Andvari - 01.01.2019, Blaðsíða 59
58 HJALTI HUGASON ANDVARI
þátt í því uppbyggingarstarfi sem framundan var í landinu eftir fall
Sovétríkjanna.236 Þá tók hann oft þátt í biskupsvígslum erlendis.
Ljóst er að þátttaka á hinum samkirkjulega vettvangi var Pétri ekki
aðeins embættisskylda heldur uppörvandi þáttur í starfinu.237
Tvö stefnumál
Á biskupsstóli beitti Pétur Sigurgeirsson sér fyrir tveimur stefnumál-
um öðrum fremur. Annað þeirra beindist aðallega að innri málefnum
kirkjunnar, nánar til tekið starfsháttum hennar. Hitt var alþjóðapóli-
tískt í víðasta skilningi. Hið fyrra hafði einkennt starf hans í kirkj-
unni frá upphafi. Hið síðara var mjög á dagskrá meðal fjölda kirkna
sem og hjá alþjóðasamtökum þeirra, Lútherska heimssambandinu og
Alkirkjuráðinu. Hér er annars vegar átt við aukna fjölbreytni í kirkju-
starfi sem Pétur tengdi nú nýrri hreyfingu, safnaðaruppbyggingu, sem
undir lok starfsferils hans var tekið að stunda víða um lönd samkvæmt
mótaðri hugmyndafræði. Hins vegar er átt við friðarmál en á níunda
áratug liðinnar aldar grúfði kjarnorkuvá yfir mannkyni með svipuðum
hætti og loftslagsváin nú.
Öðrum þræði vísar titillinn á hirðisbréfi Péturs biskups, Kirkjan
öllum opin, til safnaðaruppbyggingarinnar. Sú kirkja sem hann leiddi
skyldi vera öllum opin, ekki aðeins sem „kirkjugestum“, áheyrendum,
áhorfendum eða þiggjendum þjónustu heldur sem fullgildum gerend-
um með eigið hlutverk og þá ábyrgð sem því fylgdi. Um þessa megin-
áherslu hirðisbréfsins sagði Pétur í viðtali:
Ég vil leggja ríka áherslu á að kirkjan okkar er ekki prestakirkja. Þeir eru
nauðsynlegir en einir geta þeir lítið. Söfnuðurinn, leikmennirnir, eiga að
vera hinir lifandi steinar sem uppbyggjast í andlegt hús. Það er kirkjan. […]
Prestarnir leiða starfið, en þeir þurfa lifandi söfnuð og aðra starfsmenn.
— —
Burðarþungi í öllu félags- og safnaðarstarfi til langframa hlýtur að hvíla á
launuðu fólki, en hið mikla og fórnfúsa starf leikmanna við hlið þeirra [þ.e.
prestanna] er jafn nauðsynlegt. Það er svo mikilvægt að fá að gefa frá sér,
fórna af sínu, miðla með sér.238
Hér vék Pétur að einu af einkennum og jafnframt vanda íslensku þjóð-
kirkjunnar sem felst í hve mikil prestakirkja hún hefur löngum verið.
Í því felst að prestar eru drottnandi í öllu starfi kirkjunnar sem víða