Úrval - 01.06.1959, Blaðsíða 88
ÚRVAL
ÆVILOK SPÖNSKU „RAUÐHETTU'
árum síðar. Aðrir voru þeirrar
skoðunar, að hann hefði verið
enskur sjómaður, sem hún hitti
í Ferrol. Þessu neitaði hún, og
sannanir fengust aldrei.
Jafnskjótt og dóttirin fædd-
ist, sleit Áróra Rodriguez öllu
sambandi við föðurinn og neit-
aði honum jafnvel um að skrá
hana sem sitt eigið barn. Hún
fékk sérstaka stjórnarheimild,
sem var einstæð á Spáni, svo að
dóttir hennar mætti bera hið
sérkennilega nafn Hildegart.
Stúlkan fékk strangt, vísinda-
legt uppeldi og hafði sérstakt
mataræði, sem átti að skerpa
gáfur hennar og auka vöxt
hennar óeðlilega mikið. Hún
var frá fæðingu ,,mótuð“ af
móður sinni og að því er virð-
ist alveg undir áhrifavaldi henn-
ar. Lesefni hennar var valið af
mestu gaumgæfni, og henni
var hvorki leyft að sjá né tala
við nokkurn mann, sem Donna
Áróra áleit, að gæti haft spill-
andi áhrif á hana.
Þó undarlegt megi virðast,
varð þroski stúlkunnar nákvæm-
lega eins og móðir hennar gat
frekast kosið sér. Hún var flug-
læs tæpra tveggja ára gömul,
og var talin undrabarn áður en
hún hafði náð ellefu ára aldri.
Þrettán ára innritaðist hún í há-
skóla og hafði tekið próf í lög-
um, heimspeki og læknisfræði,
er hún var átján ára gömul. Hún
staðhæfði, að læknaprófessor-
arnir í Madrid gætu ekki bætt
neinu við kunnáttu hennar.
Móðir hennar hafði þá enn
mikið vald yfir henni, og því
var trúað, að Donna Aróra
beitti dáleiðslu til að hjálpa
stúlkunni við námið.
Hildegart skrifaði allmargar
bækur og ritgerðir, sem sýndu
svo frábæra þekkingu, að pró-
fessorarnir ráku upp stór augu.
Á Spáni var hún almennt nefnd
„Undrabarnið", og hún skrif-
aðist á við heimsfræga vísinda-
m.enn, sem síðar vottfestu ó-
tvíræða hæfileika hennar.
Hún las pólitíska hagfræði og
vann ötullega að réttindamálum
kvenna. Með aðstoð hennar
hugðist Donna Aróra leysa
spánskar konur úr aldalangri
einangrun og ánauð og fá þær
til að taka virkan þátt í opin-
beru lífi.
Vegna fyrirlestra sinna um
kommúnisma var Hildegart
köllu ,,Rauðhetta“ Spánar, og
hún hneykslaði alla Madrid með
opinberum umræðum um kyn-
ferðismál og fleira, sem olli
miklum deilum manna á milli.
Móðir hennar var stöðugt á
verði gegn ytri áhrifum, sem
gætu snúið Hildegart af hinni
ákveðnu braut, og gert þannig
að engu áætlanir hennar og
ævilanga baráttu.
Donna Rodriguez sagði rétt-
inum, að frægur enskur rithöf-
undur hefði boðið Hildegart að
koma til Englands, til að skáld-
gáfa hennar fengi betur notið
sín, en stúlkan hefði hafnað
boðinu, þar sem móðir hennar
80