirinn er karllægur geiri.
Konur eru um 27 prósent starfs-
fólks. Ákvörðunarvald liggur hjá
konum í 36 prósentum tilfella í
orkugeiranum. „Hjá Landsneti
erum við með 22 prósent starfs-
fólks konur og hefur það aukist
aðeins síðustu ár. Staðan er betri
þegar kemur að stjórnarmönnum
og millistjórnendum. Konur eru
í meirihluta í stjórn Landsnets og
stjórnarformaðurinn er kona.
Landsnet er jafnlaunavottað
fyrirtæki og hefur sú vottun verið
að koma mjög vel út. Jafnrétti er
mikilvægur hluti af okkar stefnu
og ég tel að kynjajafnrétti og jafn-
rétti almennt skiptir máli fyrir
fyrirtækið á breytingatímum,“
segir Svandís Hlín Karlsdóttir. n
Þjóðvegur orkuflutninga í breyttu umhverfi
Mikið hefur breyst á
íslenskum orkumarkaði á
undanförnum árum. Aukin
orkufrek starfsemi kallar á
uppbyggingu hjá Landsneti
sem sér um flutning raforku
og kerfisstjórnun. Breytt
umhverfi kallar á aukið
samtal og samráð og opnara
ferli en áður.
Elín Sigríður Óladóttir samráðs-
stjóri Landsnets hóf störf hjá
fyrirtækinu árið 2017 í nýju starfi
innan fyrirtækisins en tekin hafði
verið ákvörðun hjá Landsneti í
kjölfar endurskoðunar á stefnu
fyrirtækisins að auka samtal og
samráð út í samfélagið og leggja
áherslu á opið og gagnsætt ferli.
„Það var ekki eins og þessi
ákvörðun á að breyta stefnu dytti
bara af himnum ofan. Fyrirtækið
hafði fengið á sig gagnrýni fyrir
skort á upplýsingum og samtali og
samráði. Fyrirtækið hafði fengið
á sig kærur og framkvæmdir eins
og uppbygging nýrrar byggðalínu
hafði tafist,“ segir Elín.
„Aukið samráð og samtal var
liður í því að bæta verklag og ná
sátt út í samfélagið. Við skoðuðum
hvað væri að gerast hjá sambæri-
legum fyrirtækjum erlendis,
hvað hefur gengið vel þar. Einnig
skoðuðum við hvað væri að gerast
hér á Íslandi á þessum vettvangi,
pikkuðum upp alls konar og
þróuðum fyrir okkur. Þetta er
búið að vera mikið þróunarstarf
þessi fimm ár sem liðin eru og ég
hef verið svo heppin að fá að leiða
þetta starf með frábæru starfsfólki
innan Landsnets mér við hlið.“
Samráðinu er skipt upp eftir
því hvort það er á landsvísu eða
svæðisbundið. Á landsvísu starfar
hagsmunaráð. Verkefnaráð eru
svæðisbundin og svo eru það
landeigendur.
Margir koma að borðinu
Hagsmunaráð var sett á stofn
að tillögu ráðherra ferðamála,
iðnaðar- nýsköpunar sem liður í
auknu samráði um uppbyggingu
grunninnviða. Landsnet sér um
ráðið en formaður er skipaður af
ráðherra. Hagsmunaráð fundar
reglulega yfir árið og er ráðgef-
andi varðandi gerð kerfisáætlunar
og uppbyggingu meginflutnings-
kerfisins. Í ráðinu sitja meðal
annarra fulltrúar orkugeirans,
orkunotenda, fræðasamfélagsins
og umhverfis og samfélags.
Svæðisbundin verkefnaráð eru
mynduð utan um tiltekin verk-
efni. „Þar erum við fyrst og fremst
að horfa til framkvæmda sem
eru matsskyldar,“ segir Elín. „Við
erum samt alltaf að víkka út og
þróa umfang samráðsins. Þetta er
í stöðugri endurskoðun með það
að markmiði að gera enn betur.“
Í verkefnaráðum situr fólk
af svæðinu á borð við fulltrúa
sveitarfélaga, umhverfissamtaka
og fræðasamfélagsins. „Raunar
svipar þessu mjög til samsetn-
ingar Hagsmunaráðs nema bara
að þetta er svæðis- og verkefna-
bundið og einungis á meðan við-
komandi verkefni er í gangi.
Lögð er áhersla á jafnvægi
við skipan í ráðin og að ná yfir
þá þætti sem við vinnum með,
öryggi, verðmæti og umhverfi
og samfélag. Áhersla er á að hafa
sem mesta breidd og að hóparnir
verða að vera nægilega stórir til
að endurspegla sem flest sjónar-
mið og er meðal annars horft til
þess við skipan fulltrúa í ráðin að
kynjahlutfallið sé sem jafnast.
Landeigendur sitja ekki í verkefn-
aráðum enda sá hópur fjölbreyttur
og fjölmennur og því höfum við
verið með sérstakan vettvang fyrir
þá sem starfar á svipuðum grunni
og verkefna ráðin,“ segir Elín.
Konur í orkumálunum
Elín segir það vera áskorun að vera
kona í þessu fagi þar sem karl-
menn eru enn í miklum meiri-
hluta. Sem dæmi megi nefna að
fyrir stuttu hafi hún verið ásamt
tveimur öðrum konum á fundi
með hagaðilum og þar hafi verið
haft á orði að það væri nú ágætt að
enginn jakkafataklæddur kall væri
með þeim í för, en ekki væri nú víst
að viðhorfið gagnvart einhverjum
framkvæmdum breyttist þótt ein-
hverjar nútímakonur væru sendar
á svæðið. „Við konur í þessari
grein þurfum alveg undir vissum
kringumstæðum að gera upp við
okkur hvort við viljum halda okkur
innan þægindarammans og hafa
karlkyns aðila með okkur á svona
fundi eða halda ótrauðar áfram
í skapa nýja og breytta ímynd á
þessu sviði þar sem konur eru að
hasla sér völl og taka að sér ólík og
fjölbreytt hlutverk.
Þegar fjallað er um efni eins
meginflutningskerfið er viðhorfið
að einhverju leyti þannig að enn
þykir nokkuð nýmæli þegar konur
mæta. En svona er þetta bara. Þetta
er að breytast en það gerist ekki á
einni nóttu. Á vissan hátt er þetta
skemmtilegt og allir hafa tekið
okkur vel.“
Elín segir að áhersla Landsnets
með þessu formlega samráði sé
að halda ferlinu opnu og gegn-
sæju. Þau gangi auðmjúk til þessa
samstarfs og markmiðið sé að hafa
ferlið gagnvirkt. „Við erum með
hefðbundna fundi þar sem fram
koma hugmyndir og tillögur auk
vinnustofa, okkar viðbrögð eru að
bregðast við, auka rannsóknir á
ýmsum sviðum, meta nýja kosti,
ítarleg umfjöllun um ákveðið efni
og breytingar á línuleið.
Það hafa bara orðið svo miklar
breytingar í þessum málum. Fólk
vill fá að taka þátt í ákvarðanatöku.
Það vill upplýsingar og gagnsæi.
Fyrir 50 árum var bara flaggað og
bökuð rjómaterta þegar vinnu-
flokkar mættu og rafmagn kom á í
dalnum. Núna vill fólk samráð, fá
að vera með, koma sinni skoðun að
og hafa áhrif og það er líka okkar
vilji hjá Landsneti að vinna með
fólkinu,“ segir Elín.
Samráð er ekki átak sem er í
gangi hjá Landsneti heldur er þetta
orðið hluti af ferli framkvæmda og
fyrirtækið hefur metnað til að þróa
þetta áfram.
„Við höfum fulla trú á því að
samráð og samtal sé leiðin fram á
við. Samráðið er jafn mikilvægur
þáttur og annað í ferlinu. Því fyrr
í ferlinu sem við byrjum sam-
ráðið því betra. Fólk fær tækifæri
til að koma að sínum tillögum og
athugasemdum og tími gefst til að
bregðast við.“
Elín, sem situr í jafnréttisnefnd
hjá Landsneti, segist í gegnum
tíðina hafa látið sig jafnréttismál
miklu skipta og er ánægð með
hvernig þau mál eru að þróast hjá
fyrirtækinu þó að auðvitað vildi
hún að breytingar í átt að jafnara
kynjahlutfalli gengju hraðar fyrir
sig. „Í gegnum samráð og samtal
náum við til mikils fjölda fólks sem
gerir okkur kleift að opna gátt inn
í orkugeirann og sífellt fleiri sjá að
þetta er skemmtilegur og áhuga-
verður vettvangur sem spannar ólík
svið og mörg áhugaverð störf í boði
sem henta fólki af öllum kynjum,
á ólíkum aldri og með fjölbreyttan
bakgrunn,“ segir Elín Sigríður Óla-
dóttir. n
Samtal og samráð er leiðin fram á við
Svandís Hlín Karlsdóttir er yfir þjónustu við viðskiptavini og viðskiptaþróun
hjá Landsneti. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Elín Sigríður Óladóttir, samráðsstjóri Landsnets. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
60 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU