Úrval - 01.06.1959, Blaðsíða 34
VÉLIN, SEM BREYTIR HITA í RAFMAGN.
Grein úr „Popular Mechanics“,
eftii' Harland Mancliester.
1r rannsóknarstofu Westing-
house í Pittsburgh sá ég
gamaldags teketil úr kopar
standa púandi á gasplötu, en
rétt þar hjá stóð lítið útvarps-
tæki, sem sendi frá sér dillandi
valstóna. Þetta kom kunnuglega
fyrir sjónir, en ekki var það allt
sem sýndist. TJtvarpstpekið var
ekki tengt í innstunguna á
veggnum og það var heldur
ekki ferðatæki, knúð rafhlöðu.
Orku sína fékk það gegnum
taug, sem lá úr katlinum, en við
botn hans hafði í tilraunaskyni
verið settur ,,hitarafall“, sem
breytir hita í rafmagn milliliða-
laust.
Ef hundruð vísindamanna
og verkfræðinga um heim allan
hafa á réttu að standa, er hér
kominn fram á sjónarsviðið
orkugjafi framtíðarinnar, jafn
heillandi í augum okkar og
ketillinn, sem kom róti á hug-
myndaflug James Watt fyrir
tæpum tvö hundruð árum.
Teketill Watts varð að gufu-
katli, og megnið af raforku nú-
tímans er fengið með því að
brenna olíu undir kötlum og
nota gufuna til að knýja
hverfla, sem svo aftur knýja
rafalana. Um tugi ára hafa
verkfræðingar kvartað yfir, að
þessi aðferð sé þung í vöfum,
dýr og hávaðasöm, og þá héfur.
dreymt um að losna við hinn
vélræna millilið og breyta hita í
rafmagn með einfaldri, hljóð-
lausri aðferð.
Og hin hraða tækniþróun nú-
tímans hefur líka skilið eftir
spor sín á þessu sviði. f rann-
sóknarstofunum má sjá tugi
,,hitarafala“, af ýmsum gerð-
um, sem í tilraunaskyni knýja
útvapstæki, kveikja á ljósa-
perum, snúa viftum, hita pela
ungbarna og framkvæma ýmis
önnur störf.
I Sovétríkjunum eru hitaraf-
tæki komin á markaðinn í stór-
um stíl. Að sögn eru gamaldags
olíulampar með útbúnaði til að
breyta hita milliliðalaust í raf-
magn, notaðir til að knýja út-
varpstæki í rússneskum þorp-
um. Orkuþörf þeirra er lítil;
verkfræðingar hafa reiknað út,
að þau gangi í einn sólarhring á
einum lítra af olíu. Westing-
house hefur smíðað léttari og
afkastameira tæki, sem notar
transistora í stað lampa og get-
ur gengið í tíu daga á sama
olíumagni. Einnig má nota
hita frá viðarkolaeldi sem afl-
gjafa fyrir það. Verkfræðing-
3Q