Úrval - 01.06.1959, Page 103
VILTU SVERJA?
ÚRVAL
sokkana sína og strauað skyrt-
umar og pressað buxurnar
og burstað skóna og nudd-
að jakkana sína með bletta-
batni og burstað þá upp
úr kaffi; fyrir konuna hafði
liann greitt hárið aftur og fram,
hann hafði skipt í miðju og til
hliðar, hann hafði gengið stutt-
klipptur og með sítt hár, hann
hafði borið í það olíu og feiti
og alls kyns ilmvökva, hann
hafði safnað börtum og al-
skeggi og rakað það svo af sér.
Fyrir konuna hafi hann þessi
þrjátíu ár farið 1800 sinnum í
bað, heitt og volgt, í keri, undir
steypibunu og í alltof heitum
baðstofum með og án hrísvand-
ar. í þágu konunnar hafði hann
rakað sig 11000 sinnum, burst-
að tennurnar 22000 sinnum,
reynt að fá bindishnútinn rétt-
an 33000 sinum og horft í
spegilinn 44000 sinnum á þetta
hnúskótta andlit. Hann hafði
lesið bækur um þá, sem læra
jiu jitsu og fá stálharða vöðva,
hann hafði stungið rauðum og
gulum og hvítum klútum í
brjóstvasann á jakkanum sín-
um og hann hafði gengið með
blóm í hnappagatinu.
Til að koma sér í mjúkinn
hjá konunni hafði hann keypt
handa henni sjöl og hanska,
blóm og konfekt, bækur og nót-
ur, greiður og púðurdósir, veski
og blússur, eyrnarlokka og ilm-
vatnsflöskur, sófapúða og ösku-
bikara og vatnslitamyndir og
hvolpa. Hann hafði slegizt við
dyraverði og þjóna til að útvega
henni (og sér sjálfum) borð á
veitingastað, hann hafði staðið
í biðröðum við kvikmyndahús
og leikhús, hann hafði farið
með henni á útsölu, í bænahús
og tízkusýningar, hann hafði
keypt handa henni mat úti, og
borgað fyrir hana far með spor-
vagni, bíl, strætisvagni og
hestvagni, hann hafði keypt vín:
þurr vín og sæt, gul vín og rauð,
hann háfði keypt madeira,
portvín, sherry, rínarvín, ung-
verskt vín og spánskt vín til að
gera hana lipra og meðfærilega,
hann hafði náð í gin, viský,
vodka, brennivín, konjak, gen-
ever, romm og calvados, hann
hafði keypt grammofón og
plötuspilara og sett himinblátt
silkiáklæði á sófann í herbergi
sínu, allt til að dáleiða hana.
Hann hafði leikið fyrir hana á
selló, flautu, píanó og básúnu
og hann hafði ort ljóð.
Til að komast yfir konuna
hafði hann — eins og allir karl-
menn — framið allt, nema morð,
og jafnvel það í huganum.
Hann hafði hlaupið 400 metra
á æskuárunum, iðkað hnefaleik,
tekið þátt í grindahlaupi, spil-
að knattspyrnu og æft leikfimi.
Hann hafði notað fætur og
handleggi og öll hugsanleg
samgöngutæki til að nálgast
konima; einu sinni gekk hann
tugi kílómetra á skíðum að
næturlagi og fótbrotnaði og var
að dauða kominn. Hann hafði
brotizt yfir ár og læki, rutt sér
95