Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 88

Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 88
Á Hvolsvelli reka tengda- dóttirin Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir og tengda- mamman Björg Árnadóttir fyrirtækið Midgard Advent- ure og Midgard Base Camp, í samstarfi við soninn og eiginmanninn Arnar Gauta Markússon og vininn Stefan Michel. Midgard var stofnað 2010. Í fyrstu var aðaláherslan á prívat ferðir fyrir útlendinga. „Árið 2015 keyptum við iðnaðarhúsnæði hér á Hvolsvelli sem hafði verið í lítilli notkun í mörg ár, gerðum það upp og opnuðum dyrnar á Midgard Base Camp árið 2017,“ segja þær stöllur Hildur og Björg. Gleði, sjálfbærni, fjölskylda, umhyggjusemi og ævintýri „Midgard Base Camp hýsir í dag alla starfsemi okkar: gistinguna, veitingastaðinn og ferðaþjón­ ustuna. Hönnunin á rýminu er lífleg og á að endurspegla gildin okkar: gleði, sjálfbærni, fjölskyldu, umhyggjusemi og ævintýri. Mid­ gard Base Camp er orðið ein helsta miðstöð ævintýra og menningar á Suðurlandi: Útivistarnámskeið, fyrirlestrar, uppistand og fullt af tónleikum, bæði með lista­ mönnum úr héraði og öðrum, eins og Bríeti, Hjálmum, Moses Hightower, Góssi, Ásgeiri Trausta og mörgum öðrum. Á veitinga­ staðnum er maturinn unninn frá grunni, við notum hráefni úr nær­ umhverfinu og tryggjum góðan mat fyrir grænkera. Draumurinn er að það verði sjálfsagður hluti af ferðalagi Íslendinga um Suðurland að koma við í mat á Midgard, fá sér góðan drykk og skemmtilegan og áhugaverðan mat í upplífgandi umhverfi.“ Kvennaferðir vinsælar „Síðustu tvö ár hafa reynt á sköp­ unargleðina til að aðlagast breytt­ um aðstæðum. Áður voru um 80% okkar gesta frá Bandaríkjunum en í dag er helmingur gesta, bæði í gistingu og ferðum, Íslendingar. Við höfum lagt aukna áherslu á gönguferðir síðustu tvö ár og erum að þróa nýjar og skemmtilegar vörur. Göngurnar okkar á Fimm­ vörðuháls og Grænahrygg hafa verið feikilega vinsælar. Ferðirnar eru svolítill lúxus, fólk gistir hjá okkur, við flytjum það á staðinn, vísum því veginn og eldum fyrir það í lok ferðar, á meðan fólk slakar á í heitum pottum eða í bjórjóga. Kvennaferðir hafa verið vinsælar hjá okkur síðustu 3 ár og okkur þykir það frábær hópur að ferðast með. Í sumar ætlum við að halda okkur við uppáhaldssvæðið okkar, Fjallabak, og bjóða upp á fleiri göngur þar. Við skelltum nýverið á heimasíðuna tveggja daga lúxus kvennaferð á Laugaveg­ inn með óvæntum uppákomum og gleði, sem við erum mjög spenntar fyrir og erum vissar um að verði algjört æði!“ Mjög fjölbreyttur gestahópur Midgard hefur unnið með kvik­ myndatökufyrirtækjum og hentar staðurinn vel fyrir slík verkefni. Skólahópar sem eru að læra um endurnýjanlegar orkulindir og sjálfbærni eru einnig stór hluti af gestum þeirra. „Við teljum Ísland vera eina bestu skólastofuna fyrir sjálf­ bærnimenntun og viljum gjarnan vinna meira með slíka fræðslu í okkar ferðum. Síðast en ekki síst þá vitum við að það sem við bjóðum upp á hentar vel fyrir vinnufundi, fyrirtækjaferðir, afmæli og brúðkaup. Auðvelt er að leigja allt húsið og fá okkur til að skipuleggja og framkvæma óvæntar uppákomur og ferðir. Kokkunum finnst mjög gaman að vinna með matarhugmyndir fyrir mismunandi hópa og við hrein­ lega elskum að koma fólki á óvart í upplifun í mat og ferðum,“ segja þessar hugmyndaríku konur. Þess má til gamans geta að hin tengdadóttirin, Rannveig Ólafs­ dóttir, rekur Iceland Bike farm á Kirkjubæjarklaustri, ásamt Guðmundi Fannari Markússyni, sambýlismanni sínum. Tengda­ mæðgurnar eru því að verða alls­ ráðandi á Suðurlandi! ■ Miðstöð ævintýra og menningar á Suðurlandi Hildur Guðbjörg Kristjánsdóttir og tengda- mamman, Björg Árnadóttir, reka saman fyrir- tækið Midgard Adventure. MYND/AÐSEND Áður voru um 80% okkar gesta frá Bandaríkjunum en í dag er helmingur gesta, bæði í gistingu og ferð- um, Íslendingar. Hildur Guðbjörg Membrasin Vision Vitality Augnúði gegn þurrki og þreytu í augum – úðast á augnlok, má nota með farða og augnlinsum. Bætiefni gegn þurrki í augum og verndar einnig gegn skaðlegum áhrifum skjánotkunar. Vörur sem virka gegn þurrki Membrasin Woman Vitality Krem sem virkar gegn þurrki í leggöngum og á ytri kynfærum. Bætiefni sem nærir og vinnur gegn þurrki í allri slímhúð og húð. Inniheldur hafþyrnisolíu SBA24® - Omega 7, FLORAGLO® lutein og zeaxanthin Inniheldur hafþyrnisolíu og hýalúronsýruInniheldur hafþyrnisolíu, hýalúronsýru og mjólkursýru Inniheldur hafþyrnisolíu SBA24® - Omega 7 Nánar upplýsingar um vörurnar og sölustaði á www.numereitt.is/membrasin 68 kynningarblað 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFÉLAG KVENNA Í ATVINNULÍFINU
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.