Úrval - 01.06.1959, Blaðsíða 31
ÞRJÁR SEKTJNDUR til að bjarga lífinu
TÍRVAL
komið hvað þú gerir. Þú hefur
kannski ekki á takteinum hin
þjálfuðu viðbrögð íþróttamanns-
ins. Þess vegna er gott fyrir þig
að íhuga málið til þess að vera
ckki með öllu óviðbúinn, ef til
kemur.
Hér á eftir verður lýst nokkr-
um algengum hættum í umferð-
inni og gefnar bendingar um,
hvernig bezt sé að bregðast við
þeim. ímyndaðu þér, að þú lend-
ir í þessum hættum og vittu
Iivort svör þín verða rétt.
1. hættan: Þú ekur um óbyggt
land. Vegurinn beygir fyrir hæð,
en á vinstri hönd er grunnur
skurður. Allt í einu kemur stór
vörubíll fyrir hæðina á mikilli
ferð. Vegurinn er of mjór til
þess að bílarnir geti ekið hvor
framhjá öðrum. Hvað áttu að
gera ?
Svar: Stíga á hemlana og
beygja út af veginum! Næstum
hvað sem er er betra en svona
árekstur, einkum við þungan
vörubíl. Bílar eins og nú gerast,
eru furðulega stöðugir á hjólun-
urn, þó að þeir lendi út af vegi,
og jafnvel þó að bíllinn þinn
taki nokkrar veltur, er það
minni hætta fyrir þig, heldur
en árekstur við vörubílinn.
2. hættan: Þú þarft af ein-
hverri ástæðu að nema snöggt
staðar. I speglinum sérðu, að
bíllinn á eftir þér er á mikilli
ferð og svo nærri, að ekki verð-
ur komist hjá hörðum árekstri.
Hvað áttu að gera?
Svar: Renndu þér niður í
sætinu þannig að hnakkinn nemi
við bakið. Alvarlegasta hættan
þegar um svona ákeyrslu aftan
á er að ræða, er meiðsli í hálsi,
sem orsakast af þeim hnikk
sem verður þegar líkaminn
kastast fram, en höfuðið sleng-
ist aftur vegna þess að það hef-
ur ekkert viðnám. Hann getur
valdið skemmdum eða liðhlaupi
í hálsliðunum. Læknar segja, að
þessi slösun sé mjög sjaldgæf á
börnum. Það er vegna þess, að
barnshöfuð nær yfirleitt ekki
upp fyrir sætisbakið. Það er
sjálfsögð öryggisráðstöfun að
koma höfðinu niður fyrir bak-
brúnina.
3. hættan: Þú ekur um ókunn-
ar slóðir í myrkri og blindast
skyndilega af ljósi bíls, sem
kemur á móti þér. Fram undan
er beygja sem liggur að brú, en
þú sérð ekki vegbrúnina, ekur
gegnum varnarriðið og lendir í
djúpri á. Hvað er bezta ráðið
til að komast út úr bílnum?
Svar: Mundu, að þú getur
ekki opnað hurðina fyrr en
vatnsþrýstingurinn er orðinn
jafn í bílnum og fyrir utan. Þú
getur auðvitað skrúfað niður
rúðuna og komist út um glugg-
ann, ef hann er nógu stór til
þess. En hvað sem því líður þá
gleymdu ekki að anda djúpt að
þér áður en bíllinn er orðinn
fullur af vatni, og opnaðu svo
hurðina strax og þrýstingurinn
hefur jafnast. Ef þér nægir
ekki það loft sem þú fékkst, þá
mundu, að uppi undir þakinu í
27