Gátt - 2009, Blaðsíða 4
4
F R Æ Ð S L U M I Ð S T Ö Ð A T V I N N U L Í F S I N S
G Á T T – Á R S R I T – 2 0 0 9
Ágæti lesandi.
Hér getur að líta sjötta tölublað af
Gátt, ársriti um fullorðinsfræðslu og
starfsmenntun, sem Fræðslumiðstöð
atvinnulífsins (FA) gefur út. Meg-
inhlutverk Fræðslumiðstöðvarinnar
er að vera samstarfsvettvangur
stofnaðilanna, Alþýðusambands
Íslands og Samtaka atvinnulífsins,
í víðtæku samstarfi um símenntun
á íslenskum vinnumarkaði. Sam-
starfið nær til þróunar nýrra aðferða
til að efla þekkingu og færni fólks á
vinnumarkaði sem og framkvæmdar samstarfsverkefna. Gátt
er ætlað að vera vettvangur fyrir umræðu um verkefni, við-
horf og kenningar sem efst eru á baugi hverju sinni. Sem fyrr
er markmið ritsins að efla umræðu um fullorðinsfræðslu og
starfsmenntun á Íslandi, miðla reynslu og kynna það sem ber
hæst í umræðunni hverju sinni. Markmið FA er að í Gátt birt-
ist úrval greina um hvaðeina sem varðar nám og fræðslu full-
orðinna. Ritið er ætlað breiðum hópi í samfélaginu: þeim sem
stjórna og vinna að fræðslumálum, leiðbeinendum, kenn-
urum og námsmönnum og síðast en ekki síst öllum öðrum
sem hafa áhuga á að kynna sér nýjungar og helstu sjónarmið
í fræðslu fullorðinna. Ritstjórnin telur sig afar lánsama að
hafa fengið til liðs við sig breiðan hóp fólks við skriftirnar.
Í hópi greinahöfunda í þetta sinn eru sérfræðingar af ýmsu
tagi, fræðsluaðilar, leiðbeinendur, náms- og starfsráðgjafar
auk starfmanna FA.
Breytingar, sem riðið hafa yfir íslenskt efnahagslíf og
vinnumarkað, hafa óhjákvæmilega haft áhrif á starfsemi
Fræðslumiðstöðvarinnar. Meginefni ritsins að þessu sinni
er erfið staða á vinnumarkaði og hvaða úrræða er hægt að
grípa til sem eru líkleg til árangurs. Hvað einkennir íslenskan
vinnumarkað? Hvernig geta fræðsluaðilar mætt þörfum
atvinnuleitenda fyrir færniþróun? Hvernig hefur staðan á
vinnumarkaði þróast? Hvernig vegnar eldri borgurum í lífi
og starfi? Í ritinu eru einnig almennar greinar um fullorðins-
fræðslu, kennslufræðilegar hugleiðingar út frá athyglisverðri
bók og umfjöllun um viðmið um íslenskt skólakerfi, spá um
vinnuafls- og færniþörf í Evrópu fram til 2020 svo að fátt eitt
sé nefnt.
Þótt menntunarstig vinnuaflsins á Íslandi sé ekki hátt,
þar sem rúmlega þriðjungur þess hefur ekki lokið öðru námi
en grunnskóla, þá búa margir að langri og fjölbreyttri reynslu
á vinnumarkaði. Eitt af skilgreindum verkefnum FA er mat
á raunfærni. Mat á raunfærni byggist á þeirri hugmynd að
nám fari ekki eingöngu fram innan formlega skólakerfisins
heldur við alls konar aðstæður og að allt nám sé verðmætt
og það sé hægt að skjalfesta hæfni og þekkingu óháð því
hvar hennar hefur verið aflað. Tilgangur raunfærnimats er að
draga fram og meta fjölbreytilega færni sem einstaklingurinn
býr yfir og í ritinu er nánar fjallað um nokkur verkefni af því
tagi og sólskinssögur nokkurra einstaklinga sem hafa gengið
í gegnum mat á raunfærni og stytt sér leið að sveinsprófi.
Í ritinu eru einnig fastir liðir: Þátturinn Hvað áttu við?
Í honum eru settar eru fram tillögur um skilgreiningar og
þýðingar á íðorðum sem varða nám fullorðinna og starfs-
menntun. Þá er greint frá starfsemi FA og verkefnum sem
unnið hefur verið að á árinu 2009. Öll miða þau að því að
auka færni fólks á vinnumarkaði og efla fullorðinsfræðslu
og starfsmenntun á Íslandi. Ritstjórnin vonar að ritið verði
kærkomin lesning þeim sem koma að námi fullorðinna og
hún hvetur lesendur til að láta skoðanir sínar í ljós, koma
með ábendingar og hugmyndir og taka þannig virkan þátt í
því að efla fullorðinsfræðslu og starfsmenntun á Íslandi.
F.h. ritstjórnar
Sigrún Kristín Magnúsdóttir
R I T S T J Ó R N A R P I S T I L L
Sigrún Kristín Magnúsdóttir
SIGRÚN KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR