Fréttablaðið - 20.01.2022, Síða 107
Tónlistarmaður, grín-
ari, myndlistarmaður,
leikari og pabbi. Allt
saman eru þetta hlut-
verk sem hann hefur
tæklað með afbragðs
árangri.
Þórhallur Þór-
hallsson
Stórlisforingi
grínsins, Laddi
okkar allra, er
75 ára í dag og
hress að vanda.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Laddi lengir meðalaldurinn
Karl Ágúst
Úlfsson
leikari og
rithöfundur
„Þessi öðlingur
og ótrúlega
undrabarn á af-
mæli í dag. Það
vita auðvitað
allir. Hitt vita
færri, hvað ég er þakklátur fyrir
að hafa fengið að taka þátt í
því ævintýri sem ferill þessa
snillings er,“ segir leikarinn
og Spaugstofumaðurinn Karl
Ágúst Úlfsson sem oft hefur átt
samleið með Ladda í gamni og
alvöru.
„Enginn hefur fengið mig oft-
ar til að hlæja, fáir hafa fengið
mig oftar til að gráta og þeir
eru ekki margir sem hafa vakið
með mér aðra eins aðdáun og
– já, bara gapandi undrun yfir
því hvað einn skrokkur getur
rúmað mikla hæfileika.
Já, hann á afmæli í dag og á
morgun er bóndadagur, sem er
auðvitað vel við hæfi, því það
er dagur Magnúsar og Eyjólfs.
Til hamingju með daginn, Laddi
minn, og hjartans þakkir fyrir
allar fjörurnar sem við höfum
saman sopið. Og svo vil ég líka
þakka þér fyrir hönd íslensku
þjóðarinnar. Þú berð ábyrgð á
sífellt hækkandi meðalaldri í
landinu.“
Það er aldeilis
Safnplatan Það er aldeilis
kemur út í dag þar sem vinsæl-
ustu lögum Ladda hefur verið
þjappað á þrjár vínilplötur og
tvo geisladiska. Lögin eru 40 og
þar á meðal er glænýtt lag eftir
Ladda við texta Braga Valdi-
mars Skúlasonar, Ertu memm?
Þá má þar finna klassíkera á
borð við Búkollu, Súperman, Þú
verður tannlæknir, Jón spæjó,
Tvær úr Tungunum, Skamm-
astu þín svo, Aggadú og Er það
satt sem þeir segja um land-
ann? með HLH flokknum. Að
ógleymdum Roy Roggers, Það
var úti á Spáni, Tarzan apabróð-
ur, Járnkallinum, með Ladda og
Bjartmari, og Tygg-igg-úmmí og
Ég er í svaka stuði þar sem þeir
fara mikinn, Laddi og Gísli Rúnar
heitinn Jónsson.
Bræðurnir Halli og Laddi eru
einnig á sínum stað með Upp
undir Laugarásnum og Eiríkur
Fjalar trommar upp með Nú-
tímastúlkuna hana Nönnu. Tóti
tölvukall, Hvítlaukurinn og Í
Vesturbænum komast einnig
fyrir ásamt Austurstræti, Andr-
ési önd og Það er fjör og þá er
ekki enn allt upp talið.
Kemur alltaf aftur
Stefán Ingvar Vigfússon
uppistandsgrínari
„Það fyrsta sem maður hugsar er
hvað Laddi er mikið náttúruafl.
Hvað hann er með ógeðslega
marga karaktera og hvað hann
hefur verið óendanlega iðinn og
alltaf verið að. Þá hugsar maður
náttúrulega um strumpana.
Það er eitthvert massa dæmi sem ég ætla að
kalla framlag til grínmenningarinnar, að hafa
talsett alla strumpana. Þar er Kjartan galdra-
karl auðvitað íkónískur. Síðan er hann með
eitt besta grín „performance“ í íslenskri kvik-
myndasögu í Stellu í orlofi,“ segir uppistands-
grínarinn Stefán Ingvar.
Þegar talið berst að uppáhalds Ladda-per-
sónu hans nefnir hann umhugsunarlaust
fréttamanninn Martein Mosdal sem er ekki
síst þekktur fyrir að koma alltaf aftur! „Minn
uppáhalds Ladda-karakter er Marteinn Mosdal.
Persóna sem gekk óvænt í endurnýjun lífdaga
fyrir síðustu alþingiskosningar, þökk sé Bjarna
Ben sem sagði að Sósíalistar töluðu máli Mar-
teins Mosdals.
Það má kalla það ákveðið framlag til grín-
menningarinnar þar sem Bjarni var svona upp-
tekinn af karakter frá tíunda áratugnum. Þetta
er uppáhalds karakterinn minn, ekki síst út af
þessari geggjuðu endurvakningu í fyrra,“ segir
Stefán Ingvar og leggur „bónusspurningu“ fyrir
sjálfan sig.
„Áttu þér þinn uppáhaldsstrump? Heyrðu, já,
bara Æðsti-Strumpur. Ég er alltaf mjög mikið
svona pródúsentinn í öllum grínverkefnum,
þannig að ég tengi mjög við hann.“
Deió!
Bragi Valdimar
Skúlason
Baggalútur
með meiru
„Það gleymist
oft að Laddi er
þrusulagahöf-
undur og mjög
músíkalskur.
Hann er sérlega hittinn á
smelli og góðar og grípandi
laglínur, sem þú losnar ekki
svo glatt við af heilanum.
Hann á líka endalaust af
textum sem eru gersam-
lega samansaumaðir við
þjóðarsálina. Deió! segi ég
nú bara,“ segir Bragi Valdimar
sem semur textann við Ertu
memm? - nýjasta lag Ladda,
sem gefur einmitt tóninn
fyrir afmælissafnplötuna Það
er aldeilis sem kemur út í dag.
Bræðurnir Halli og Laddi voru órjúfanlegur gríndúett í upphafi ferilsins
þangað til Halli sneri sér að öðru en Laddi er enn að á fullu.
Þórhallur Sigurðsson, Laddi, í ágúst 1974, snemma á ferli sem hefur heldur
betur reynst farsæll, langur og sérlega fjölmennur.
Eiríkur Fjalar er
uppáhaldspersóna
Ladda, ef marka má
Bó sem er ekki vanur
að fara með fleipur.
karakterar sem eru inni í honum og
ég þekki þá alla. Ég man bara þegar
ég gerði textann við Skrámur skrifar
jólasveinunum og Skrámur hefur
alltaf verið í uppáhaldi,“ segir Bjöggi
og telst til að hann hafi pródúserað
þrjár eða fjórar sólóplötur Ladda.
„Hann sjálfur heldur mest upp
á Eirík Fjalar,“ upplýsir Bjöggi og
varpar síðan ljósi á ýmsa af þeim
furðufuglum sem hafa holdgerst
í Ladda á löngum ferli. „Margir af
þessum karakterum eru kallar úr
Hafnarfirði. Svona menn sem settu
svip á bæinn. Hann er bara með
skúffu af öllum þessum köllum og
svo sýður hann eitthvað upp úr
þessari skúffu og úr verða einhverjir
karakterar.
Hann er náttúrlega bara æðis-
legur. Ég get haldið áfram í allan
dag að tala á þessum nótum,“ segir
Björgvin Halldórsson, sjálfur Bó,
um sinn 75 ára gamla aldavin.
Listamaður á heimsmælikvarða
Leiðir Ladda og leikkonunnar Eddu
Björgvinsdóttur hafa oft og víða
legið saman í gegnum áratugina
þar sem þau hafa grafið upp margan
fjársjóðinn. „Laddi vinur minn, sá
hógværi snillingur, er yfirburða
leikari, alveg sama hvað hann tekur
sér fyrir hendur,“ segir Edda.
„Allt sem hann kemur nálægt
verður fjársjóður. Þetta eru sannar-
lega gjafir guðs sem hann fékk ótal
margar, en svo vinnur Laddi öll sín
hlutverk af svo einstaklega mikilli
færni og næmni að það kemst eng-
inn listamaður með tærnar þar sem
hann hefur hælana. Laddi er ein-
faldlega listamaður á heimsmæli-
kvarða.“
Þegar Edda er spurð út í eftir-
lætis persónu hennar úr galleríi
Ladda stendur ekki á svari: „Margar
týpurnar hans hafa látið mig hlæja
en mitt uppáhald er möppudýrið
rykfallna Marteinn Mosdal. Ég fæ
alltaf kast þegar ég horfi á það kríp,“
segir Edda og
skellir upp
úr. n
FRÉTTABLAÐIÐFIMMTUDAGUR 20. janúar 2022 Lífið 27