Úrval - 01.06.1959, Síða 16
TJRVAL
KlNVERSKA KOMMÚNAN 1 TVENNSKONAR LJÓSI
ekki fara varhluta af þægind-
um nútímans.“
Mér er næst að trúa þessum
upplýsingum kínverska em-
bættismannsins og þá um leið
álykta, að aflvaki þjóðkomm-
únanna hafi ekki verið hópur
opinberra valdamanna í fjar-
lægri borg, heldur hinn harði
kjarni kommúnistískra bænda,
sem höfðu sprottið upp hvar-
vetna í sveitunum í tugþúsunda-
tali.
Ef mér skjátlast ekki, sýnir
þessi rás viðburðanna það og
sannar, að kommúnisminn í
Kína er enn sterk fjöldahreyf-
ing og að leiðtogarnir verða
ennþá að taka tillit til hins ó-
breytta almúga.
— ★ —
Mikið fyrir lítið.
„Sjáðu fötin, sem ég er í,“ sagði Smith við vin sinn. „Ullin í
þeim var ræktuð í Ástralíu, klæðið var ofið í Englandi, tvinn-
in er frá Indlandi, fötin voru saumuð i Kanada og ég keypti
þau i Bandaríkjunum!"
„Hvað er svo sem merkileg við þetta?" spurði. vinurinn.
„Merkilegt ?“ endurtók Smith. „Er það kannski ekki merki-
legt, að svona margir skuli hafa aflað sér lífsviðurværis á því
að búa til þessi föt — sem ég er ekki einu sinni farinn að borga
ennþá ?“
—• Side Tracks.
—O—
Bakreikningur.
Laglegur, ungur hjúkrunarnemi hafði verið trúlofuð ungum
lækni, en nú var slitnað upp úr trúlofuninni og hjúkrunarnem-
inn var að segja vinkonu sinni frá þvi.
„Guð, hvað segirðu," mælti vinkonan dolfallin. „Heimtaði
hann allar gjafirnar, sem hann hafði gefið þér, aftur?“
„Já, og ekki nóg með það,“ sagði hjúkrunarneminn. „Hann
sendi mér líka reikning fyrir 36 vitjanir!"
— American Weekly.
—O—
Að gefa af glöðu hjarta.
Faðir hafði gefið syni sínum einn tveggjakrónupening og
einn krónupening. Tveggjakrónupeninginn átti hann að láta í
söfnunarbaukinn í kirkjunni, en krónupeninginn mátti hann eiga
sjálfur. Eftir messuna spurði faðirinn soninn, hvort hann hefði
látið tveggjakrónupeninginn í baukinn.
„Nei, pabbi,“ sagði snáðinn. „Ég lét krónupeninginn, því að
presturinn sagði, að við ættum alltaf að gefa af glöðu hjarta,
og ég gaf krónupeninginn af miklu glaðara hjarta en tveggja-
krónupeninginn. “
— Eastern Kentucky Progress.
12