Úrval - 01.06.1959, Blaðsíða 48

Úrval - 01.06.1959, Blaðsíða 48
‘Ú'RVAL húsi, sem við getum kallað A, en fyrir engum sjúklingi í sjúkrahúsinu B. Síðan ýrði ár- angurinn athugaður og sann- reynt, hvort fleirum hefði batn- að og færri dauðsföll orðið í A. Og tilraunin yrði sjálfsagt end- urtekin oft og á ýmsum stöð- um, til þess að koma í veg fyrir að óviðkomandi áhrif gætu orkað á niðurstöðuna. Vandinn við slíka tilraun er sá, að ég fæ ekki séð, hvernig unnt er að biðja einlæga bæn við slíkar aðstæður. Að mæla fram bænarorð er ekki sama og að biðja; ef svo væri gætu vel þjálfaðir páfagaukar verið stað- genglar hinna biðjandi manna. Það er ekki hægt að biðja um að sjúkum batni, án þess að til- gangurinn með bæninni sé bati þeirra. Og það er óhugsandi að maður gæti óskað þess, að öll- um sjúklingum í einu sjúkra- húsi batni, en engum í öðru. Bænin væri þá ekki ætluð til þess að draga úr þjáningum, heldur gerð í tilraunaskyni. Það væri í rauninni ekki um neina bæn að ræða, heldur tilraun, sem hlyti að vera dæmd til að mistakast. Það er því hvorki hægt að sanna né afsanna áhrif eða mátt bænarinnar. En þessi niður- staða verður ekki eins dapur- leg, ef við minnumst þess, að bæn er ekkert annað en beiðni, og við getum borið hana saman við hliðstæður hennar, sem við þekkjum úr mannlegu félagi. ÁHRIF BÆNARINNAR Við biðjum meðbræður okk- ar um ýmislegt engu síður en guð; við biðjum einhvern um að rétta okkur saltið, við biðjum um kauphækkun, við biðjum kunningja okkar um að gefa kettinum, meðan við erum í fríi, og við biðjum konu um að giftast okkur. Stundum er orðið við beiðni okkar og stundum ekki. En þegar við fáum ósk okkar uppfyllta, er ekki nærri eins auðvelt og ætla mætti að færa óyggjandi rök fyrir því, að uppfylling óskarinnar sé bein af- leiðing bænarinnar. Kunningi manns kann að vera svo góðhjartaður, að hann hefði ekki látið köttinn svelta, enda þótt maður hefði gleymt að minnast á þetta við hann. At- vinnurekandi þinn kann að hafa frétt, að keppinautur hans hafi í hyggju að ná þér til sin með því að bjóða þér hærri laun — hann vill því tryggja sig með því að verða við kauphækkun- arbeiðni þinni. Og konan sem féllst á að giftast þér — ertu viss um, að hún hafi ekki þeg- ar verið búin að ákveða það? Bónorð þitt gat sem sé verið afleiðing af ákvörðun hennar en ekki orsök. Vera má að af- drifaríkt samtal hefði aldreit átt sér stað, ef hún hefði ekki verið búin að ákveða það. Þannig hvílir að sumu leyti sami efinn yfir áhrifum bæna okkar til guðs og bóna okkar til mannanna. Það sem okkur fellur í skaut, kynnum við að 44
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.