Úrval - 01.06.1951, Qupperneq 75
ÁHRIF FREUDS Á LlF OKKAR
73
reiði þegar við heyrum orðið
gyðingur.
Freud lýsti oft skilgreiningu
sinni á huganum með því að líkja
honum við ísjaka: „Hugurinner
eins og ísjaki á floti. Níu tíunau
hlutar eru undir yfirborðinu, að-
eins einn tíundi er upp úr.“
Meðferð Freuds á sumum
geðtruflunum — sálkönnunin —
hefur reynzt almenningi torskil-
in. Sumir líta á hana sem svik
og pretti, aðrir telja hana stærri
þátt sálfræðinnar en hún er í
raun og veru. En hver einasti sál-
fræðingar notar aðferðir henn-
ar að meira eða minna leyti.
Sálkönnunin er ekki í því fólg-
in að finna hvað býr að hurðar-
baki í huga sjúklingsins, skýra
honum frá því og láta hann svo
sjálfan um afganginn. Það verð-
ur að leiðbeina sjúklingnum til
að finna það sjálfur. Það er
ekki nóg að segja honum hver
sé rót erfiðleikanna, hann verð-
ur að trúa því sjálfur.
Freud hefur öft verið gagn-
rýndur fyrir það, að hann hafi
dregið ályktanir sínar um eðli
hugans af athugunum á geð-
trufluðu fólki. Freud svaraði
því til, að munurinn á geðtrufl-
uðu fólki og heilbrigðu væri að-
eins stigsmunur.
Einnig hefur honum verið
fundið til foráttu, að hann geri
alltof mikið úr áhrifum kyn-
lífsins. Sumir sálfræðingar telja,
að aðrar hvatir séu engu áhrifa-
minni, t. d. sjálfsbjargarhvötin.
Enn aðrir afneita því með öllu,
að mennirnir láti kynhvötina í
nokkru stjórna gerðum sínum.
En hvað sem þessari gagn-
rýni lýður, þá hafði Freud mikil
áhrif í þá átt að svifta hulu
leyndardóms og blygðunar af
öllu í sambandi við geðsjúkdóma
og geðflækjur, og þetta gerði
hann, þó að orðstír hans og
lífshamingja biði við það tjón.
Það er aldrei skemmtilegt að
helga líf sitt fólki, sem þjáist.
Það er oft næstum óþolandi með-
an það er veikt. En þrautseigja
Freuds var óbifanleg. Óvinir
hans voru eymd, kvíði, örvænt-
ing og nagandi sektarvitund.
Á þeim tímum voru þessir
sjúkdómar hugans ekki aðeins
taldir ólæknandi heldur einnig
óhreinir. Freud reyndi að lækna
þá. Laun hans voru þau að fá
örlitla innsýn í það hvernig líf-
ið starfar. Gjaldið sem hann
varð að greiða var að tileinka
sér reynslu margra kvalinna
sálna, að dvelja í myrkrinu við
hlið vansælla manna og kvenna,