Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 102

Fréttablaðið - 20.01.2022, Page 102
Einar Falur Ingólfsson sýnir ljósmyndir í Berg Contemp­ orary. Sýningin hefur yfir­ skriftina Um tíma – Dagbók tuttugu mánaða. Sýningin stendur til 26. febrúar. kolbrunb@frettabladid.is „Þetta er dagbók frá haustinu 2018 fram á sumarið 2020 þegar Covid var skollið á af fullum krafti,“ segir Einar Falur. „Ég hef nokkrum sinnum gert tímabundnar dag­ bækur í ljósmyndun og ætlaði mér upphaflega að gera dagbók í átján mánuði en vegna Covid lengdi ég tímann í tuttugu mánuði. Þegar ég byrjaði á þessu verki voru merkileg hvörf að verða í lífi fjölskyldunnar því dætur mínar voru að f lytja að heiman. Svo skall Covid á. Yngri dóttir mín var send heim úr skóla í Noregi og endaði í sóttkví í sumar­ bústað og hin fékk ekki að koma heim frá Danmörku. Ég lauk þess­ ari dagbók þegar hún fékk loks að koma heim og fjölskyldan var sam­ einuð á ný.“ Verkefni Einars Fals fjallar þó engan veginn einungis um fjöl­ skyldu hans. „Í verkum mínum er ég alltaf að vinna með tímann og blanda saman áhugamálum sem eru hér myndlist, bókmenntir, for­ tíð og saga. Ég ákvað að gera verk­ efni þar sem ég væri ekki bara að takast á við eigið líf og fjölskyldu minnar heldur vildi ég líka skoða hinn íslenska menningarsögulega bakgrunn og spegla mig um leið í eldri menningarheimum.“ Spegill á Ísland Dagbók Einars Fals teygir sig til Ind­ lands, Rómaborgar og Egyptalands. „Undanfarin ár hef ég verið með vinnustofu um tíma á Indlandi í Var­ anasi, sem er elsta borg á jörðinni. Ég ákvað að nota hana sem spegil á Ísland. Svo var ég með vinnustofu í Róm sem er borg sem hefur mótað kristna menningu okkar og mynd­ listina og vann svo líka á Egypta­ landi sem er annar menningar­ sögulegur kjarni sem hefur mótað okkur. Ég var líka að vinna með verk annarra listamanna. Tók til dæmis myndir í Róm af sömu sjónarhorn­ um og bandaríski ljósmyndarinn Joel Sternfeld myndaði fyrir 40 árum en hann er einn þeirra listamanna sem hafa haft talsverð áhrif á mína sýn. Í Róm vann ég til að mynda líka út frá lífi og verkum ítalska meistar­ ans Caravaggio sem lést 1610.“ Blossi í eilífðinni Sýning Einars Fals einkennist af alls kyns tímalínum. Sem dæmi má nefna stórt verk sem samanstendur af ljósmyndum af rjóðri sem hann myndaði reglulega í tuttugu mán­ uði. „Þetta rjóður er griðastaður minn, þarna hangir hengirúmið mitt þar sem ég ligg og les.“ Tvær ljósmyndir frá Indlandi, teknar með árs millibili, sýna hjól sem er á nákvæmlega sama stað, það eina sem hefur breyst á einu ári er að búið er að skipta um hnakk á hjól­ inu og veggurinn í bakgrunni hefur verið málaður. Tvö vídeó eru á sýningunni. „Annað þeirra er eins og stór ljós­ mynd og sýnir hengirúmið mitt – og svo fer að snjóa og myndin lifnar við. Hitt vídeóverkið má segja að sé hjart­ að eða gangverkið á sýningunni. Það sýnir fætur manns á Indlandi sem hjólar með okkur í gegnum lífið. Við erum inni í umferðinni og hávað­ anum,“ segir Einar Falur. Í tengslum við sýninguna kemur út bók sem geymir verk sýningarinn­ ar auk fleiri verka. Opnunarmyndin sýnir indverskan dreng með logandi eldspýtu. „Þar er ég að hugsa um það hvernig líf mitt er eins og lítill blossi í þessari eilífð,“ segir Einar Falur. Hann bætir við: „Ekkert í uppsetn­ ingu sýningarinnar og samsetningu bókarinnar er tilviljun. Ég er mjög konkret í minni hugsun. En svo er það þannig að sýning eins og þessi verður til tvisvar. Fyrst hjá lista­ manninum og svo hjá fólkinu sem gengur inn í galleríið og býr hana til upp á nýtt.“ n Sýning með alls kyns tímalínum Ég er mjög konkret í minni hugsun, segir Einar Falur. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Myndin er tekin í borginni Varanasi á Indlandi, árið 2019. Hún sýnir umbúnað um tímabundið hindúahof úti á götu í þessari elstu borg jarðar. Ég ákvað að gera verkefni þar sem ég væri ekki bara að takast á við eigið líf og fjölskyldu minnar heldur vildi ég líka skoða hinn íslenska menningarsögulega bakgrunn og spegla mig um leið í eldri menningarheimum. kolbrunb@frettabladid.is Einkasýning Ragnheiðar Sigurðar­ dóttur Bjarnarson, Ljósbrot, stendur yfir í Listasal Mosfellsbæjar. Sýning­ unni lýkur 4. febrúar. R ag nheiðu r Sig u rða rdót t ir Bjarnarson (f. 1986) er alin upp í Mosfellsbæ. Hún útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands sem danshöf­ undur árið 2009, með meistarapróf í gjörningalist í almenningsrými frá Gautaborgarháskóla árið 2014 og með kennsluréttindi frá Listaháskóla Íslands árið 2017. Ragnheiður hefur haldið fjölda sýninga, bæði hér á landi og erlendis. Hún fæst aðallega við myndverk en einnig gjörninga og dansverk. Ragn­ heiður er í samstarfi með fjölþjóð­ lega hópnum Onirism Collective og dúettinum RebelRebel. Árið 2018 stofnaði hún galleríið Midpunkt í Hamraborg ásamt Snæbirni Brynj­ arssyni. Út frá því samstarfi varð árið 2021 til Hamraborg Festival. Galleríið er í pásu eins og er en stefnt er að því að halda aðra Hamraborg Festival á þessu ári. Sýningin Ljósbrot er hluti af stærra rannsóknarverkefni Ragnheiðar á hugtakinu „hægt“. Rannsóknin á uppruna sinn í göllum samfélagsins og er leitað að því að skapa ró, yfir­ vegun, núvitund, hægar hreyfingar og hugsanir. Á sýningunni koma saman verk af ýmsum toga; vídeó, skúlptúrar, lágmyndir og málverk. n Ljósbrot í Listasal Mosfellsbæjar Eitt af verkunum á sýningu Ragn- heiðar í Mosfellsbæ. MYND/AÐSEND Á sýningunni koma saman verk af ýmsum toga; vídeó, skúlptúrar, lágmyndir og málverk. Á morgun, föstudaginn 21. janúar, verður sýningin Snjóf lygsur og önnur undur (Snowflakes and other surprises) opnuð í Fotografisk Center listamiðstöðinni í Kaupmannahöfn. Á sýningunni eiga 16 listamenn frá 4 löndum verk. Þeirra á meðal eru fjórir íslenskir listamenn, Einar Falur Ing­ ólfsson, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Katrín Elvarsdóttir og Tinna Gunn­ arsdóttir. Sýningarstjóri sýningar­ innar er Sigrún Alba Sigurðardóttir. Á sýningunni er unnið með ljós­ myndina sem frásagnaraðferð og sjónum beint að listamönnum sem í verkum sínum fanga tilveruna, og ekki síst ýmis undur náttúrunnar. Auk ljósmynda sýnir Tinna Gunn­ arsdóttir þrívíð verk og hljóðlista­ maðurinn Jacob Kirkegaard er með verk sem höfðar til allra skynfæra. Þá eiga margir af fremstu ljós­ myndurum Norðurlanda verk á sýningunni og má þar nefna, Elinu Brotherus, Trinu Søndergaard og Magnus Wennman. n Snjóflygsur í Kaupmannahöfn Elina Brotherus, úr seríunni Sebaldiana. Memento mori, 2019.  MYND/AÐSEND 22 Menning 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 20. janúar 2022 FIMMTUDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.