Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 106
Það hafa
ekki allir
upplifað
það að sjá
pabba sinn
klæða sig í
sokka-
buxur.
Þórhallur Þór
hallsson
Þjóðargersemin óumdeilda
og alvöru áhrifavaldurinn
Þórhallur Sigurðsson, hinn
eini sanni Laddi, er 75 ára
í dag og af því tilefni fékk
Fréttablaðið nokkra vini,
samferða- og jafnvel spor-
göngufólk í gríninu til þess
að leggja mat á áhrif Ladda á
íslenska grínmenningu og hið
fjölmenna og fjölskrúðuga
persónugallerí sem býr innra
með honum.
toti@frettabladid.is
odduraevar@frettabladid.is
„Ég er bara mjög góður,“ sagði Þór-
hallur Sigurðsson, Laddi sjálfur,
við Fréttablaðið í gær, daginn fyrir
75 ára afmælið, og alveg til í fram-
lengda afmælisgleði eins og fyrir tíu
árum þegar afmælissýningin Laddi
6-tugur varð ein vinsælasta grín-
sýning Íslandssögunnar og gekk
fyrir fullu húsi í tvö ár samfleytt.
„Ég væri alveg tilbúinn í það,“
segir Laddi og hlær þegar hann er
spurður hvort 75 ára afmælisgleðin
muni einnig standa í tvö ár. „En það
verður ekki. Af því að við erum með
Háskólabíó bara þessa daga. Því
miður. Það er bara þannig og svona
líka bara til þess að koma í veg fyrir
að þetta fari úr böndunum og verði
í tvö ár.“
Fyrri afmælissýningin hefði
átt að vera í kvöld en faraldurinn
hefur seinkað henni fram í mars.
„Við þurftum að fresta því og það
eru komnar dagsetningar, 18. og 19.
mars.“
Drepfyndið kamelljón
Laddi er sannkallað kamelljón
íslenskrar dægurmenningar sem
hann hefur sett sterkan svip á og
tekið þátt í að móta áratugum
saman. Hann er allt í senn og
einum manni síkvikur skemmti-
kraftur sem hefur sungið, leikið,
grínað, samið og skrifað og kallað
fram hlátur og bros hjá heilu kyn-
slóðunum enda rúmast innra með
honum heill herskari furðufugla og
kynlegra kvista sem margir hverjir
hafa öðlast sjálfstætt líf í þjóðar-
vitundinni.
Gert er ráð fyrir að einhver þeirra
láti sjá sig í Háskólabíói í mars og
næsta víst að Elsa Lund, Marteinn
Mosdal, Eiríkur Fjalar, Saxi læknir
og Magnús bóndi muni láta sjá sig,
hvort sem þeim er boðið eða ekki.
Sérstakir gestir verða hins vegar
Þórhallur Þórhallsson, sonur Ladda
sem telst með fyndnustu mönnum
Íslands, og heiðursgesturinn Hörtur
Howser, samferða-
maður Ladda í
tónlistinni síð-
ustu 40 árin.
Margir aukapabbar
„Ég er ótrúlega stoltur af föður
mínum og öllu sem hann hefur
afrekað og finnst ég ansi lánsamur
að eiga alla þessa aukapabba, Saxa
lækni, Skúla rafvirkja, Eirík Fjalar
og auðvitað sætustu útgáfuna af
pabba, Elsu Lund,“ segir Þórhallur
Laddason, sem hefur fetað í fótspor
þess gamla í gríninu og bíður eftir
afmælisveislunni í Háskólabíói.
„Það hafa ekki allir upplifað það
að sjá pabba sinn klæða sig í sokka-
buxur. Tónlistarmaður, grínari,
myndlistarmaður, leikari og pabbi.
Allt saman eru þetta hlutverk sem
hann hefur tæklað með af bragðs
árangri.“
Í dag kemur hins vegar afmælis-
safnplatan, Það er aldeilis, út á víníl
og geisladiski sem rúma 40 lög frá
löngum söngferli Ladda. „Sko, ég
treysti mér ekki til að velja þetta
þannig að ég bað þá hjá Alda Music
um að fara í málið,“ segir Laddi sem
reyndi að sneiða hjá valkvíðanum
við að fylla plötuna. „Síðan gerði ég
einhverjar smá breytingar á því en
það er svo erfitt fyrir mann sjálfan
að velja svona. Þetta er eins og að
gera upp á milli barnanna sinna.“
Salt jarðar
„Það er svo margt sem ég get sagt.
Ég er búinn að þekkja Ladda svo
ofsalega lengi af því að hann er úr
Hafnarfirði og það gera sér ekki
allir grein fyrir því að Laddi er fimm
árum eldri en ég. Hann verður 75
ára í dag. Ég er sjötugur,“ segir Björg-
vin Halldórsson, tónlistarmaður og
fornvinur Ladda.
Þeir félagar hafa ýmislegt brallað
í gegnum tíðina og gerðu til dæmis
stormandi lukku, ásamt Halla
bróður Ladda, sem HLH flokkur-
inn. „Hann sýndi náttúrlega strax
af sér mikinn hæfileika og fór nú
í Leiklistarskólann en komst nú
ekki að þar. Svo fór hann upp á
Grínfjársjóðnum
Ladda er allt 75
ára gömlum fært
Ótrúleg áhrif eins manns
Vigdís
Hafliðadóttir
uppistands-
grínari
„Það er að
dáunarvert
hvað einn
maður getur
átt stóran þátt
í lífi ólíkra kynslóða. Ég er af
þeirri kynslóð sem kynntist
Ladda fyrst og fremst sem
rödd úr myndbands eða
hljómflutningstæki. Glámur
og Skrámur og lagið um Bú
kollu ómuðu oft úr geislaspil
aranum og ég lagði mig alla
fram við að læra hvert einasta
orð utan að í Roy Roggers.
Ég veit svo ekki hver hefði
betur getað túlkað andann í
Aladdín eða hinn magnaða,
kynþokkafulla og óbugandi
Músjú í Múlan, sem ég hef
séð svona 400 sinnum. Síðar
meir kynntist ég honum sem
stórgóðum leikara og fannst
mjög merkilegt að heyra að
Svíinn í Stellu í orlofi og radd
irnar sem ég þekkti svo vel
væru eini og sami maðurinn.
Þau eru fá á Íslandi sem Laddi
hefur ekki á einhverjum tíma
punkti fengið til að brosa
eða hlæja og það þykir mér
fallegt.“
svið Þjóðleikhússins og lék Fagin í
Oliver Twist og skákaði öllum lærðu
leikurunum á sviðinu.
Hann er bara svo fullur af hæfi-
leikum hann Laddi fyrir utan það að
vera salt jarðar. Hann er svo hreinn
og beinn og góður drengur. Góður
við menn og dýr og alveg heill í gegn
og allt það,“ heldur Björgvin áfram.
„Og hann er bara listfengur. Hann
er farinn að mála eins og brjálæð-
ingur og svo er hann lagahöfundur,
söngvari og náttúrlega leikari par
excellence og er með þessa með-
fæddu tímasetningartækni sem er
alveg sérstök og menn læra ekki í
skólum, sko. Þetta er bara eitthvert
gen í honum og hann er bara ein-
stakur. Einstakur hæfileikapakki.
Og svo er hann í golfinu. Orðinn
ágætur þar og er víst helvíti góður
í sínum aldursflokki,“ segir Bjöggi
og hlær.
Skrámur alltaf uppáhald
„Síðan eru náttúrlega allir þessir
Marteinn
Mosdal á enn
sína dyggu
aðdáendur.
Edda Björgvins
bregður á leik
með Gísla Rún
ari og Ladda í
gömlu áramóta
skaupi.
Björgvin fer fyrir
Brimkló og þá er
gamli vinurinn,
Laddi, ekki langt
undan.
26 Lífið 20. janúar 2022 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 20. janúar 2022 FIMMTUDAGUR