Úrval - 01.06.1959, Blaðsíða 37
DALEIDDIR SJUKLINGAR
Úr bókinni ,,The Healing Voice“,
eftir <lr. A. Philip Magonet.
DAG einn í marzmánuði 1781
ók póstvagn að dyrum húss-
ins númer 261 við Landstrasse
í Vín, og ungur maður steig út
úr honum.
„Viljið þér segja dr. Mesmer,
að Wolfgang Mozart bíði eftir
honum niðri,“ sagði hann við
þjóninn, sem kom til móts við
hann.
Mozart var nýkominn til Vín-
ar til að hitta Mesmer, vegna
þess að læknirinn hafði reist
dálítið leikhús á óðalssetri sínu
og hafði sýnt þar fyrstu Vínar-
óperu Mozarts.
Franz Anton Mesmer var
Þjóðverji, en stundaði læknis-
nám sitt í Vínarborg. Þegar vin-
irnir höfðu heilsast, fóru þeir
í smágönguferð um garðinn.
Meðan þeir ræddust við kom
ung kona til þeirra og ávarpaði
Mozart. Hann áttaði sig ekki á
því í fyrstu, hver það var.
„Nei, það er þó ekki ungfrú
Franzl!“ hrópaði hann allt í
einu undrandi. „En hve þér eruð
orðin feit og pattaraleg. Þegar
ég var hér fyrir fimm árum
voruð þér heilsulaus aumingi,
sem við höfðu litla von um að
mundi lifa.“
Unga konan leit þakklátum
augum á Mesmer.
„Það var lítil von um mig,“
sagði hún, „en læknirinn þarna,
frændi minn, hjálpaði mér með
seguljárnunum sínum. Nú er ég
gift og á þrjú börn.“
Mesmer trúði því, að segul-
afl hefði lækningamátt — þá
hugmynd hafði hann fengið frá
prestinum Maximilian Hehl.
Hann keypti þrjú seguljárn, tvö
í laginu eins og spelkur til að
festa við læri stúlkunnar, og það
þriðja hjartalaga til að leggja
á brjóst hennar.
Auðvitað datt Mesmer ekki í
hug, að sefjun mundi eiga ein-
hvern þátt í lækningatilraun
hans. En honum kom á óvart sú
breyting, sem varð á ungfrú
Franzl, jafnskjótt og hún komst
í snertingu við seguljárn. Áður
hafði hún þjáðst af flogum,
magaverkjum, sjóntruflunum og
33